|
|
 |
|
|

 |
|
|
 Út er komin bókin Summit, 100 Mountain hikes in Iceland eftir Ara Trausta Guðmundsson, jarðeðlisfræðing og rithöfund.
SUMMIT er vandaður leiðarvísir um gönguleiðir á 100 íslensk fjöll, ætlaður erlendum ferðamönnum, enda bókin aðeins gefin út á ensku. Ýmiss konar ráðleggingar og upplýsingar, kort, ljósmyndir og lýsingar gera þessa bók afar gagnlega og fróðlega öllum þeim sem hyggjast ganga á íslensk fjöll. Leiðirnar í bókinni eru fjölbreyttar, bæði að lengd og hversu krefjandi þær eru.
Hér er ekki um að ræða þýðingu á bókinni Íslensk fjöll eftir Ara Trausta og Pétur Þorleifsson sem út kom fyrir nokkrum árum, heldur algerlega nýtt verk Ara Trausta, sérsniðið að þörfum erlendra gesta.
Ari Trausti Guðmundsson, rithöfundur og jarðeðlisfræðingur, er víðkunnur af ritum sínum og störfum. Bækur hans um náttúru og jarðfræði, fjallamennsku og ferðalög skipta tugum, auk skáldverka. Ari er þaulreyndur göngugarpur og hefur klifið fjöll víða um heim, auk þess að stunda leiðsögn.
Rétt er einnig að minna á að í síðustu viku kom út ljóðabókin Leitin að upptökum Orinoco eftir Ara Trausta og í júní mun koma út þriðja bók hans á árinu, sem nánar verður kynnt síðar.
|
 |
|
 |
|
|
 Út er komin skáldsagan Krossgötur eftir Lizu Marklund.
Krossgötur eru níunda bók Marklund um blaðakonuna Anniku Bengtzon og eru nú allar komnar út á íslensku. Þrjú ár eru liðin síðan síðasta bók um Anniku, Þar sem sólin skín, kom út.
Í Krossgötum er dregin upp eftirminnileg mynd af árekstrum ólíkra heima og hvernig reynir á samskipti og sambönd fólks við erfiðustu aðstæður sem hugsast getur. Á bókarkápu segir:
Eftir þriggja ára dvöl í Washington sem fréttaritari Kvöldblaðsins er Annika Bengtzon komin til Stokkhólms í sitt gamla starf. Hún er tekin saman við eiginmanninn Thomas á ný en hann starfar í dómsmálaráðuneytinu og sinnir þar alþjóðlegum öryggismálum.
Lík ungrar móður finnst við leikskóla í úthverfi borgarinnar og reynist vera fjórða unga konan sem myrt er með svipuðum hætti á skömmum tíma. Í Kvöldblaðinu er skrifað um hugsanlegan raðmorðingja og brátt eru lögregluyfirvöld orðin sama sinnis.
Á meðan Annika rannsakar málið sækir Thomas ráðstefnu í Nairobi í Kenía og í kynnisferð við landamæri Sómalíu er allri sendinefndinni rænt, sjö Evrópubúum af ólíku þjóðerni. Mannránin valda mikilli ólgu í Evrópu og Annika dregst inn í æsispennandi atburðarás þegar reynt er til þrautar að semja um lausn gíslanna. Mannræningjarnir gera óheyrilegar kröfur um lausnargjald og byrja að taka gíslana af lífi, einn af öðrum …
Anna R. Ingólfsdóttir þýddi.
|
 |
|
 |
|
|

Tunglið braust inn í húsið, stórt safn ljóða víðs vegar að úr heiminum sem Gyrðir Elíasson valdi og þýddi og kom út á fimmtugsafmæli þýðandans á síðasta ári, hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin sem Katrín Jakobsdóttir afhenti á Gljúfrasteini fyrr í dag.
Í umsögn dómnefndar segir: „Magnað stórvirki með ljóðlist úr ýmsum heimshornum. Heillandi og fagmannlega færð í íslenskan búning.“
Jafnframt því að vera afkastamikill, virtur og margverðlaunaður rithöfundur og skáld, hefur Gyrðir Elíasson þýtt 18 bækur af ýmsum toga.
Verðlaunabókin, Tunglið braust inn í húsið, hlaut frábærar viðtökur gagnrýnenda og lesenda og hefur verið prentuð tvisvar. Sem dæmi má nefna að gagnrýnendur Morgunblaðsins, Fréttablaðsins og Fréttatímans gáfu bókinni allir fimm stjörnur.
Uppheimar óska Gyrði innilega til hamingju með daginn!
|
 |
|
 |
|
|
 eftir Ara Trausta Guðmundsson.
Í þessari óvenjulegu ljóðabók býður skáldið Ari Trausti Guðmundsson lesandanum í langferð með manni sem tíminn hefur smám saman molað undan það sem hann þekkir best og er honum kærast. Siglingu yfir hálfan heiminn til að láta ævilangan draum rætast: að leita upptaka fljótsins mikla – Orinoco.
Ara Trausta þekkja allir landsmenn. Seinasta áratuginn hefur hann einbeitt sér að skáldskap og gefið út ljóðabækur, smásögur og skáldsögur og getið sér gott orð. Auk skáldverka liggja eftir Ara Trausta tugir fræðibóka á sviði jarðfræði, náttúrufræði, útivistar o.fl. Þess má geta að nýjar bækur frá Ara verða fjórar á þessu ári, auk endurgerðar á tveggja ára.
|
 |
|
 |
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
|  Krossgötur | |
|  Aðeins eitt líf | |
|  Snjókarlinn | |
|  Englasmiðurinn | |
|  Hausaveiðararnir | |
|  Hrafnarnir | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|