FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Öskudagar
Þessi fyrsta ljóðabók Ara Jóhannessonar hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2007. Úr umsögn dómnefndar:
,,Það kom dómnefnd ekki á óvart að höfundur handritsins er læknir því allmörg ljóð í bókinni fjalla um læknisstörf og samband læknis við sjúklinga sína. Ljóðabók eftir Ara hefur ekki áður komið út sem kann að sæta nokkurri furðu því hann hefur sterka skáldtaug og á auðvelt með að miðla sýn sinni til lesandans í öguðum texta sem um leið er ríkur af sterkum tilfinningum.

Samspil
Í þessari bók leiða saman hesta sína tveir afburðamenn, þeir Benedikt Líndal tamningameistari og Friðþjófur Helgason ljósmyndari. Þeir eiga að baki farsælt samstarf enda hafa áður komið úr smiðju þeirra kennslumyndirnar Frumtamning og Þjálfun. SAMSPIL er lokakaflinn í þeim þríleik. Hér er á ferð einstök bók sem sameinar fræðslu, hugleiðingar og hreina upplifun.

Blóm handa pabba
Að taka ábyrgð á eigin lífi er ævilangt starf en hvernig er að bera ábyrgð á lífi annarra? Hvernig er að stofna fjölskyldu og vera faðir? Hvernig er að verða faðir, taka barnið sitt í fangið og óttast á sama tíma að fara á mis við barnið sitt, óttast aðverða eins og faðir manns sjálfs? Er mesta ógnin sú sem býr innra með okkur?

Önnur ljóðabók Bjarna Gunnarssonar.

Akranes - við upphaf nýrrar aldar
Akranes – við upphaf nýrrar aldar – er viðfang Friðþjófs Helgasonar ljósmyndara í þessari bók. Allar götur frá unglingsárum hefur Friðþjófur myndað Akranes og myndavélin er alltaf með í för þegar hann gerir sér ferð á heimaslóð. Við látum að baki liðna öld og fylgjum Friðþjófi um Skagann þar sem hann skrásetur með vökulli forvitni það sem fyrir augu ber.

Krókaleiðir
Önnur ljóðabók hins þekkta vísindamanns Ara Trausta Guðmundssonar sem hefur hin síðari ár snúið sér að samningu skáldrita eftir farsælan feril sem höfundur rómaðra verka um íslenska náttúru. Frá árinu 2002, þegar Ari Trausti hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir smásagnasafnið Vegalínur, hefur hann sent frá sér ljóðabækurnar Í LEIÐINNI og BORGARLÍNUR.

Land tækifæranna - kilja
Tvímælalaust ein besta íslenska glæpasagan til þessa.
Haustið 2008 reynist örlagaríkt. Andrzej, bróðir Mareks, finnst myrtur og stórkostleg spilaborg Daníels og útrásarvina hans hrynur, með skelfilegum afleiðingum fyrir alla íslensku þjóðina. Þegar illa útleikið lík Daníels finnst í hálfkláruðu risaeinbýlishúsi hans reynist því enginn skortur á grunuðum...

Land tækifæranna

Myndir úr víkinni
Finnur Torfi Hjörleifsson nam land við Englendingavík í Borgarnesi. Í návist fjörunnar, fólksins og fuglanna, með Vesturnes og Litlu-Brákarey fyrir augum, urðu til þessar myndir úr víkinni. Þetta eru blátt áfram og látlaus ljóð sem miðla sterkri náttúruskynjun og einlægri sannfæringu um skyldur mannsins við það umhverfi sem fóstrar hann.

Í húsi afa míns - Kilja
Sögusviðið er Reykjavík eftirstríðsáranna og ótalmargt sem skýtur litlum dreng skelk í bringu.
Sögumaður er hinn góðkunni útvarps- og fréttamaður Finnbogi Hermannsson. Góðlátleg kímni tekur oftar en ekki völdin í textanum þar sem hversdagslegustu athafnir lifna við og öðlast merkingu fyrir galdur tungumálsins.

Í húsi afa míns

Bækur 61 - 70 af 118. Síða 7 af 12.
Fara á síðu
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS