 |
 |
 |
| Lágmynd |
 |
Lágmynd eftir Tadeusz Rozewicz er í þýðingu Geirlaugs Magnússonar. Höfundurinn fæddist 1921 nærri Varsjá í Póllandi og er meðal þekktustu skálda í heimalandi sínu. Bókin hefur fengið góðar viðtökur ljóðaunnenda.
Geirlaugur Magnússon þýddi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Sandárbókin |
 |
| Gyrðir Elíasson er einn listfengasti rithöfundur þjóðarinnar og fáir ná betur þeirri dýpt að láta tilfinningar og kenndir krauma undir yfirborði orðanna. Sandárbókin er nýr áfangi í höfundarverki hans og kannski hefur Gyrðir aldrei skrifað jafn sterka og áleitna sögu, sem jafnframt er um margt aðgengilegri en fyrri verk hans. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Lífstíð |
 |
Þegar David Lindholm, færasti lögreglumaður Svíþjóðar, finnst myrtur í rúmi sínu fellur grunur á Júlíu eiginkonu hans... Blaðamaðurinn ANNIKA BENGTZON rannsakar málið á sama tíma og hún sjálf liggur undir grun um að hafa kveikt í húsinu sínu. Heimur hennar hrynur meðan hún kafar sífellt dýpra í ofbeldisfulla og myrka fortíð hins myrta.
Anna R. Ingólfsdóttir þýddi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Sögur úr Síðunni |
 |
Sögur úr Síðunni eru tengdar sögur með sameiginlegum persónum. Hér segir frá góðu fólki, sumu broslegu en jafnframt örlátu og höfðinglegu þegar á reynir, í frásögn sem leiftrar af kímni. Sögur úr Síðunni birta enn eina hlið hins ástsæla og fjölhæfa rithöfundar Böðvars Guðmundssonar. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Steinsmiðurinn |
 |
Humarveiðimaður dregur lítið stúlkubarn upp úr sjónum og í ljós kemur að hún hafði verið myrt... Við rannsókn málsins kemur í ljós að bak við friðsæla ímynd Fjällbacka leynist allt annar veruleiki og atburðir frá þriðja áratug 20. aldar fléttast samtímanum. Skyldi lausn gátunnar liggja í fortíðinni?
Anna R. Ingólfsdóttir þýddi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Sögur úr Síðunni |
 |
Sögur úr Síðunni eru tengdar sögur með sameiginlegum persónum. Hér segir frá góðu fólki, sumu broslegu en jafnframt örlátu og höfðinglegu þegar á reynir, í frásögn sem leiftrar af kímni. Sögur úr Síðunni birta enn eina hlið hins ástsæla og fjölhæfa rithöfundar Böðvars Guðmundssonar. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Bernharður Núll |
 |
Hver er hversdagsnjósnarinn Bernharður Núll? Beittur stíll, nýsköpun og frumleiki einkenna verk Bjarna Bjarnasonar og Bernharður Núll er þar engin undantekning. Sterk og áleitin samtímasaga þar sem tilvist nútímamannsins er vægðarlaust krufin til mergjar af miklu innsæi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Sá yðar sem syndlaus er |
 |
„Maðurinn, eða það sem eftir var af honum, sat í dökkbrúnum,djúpum leðurhægindastól gegnt sjónvarpinu – sem enn var í gangi – og hafði setið þar lengi. Mjög lengi.” Ævar Örn Jósepsson hefur skapað sér nafn sem einn fremsti spennusagnahöfundur landsins en sögur hans hafa hlotið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Arfur Nóbels |
 |
Leigumorðingi klæddur samkvæmiskjól kemst inn á Nóbelshátíðina í ráðhúsi Stokkhólms. Á dansgólfinu í gyllta salnum skýtur hann formann Nóbelsnefndarinnar beint í hjartastað... Liza Marklund fjallar hér um erfðatækni og baráttuna um Nóbelsverðlaunin. Hún skrifar gjarnan um það sem þægilegast væri að þegja yfir.
Anna R. Ingólfsdóttir þýddi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Sá yðar sem syndlaus er |
 |
„Maðurinn, eða það sem eftir var af honum, sat í dökkbrúnum,djúpum leðurhægindastól gegnt sjónvarpinu – sem enn var í gangi – og hafði setið þar lengi. Mjög lengi.” Ævar Örn Jósepsson hefur skapað sér nafn sem einn fremsti spennusagnahöfundur landsins en sögur hans hafa hlotið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. |
|
 |
|
|
|
Bækur 81 - 90 af 118. Síða 9 af 12.
|
|
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
|
|