|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| DREKINN |
 |
eftir íslenska rithöfundinn Sverri Berg. Drekinn og er margslungin spennusaga sem gerist á vormánuðum 2013.
„Hvað rekur mann til þess að henda sér fram af vita á Stokkseyri? Ég sé hann fyrir mér þar sem hann liggur í blóði sínu undir þessum vita í rúman sólarhring, án þess að nokkur yrði hans var. Án þess að nokkur saknaði hans.“
Flest bendir til að forstjóri Einarshafnar, eins stöndugasta smásölufyrirtækis landsins, hafi fyrirfarið sér enda kemur fljótt í ljós að þar er maðkur í mysunni og staðan allt önnur en talið var. Brynjari, sem starfar hjá ráðgjafarfyrirtæki í Reykjavík, er falið að rannsaka málið. Á sama tíma ríkir mikil eftirvænting í samfélaginu vegna fyrirhugaðrar olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Fyrr en varir dregst Brynjar inn í atburðarás þar sem líf og tilvera venjulegs fólks er skiptimynt í miskunnarlausu valdatafli.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Þúfnatal |
 |
eftir Guðbrand Siglaugsson. Þetta er 12. ljóðabók Guðbrands, sem síðast sendi frá sér bókina Höfuð drekans á vatninu (2011). Guðbrandur Siglaugsson býr að afar persónulegu og heillandi ljóðmáli sem nýtur sín til fulls í þessari nýju bók. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Tími kaldra mána |
 |
eftir Magnús Sigurðsson. Þriðja ljóðabók Magnúsar, sem einnig hefur sent frá sér ljóðaþýðingar, smásagnasafn og greinasöfn. Magnús Sigurðsson er handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör 2013 og hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrstu ljóðabók sína, Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Skuldunautar |
 |
eftir Steinunni G. Helgadóttur. Önnur bók Steinunnar, sem 2011 sendi frá sér Kafbátakórinn, sama ár og hún hlaut Ljóðastaf Jóns úr Vör. Stíll Steinunnar er knappur, engu er ofaukið, en um leið tekst henni að galdra fram kröftugan seið sem er fullur af merkingu.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Nautnastuldur |
 |
eftir Rúnar Helga Vignisson Egill Grímsson er ungur maður sem er haldinn svokölluðum nautnastuldi, sálarkvilla sem orsakast af glímu við mótsagnakennd skilaboð. Einkennin lýsa sér í vanhæfni til að njóta lífsins gæða og sjúklegri feimni.
Vandi Egils stafar m.a. af því að gömul og ný viðhorf togast stöðugt á í honum með þeim afleiðingum að honum fallast iðulega hendur frammi fyrir kröfum samfélagsins. Draugar fortíðar ásækja hann í líki silfurskottnanna Móra og Skottu og nútíminn mætir honum í faðmi föngulegra kvenna á framabraut.
Nautnastuldur vakti mikla athygli þegar hann kom fyrst út og reyndist mörgum sannkallaður nautnafundur. Bókin var jafnframt tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Feigðarflan |
 |
eftir Rúnar Helga Vignisson Skáldið Egill Grímsson hefur tekið ákvörðun um að stytta sér aldur. Framkvæmdin vefst þó fyrir honum og í leit að stund og stað ferðast hann á tveimur sólarhringum um líf sitt, land og íslenska samtímamenningu. Yfir öllu vokir kynleg feigð, eins og sveitir jafnt sem sjávarpláss riði til falls, og á köflum er engu líkara en íslenska þjóðin sé vegalaus eftir valdatöku jeppakynslóðarinnar.
Um þetta hrikalega landslag, sem þó er fullt af litríku fólki og spaugilegum uppákomum, ferðast lesandinn með laskaðan áttavita söguhetjunnar sér til halds og trausts.
Rúnar Helgi Vignisson hefur hér skrifað gráglettna sögu um grafalvarlegt málefni. En á meðan lesandinn veltir fyrir sér hvort hann eigi að hlæja eða gráta með persónum sögunnar, er eins víst að með honum vakni ýmsar spurningar um drifkraft manneskjunnar, um böndin á milli okkar og um sjálfa lífsgleðina.
Feigðarflan er tileinkað öllum þeim sem ekki eiga jeppa.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Manneskja án hunds |
 |
eftir sænska rithöfundinn Håkan Nesser í þýðingu Ævars Arnar Jósepssonar.
Håkan Nesser hefur ritað á þriðja tug skáldverka af ýmsu tagi og unnið til fjölmargra verðlauna í heimalandi sínu, Svíþjóð. Glæpasögur hans njóta mikillar hylli víða um lönd en Manneskja án hunds er fyrsta bókin af fimm um rannsóknarlögreglumanninn Gunnar Barbarotti og leit hans að sannleikanum, tilgangi lífsins og öðru smálegu.
Það er desember í Kymlinge og Hermansson-fjölskyldan er samankomin til að halda 105 ára afmælisveislu – tvöfalt afmæli feðginanna Karl-Eriks, sem verður 65 ára, og Ebbu, sem verður fertug.
Ekkert fer þó eins og ætlað var. Nóttina fyrir stóra daginn fer Róbert, frægur að endemum úr raunveruleikasápunni Fangarnir á Koh Fuk og bróðir Ebbu, út að ganga – en skilar sér ekki aftur. Og nóttina þar á eftir hverfur Henrik, sonur hennar. Gunnar Barbarotti, ítalskættaður aðalvarðstjóri í rannsóknarlögreglunni fær þetta undarlega mál inn á sitt borð. Getur það verið tilviljun að tveir einstaklingar úr sömu fjölskyldu hverfi sporlaust með sólarhrings millibili? Hlýtur ekki eitthvað að búa þar að baki?
Til að leysa gátuna verður Barbarotti að kynnast þessari undarlegu fjölskyldu og draga hennar myrkustu leyndarmál fram í dagsljósið – og það er ekki laust við að hann óski þess stundum, að til væri einhver velviljaður æðri máttur, sem mögulega mætti snúa sér til á erfiðum stundum.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Svikalogn |
 |
eftir VIVECU STEN
Miðvikudaginn 20. mars kemur út undir nafni Undirheima skáldsagan Svikalogn eftir sænska rithöfundinn Vivecu Sten. Þetta er fysta bók Vivecu á íslensku en hún hefur aflað sér mikilla vinsælda á síðustu misserum og gjarnan verið líkt við Camillu Läckberg. Sigurður Þór Salvarsson þýðir.
Á bókarkápu segir:
Á heitum júlímorgni finnst sjórekið lík á strönd eyjarinnar Sandhamn, sem er ein af sumarleyfisperlum skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm.
Rúmri viku síðar finnst annað lík á gistiheimili í eynni, kona sem flest bendir til að hafi verið myrt. Thomas Andreasson lögreglumaður er sendur frá Stokkhólmi til að rannsaka málið en hann er alinn upp í skerjagarðinum og því kunnugur á þessum slóðum. Rannsóknin reynist erfið, fáar vísbendingar og engan veginn ljóst hvernig dauðsföllin tengjast hinu friðsama eyjasamfélagi.
Svikalogn er fyrsta bókin í nýrri röð glæpasagna sem gerast í Sandhamn. Í aðalhlutverkum eru rannsóknarlögreglumaðurinn Thomas og æskuvinkona hans, lögfræðingurinn Nora, sem dvelur í eynni á sumrin ásamt manni sínum og börnum.
--- „Nýr sænskur spennukrimmi sem rígheldur lesandanum.“
Aftonbladet
„Svikalogn er frumraun Vivecu Sten en það er þegar ljóst að Camilla Läckberg hefur fengið verðugan keppinaut. /.../ Óendanlega spennandi. /.../ Höfundur lætur ýmsum áhugaverðum spurningum ósvarað og þess vegna bíður maður spenntur eftir næstu Sandhamn-bók.“
Hallandsposten
„Þetta er frumraun sem gefur góð fyrirheit og skipar Vivecu Sten á bekk með fremstu glæpasagnahöfundum Svía.“
Dagbladet
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Héraðsskólar Borgfirðinga, Hvítárbakki - Reykholt |
 |
eftir Lýð Björnsson mun koma út við sumarsólstöður 2013. Bókin býðst í forsölu á hagstæðu tilboði, kr. 5.690, með sendingarkostnaði. Frestur til að skrá sig á heillaóska og þakkarlista (Tabula gratulatoria) fremst í bókinni er til 1. maí n.k.
Kaupendum sem hafa áhuga að skrá sig á listann er bent á að senda staðfestingu á uppheimar@uppheimar.is
Í bókinni er fjallað ítarlega um sögu Hvítárbakkaskóla, og síðan upphaf Reykholtsskóla og sögu hans allt til enda. Bókin er prýdd fjölda mynda. Flest skólaspjöldin eru þar að finna, margar bekkja- og hópamyndir, myndir af hljómsveitum, kórum, íþróttaliðum og mörgu fleira.
Einnig er að finna í bókinni ýmis skjöl og aðrar heimildir sem tengjast skólastarfinu, skírteini, plögg og kveðskap. Nemendur frá ýmsum tímum leggja til efni í bókina og bregða upp skemmtilegum svipmyndum af skólanum.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| BRYNHJARTA |
 |
eftir JO NESBØ
Í þýðingu Bjarna Gunnarssonar.
Jo Nesbø er heimskunnur fyrir bækur sínar um rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole. Brynhjarta er sú sjötta þeirra á íslensku en hinar fyrri hafa notið miklla vinsælda.
Á bókarkápu segir: Með stuttu millibili finnast lík tveggja kvenna í Osló. Af dularfullum áverkum í munni þeirra dregur lögreglan þá ályktun að þær hafi verið myrtar af sama ódæðismanninum.
Kaja Solness er send til Hong Kong til að hafa uppi á eina norska lögreglumanninum sem er sérfróður um raðmorðingja. Hann hefur falið sig þar í mannhafinu og vill ekki láta finna sig. Vill ekki horfast í augu við drauga fortíðarinnar. Hann heitir Harry Hole.
Brynhjarta er það ástand þegar manneskja er grafin undir svo miklu fargi að álagið á brjóstkassann er slíkt að hún nær ekki andanum. Með brynhjarta er hægt að lifa í fjórar mínútur.
|
|
 |
|
|
| Bækur 1 - 10 af 217. Síða 1 af 22. |
|
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|  Steinblóð | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|