FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
GOLF Á ÍSLANDI

GLÆSILEGT RITVERK UM GOLF Á ÍSLANDI
Tvö bindi saman í vandaðri öskju

Í þessu veglega tveggja binda verki Steinars J. Lúðvíkssonar sem ritað er í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands er búið að taka saman mikinn fróðleik um framgang og iðkun golfs hér á landi. Um er að ræða viðamesta verk um golf á Íslandi sem gefið hefur verið út og er ómissandi í bókaskáp allra kylfinga.

Haustfórn

Þriðja bókin eftir Svíann Mons Kallentoft, með lögreglukonuna knáu, Malin Fors. Bókin heitir Haustfórn og fylgir í kjölfar bókanna Vetrarblóð og Sumardauðinn. Ísak Harðarson þýddi.

Mons Kallentoft nýtur vaxandi vinsælda og virðingar sem höfundur glæpasagna í hæsta gæðaflokki.

Á bókarkápu segir: Það hellirignir við Skogså-setrið fyrir utan Linköping. Regnið lemur engi og skóga og líkið sem marar í hálfu kafi í hallarsíkinu. Lögfræðingurinn Jerry Petersson, sem nýlega hefur fest kaup á Skogså og er alræmdur fyrir vægðarleysi í viðskiptum, mun ekki vinna fleiri sigra á keppinautum sínum. En hvers vegna var hann myrtur?

Malin Fors lögreglufulltrúi rannsakar málið með félögum sínum í rannsóknarlögreglu Linköping og fljótt kvikna hjá henni grunsemdir um að fyrri eigendur setursins tengist morðinu, aðalsfjölskyldan Fågelsjö, sem neyddist til að selja Jerry ættaróðalið. Gæti salan á setrinu hafa verið tilefni til morðs? Og hver var þessi Jerry Petersson sem efnaðist á upplýsingatækni og safnaði dýrum listaverkum? Smám saman raðast upp brot úr lífi og örlögum þessa fólks sem leiddu til ótímabærs dauða.

„Með þriðju bók sinni um Malin Fors er augljóst að Kallentoft gerir tilkall til þess að vera talinn fremstur sænskra glæpasagnahöfunda.“
               David Bogerius, TV4



Eldhús ömmu Rún

eftir Sigmund Erni Rúnarsson. Bókin er gefin úr af Uppheimum, sem Sigmundur Ernir er nýgenginn til liðs við. Útgáfutími bókarinnar tengist 150 ára afmæli Akureyrarbæjar sem fagnað er um þessar mundir, enda Sigmundur fæddur þar og uppalinn.
 
Eldhús ömmu Rún er níunda ljóðabók Sigmundar Ernis Rúnarssonar, sem er löngu landskunnur af bókum sínum, störfum við fjölmiðla og á Alþingi. Hér ferðast Sigmundur á tímavél minninganna til æskuslóða sinna á Akureyri:
 
„Ömmur mínar voru hvor með sínum hætti, en áttu það sammerkt að vera alþýðukonur að uppruna og berast lítið á. Þær voru fæddar beggja vegna aldamótanna 1900; önnur bóndakona, hin verkakona, en öðru fremur voru þær húsmæður af sígildum skóla tryggðar og trúar.
 
Báðar eru þær löngu dánar, en lifa í mér og með mér. Ég þarf ekki annað en að hugsa til Gilsbakkavegar og Helgamagrastrætis til að sjá þær fyrir mér, ljóslifandi í verkum sínum; lágar, iðnar og nýtnar. Sögubrotin, sem fylla þetta kver, eru tileinkuð þessum góðu konum, Guðrúnu og Sigrúnu.“

Steinblóð

eftir Johan Theorin í þýðingu Önnu Ragnhildar Ingólfsdóttur. Áður eru komnar út bækurnar Hvarfið og Náttbál eftir sama höfund, sem hlaut Glerlykilinn 2009 fyrir þá síðarnefndu. Bókin er gefin út í kilju.

Johan Theorin er búsettur í Gautaborg en á ættir að rekja til Ölands. Steinblóð er þriðja skáldasaga hans sem gerist þar en ráðgert er að þær verði fjórar, ein fyrir hverja árstíð. Sögusviðið verður ljóslifandi í meðförum Theorins og hafa bækurnar vakið verðskuldaða athygli, svo mikla raunar að lesendur víða um heim gjörþekkja orðið þessa litlu sænsku eyju við Eystrasalt. Gamall kunningi úr fyrri bókunum tveimur, skútuskipstjórinn Gerlof Davidsson, leggur að sjálfsögðu sitt af mörkum við lausn gátunnar.

Vorið er að koma á Ölandi og Per Mörner á von á syni sínum og dóttur í heimsókn. Áætlanir hans um notalegar stundir með börnunum fara úr skorðum þegar Jerry faðir hans hringir og virðist í háska staddur. Jerry er maður með vafasama fortíð og Per hefur forðast hann árum saman, helst viljað gleyma honum. Hann lætur sig engu að síður hafa það að fara og athuga með þann gamla og finnur hann lokaðan inni í brennandi húsi, tekst með naumindum að forða honum út. Jerry er með sár eftir eggvopn á kviðnum og jafnframt augljóst að eldurinn er af mannavöldum. Tvö lík finnast í húsinu. Annað þeirra telur lögreglan vera af manni sem grunaður er um að hafa viljað Jerry feigan. Ýmislegt bendir þó til að sá maður lifi enn og hættan sé alls ekki liðin hjá. Per er ákveðinn í að komast til botns í málinu. Hann neyðist því til að róta í sárri fortíðinni og kynnast föður sínum betur. Og sjálfum sér um leið.



GRÍMSEY – perla við heimskautsbaug
Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason
Texti: Valgarður Egilsson

112 bls. ljósmyndabók í kilju.
Endurgerð bókar frá 2004.

Í þessari bók er að finna greinargóðan texta um Grímsey; sögu, náttúru og mannlíf. Frábærar ljósmyndir Friðþjófs Helgasonar gefa lesandanum innsýn í lífið í eynni, kraftmikið fólk við ysta haf og ekki síst hinni stórbrotnu náttúru og fuglalífi í Grímsey.

Allur texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku. Á bókarkápu segir:
Grímsey rís úr hafi um 40 km norður af Íslandi. Þar búa tæplega 100 manns í félagi við milljón sjófugla í björgum og bökkum eyjarinnar. Flestir íbúanna eru sjómenn eða hafa lífsafkomu sína af sjósókn og fiskvinnslu. Eyjan er um 5 km á lengd og um 3 km á breidd, umlukin Norður-Atlantshafinu.


ÁRBÓK AKURNESINGA 2012

Út er komin hjá Uppheimum Árbók Akurnesinga 2012 í ritstjórn Sigurðar Sverrissonar. Þetta er 12. árgangur bókarinnar, sem Uppheimar stofnuðu til árið 2001.

Í Árbók Akurnesinga 2012 er að vanda fjölbreytt og áhugavert efni, bæði fastir liðir og ný viðtöl og greinar.

Árbók Akurnesinga er 224 síður, innbundin.


Draugaverkir

Thomas Enger

Norsk glæpasaga Draugaverkir eftir Thomas Enger.

Thomas Enger skaust upp á stjörnuhimininn með sinni fyrstu bók, Skindauða, sem kom út á íslensku 2011. Hér sýnir hann og sannar að hann er kominn til að vera.

Á bókarkápu segir:
Þegar blaðamaðurinn Henning Juul fær skilaboð frá Tore Pulli, dæmdum morðingja sem segist búa yfir upplýsingum um hvað gerðist daginn sem sonur Hennings dó, þarf hann að meta hvort morðingjanum sé treystandi. Í staðinn fyrir upplýsingarnar
þarf Henning að hjálpa Tore að sanna sakleysi sitt.


Til að komast að sannleikanum þarf hann að kafa dýpra en hann hafði órað fyrir og finnur sífellt nýjar spurningar í stað svara. Ef Tore Pulli er saklaus, hver er þá morðinginn? Og hvernig tengist þetta morð látnum syni Hennings?



BOX 21

ROSLUND OG HELLSTRÖM

Út er komin hjá Undirheimum bókin BOX 21 eftir sænska glæpasagnatvíeykið Roslund og Hellström. Box 21 er önnur skáldsaga Anders Roslund og Börge Hellström.

Ófreskjan eftir þá félaga, sem kom út á íslensku á síðasta ári, hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan og bækur þeirra hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda og vakið athygli fyrir beinskeytta umfjöllun um óþægilega hluti sem þrífast í velferðarsamfélaginu.

Box 21 er áhrifamikil saga um skuggahliðar mannlegs samfélags og lesandinn stendur frammi fyrir áleitnum spurningum: Hvers vegna á mansal sér stað? Er einhvern tíma réttlætanlegt að fórnarlamb taki lögin í sínar hendur? Hversu langt er
hægt að ganga í nafni vináttunnar? Er það skýlaus krafa að sannleikurinn verði alltaf að koma fram?

Ung vændiskona finnst húðstrýkt í íbúð þar sem henni hefur verið haldið nauðugri ásamt annarri konu. Hún er flutt á sjúkrahús og óvæntir atburðir gerast í kjölfarið. Á þessu sama sjúkrahúsi liggur fársjúkur ungur fíkill sem hefur verið staðinn að því að blanda þvottaefni saman við amfetamín og selja – valdamiklir aðilar í undirheimum Stokkhólmsborgar hyggja á hefnd. Örlög þessara tveggja persóna fléttast saman á eftirminnilegan hátt í rannsókn Ewert Gren lögregluforingja og
félaga hans, Sven Sundkvist rannsóknarlögreglumanns.




MAGMA
Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson

MAGMA Icelandic Volcanoes eftir Ara Trausta Guðmundsson, jarðeðlisfræðing og rithöfund, og Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndara. Bókin er einungis gefin út á ensku, enda ætluð ferðamönnum.

MAGMA greinir frá íslenskum eldstöðvum og fjallar um öll eldgos á Íslandi frá Kötlugosinu 1918 til gossins í Vatnajökli 2011. Áhrifamiklar ljósmyndir eru af flestum þessara gosa og ítarlegur, aðgengilegur texti sem gerir bókina einkar fræðandi og  áhugaverða.



Ragnar Th. Sigurðsson er aðalmyndhöfundur og myndritstjóri bókarinnar,
en í henni er jafnframt að finna úrval margra af bestu eldgosamyndum
síðustu aldar, eftir fjölmarga myndhöfunda. Ragnar er víðkunnur af
myndum sínum, hefur unnið til fjölda verðlauna og myndir hans birst í
virtustu blöðum og tímaritum.



Ari Trausti Guðmundsson á að baki tugi bóka um jarðfræði, náttúrufræði,
fjallamennsku og fleira, auk þess að vera afkastamikið skáld seinni ár.



MAGMA er 208 blaðsíður í sama broti og metsölubók þeirra Ara Trausta og Ragnars Th. um eldsumbrotin í Eyjafjallajökli 2010.




A Visit to the World of the Puffin

Friðþjófur Helgason

Út er komin hjá Uppheimum ljósmyndabókin A Visit to the World of the Puffin eftir Friðþjóf Helgason, ljósmyndara og kvikmyndatökumann. Eins og titillinn bendir til er bókin á ensku og fjallar um lundann við Ísland.

Friðþjóf Helgason þekkja fjölmargir af ljósmyndum hans sem birst hafa óhemju víða áratugum saman, og jafnframt sem afkastamikinn kvikmyndatökumann.

Friðþjófur hefur ljósmyndað lundann og aðra fugla um langt skeið og í þessari litlu en gullfallegu bók er að finna úrval af myndum hans af lundanum við strendur Íslands. Einnig er kafli með myndum af nágrönnum lundans í björgunum.

Texti bókarinnar er stuttur en gefur miklar upplýsingar um lundann, saminn af Sigfúsi Bjartmarssyni og Guðbrandi Siglaugssyni. Anna Margrét Björnsdóttir þýddi.

A Visit to the World of the Puffin er í litlu og handhægu broti (15x15 sm) og 96 blaðsíður.



Bækur 21 - 30 af 217. Síða 3 af 22.
Fara á síðu
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS