FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Blindir fiskar

og djúpt niðri í síkinu
svamla
hugsanir,

þessir blindu fiskar
sem vaka
og rita
öðruhverju

tilhæfulausar línur
í kyrrt
yfirborð

vatnsskorpunnar

Blindir fiskar er önnur ljóðabók Magnúsar Sigurðssonar. Fyrir þá fyrstu, Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu, hlaut Magnús Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2008.

Magnús hefur enn fremur sent frá sér bókina Söngvarnir frá Písa, 2007, með þýðingum sínum á ljóðum eftir Ezra Pound og smásagnasafnið Hálm stráin, 2008.

Höfuð drekans á vatninu

LJÓÐ

Kastar kveðjum sem víðast.
Kominn til að fara
fjöll eftir fjall eftir
fjársjóðum,
perlueygðum meyjum
og hugprýðisvotti,

vogar sér þessvegna
slóð

akur og skóg, hrjóstur
og vellandi gróanda,

sér í hendi sér
að lifir
á hverjum fingri
ljóð.

Höfuð drekans á vatninu er ellefta ljóðabók Guðbrands Siglaugssonar. Hinar tíu komu út á árabilinu 1977 til 2007. Hér tifar tíminn, leikur sér ljóðið á meðan hafið hlustar.


Marlene og ég
Morgunn. Augnablik er síðan stöðuvatn lá yfir borginni en nú eru aðeins fáein smáhvörf eftir. Þau eru djúp og bleytugjörn og lokkandi á sinn hátt. Rökkurdimmir staðir sem seint tæmast. Marlene er ekki vöknuð. Eitt andartak sýnist henni einsamall krossfari þeysa upp hæðina. Hann skýtur augum í átt að Marlene og hverfur svo fyrir sjónum hennar. Kirkjuklukkur slá. Augnlokin læðast aftur yfir sjónarsviðið nótt sem aldrei lýkur.

Marlene og ég er þriðja ljóðabók Gunnars M. G. Fyrsta bók hans, Skimað út, kom út árið 2007 og var fylgt eftir með
bókinni Milli barna 2009.

Kafbátakórinn

Opnun

opið opinn faðmur.
Kossar
á kinn kaldir
að utan.
Inn sigla kafbátarnir
þröngir.
Sjónpípa rís
auga strýkur
veggi, leitar í
í rými. Munnar
hvísla:
Snertir þú mig?

Steinunn G. Helgadóttir vakti verðskuldaða athygli er hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2011 fyrir ljóðið Kaf . Steinunn, sem þekktust er fyrir störf sín að myndlist, stígur hér fram sem þrosk að skáld. Kafbátakórinn er fyrsta ljóðabók hennar.


Eyjafjalljökull - Der ungezähmte Vulkan


Sumardauðinn

Útgáfudagur: 12. apríl


Á heitasta sumri í manna minnum eru íbúar Linköping þjakaðir af kæfandi svækjunni og hvæsandi skógareldum.
Stúlka á táningsaldri – sem man ekkert hvað gerðist – finnst nakin og blóðug í almenningsgarði. Niðri á ströndinni kemur annar óhugnaður í ljós og það rennur upp fyrir Malin Fors að hitabylgjan er ekki helsta áhyggjuefnið – einkum þar sem dóttir hennar sjálfrar er á sama viðkæma aldrinum og fórnarlömbin tvö.

Sumardauðinn, önnur bókin um Malin Fors, segir áhrifamikla sögu af gæfulausri ást og kolsvartri illsku – og skelfingunni þegar ógnin beinist að því sem Malin Fors stendur hjarta næst . . .

Mons Kallentoft (f. 1968) er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svía og bækur hans um Malin Fors njóta mikillar hylli.



Náttbál

Útgáfudagur: 12. apríl

Þegar fárviðrið, sem heimamenn nefna bálið, gengur yfir Öland er öllum hollast að halda sig innandyra. Með norðanstorminum berst ís, snjór og þoka sem soga í sig allt sem fyrir verður. Gamla vitavarðarbýlið við Åluddden hefur staðið autt árum saman við sjálfvirka vitana. Sagt er að reisuleg húsin hafi verið byggð úr timburfarmi skips sem strandaði þar eitt sinní bálinu.

Katrine og Joakim Westin eru orðin leið á að búa í Stokkhólmi,  kaupa býlið og flytja með börnin sín tvö til Åludden. Þau eru vön að gera upp gömul hús og laus við alla hjátrú. En eftir að þau eru flutt heyra þau hrollvekjandi sögusögn: að þeir sem dáið hafa við Åludden snúi þangað aftur um hver jól.

Líkt og Hvarfið er Náttbál ógleymanleg lesning; allt í senn sakamálasaga, draugasaga og  fjölskyldudrama þar sem sérkennilegar persónur og heillandi umhverfi sameinast í harmræna og spennandi fléttu.    

Tunglið braust inn í húsið

Tunglið braust inn í húsið er viðamikið safn ljóða eftir 36 skáld víðsvegar að úr heiminum. Það elsta, kínverska skáldið Tao Tsien, var uppi á fjórðu öld en það yngsta, bandaríska skáldkonan Jane Hirshfield, er fædd 1953.

Hópurinn sem hér hefur valist saman gæti virst sundurleitur við fyrstu sýn – heims þekkt skáld, sem Íslendingum eru að góðu kunn, innan um lítt þekkt ljóð skáld sem ekki hafa verið þýdd áður. Fljótlega koma þó í ljós þeir þræðir sem liggja á milli skálda, þótt þau tilheyri ólíkum menningar heimum. Einn þráður sem má lesa sig eftir er hvernig kínversk og japönsk ljóðahefð hefur markað spor sín í ljóðlist heimsins; annar sýnir hvernig með skáldskapnum er tekist á við skuggana í sálarlífi mannsins. Sterkasti þráðurinn liggur þó í valinu á skáldum og ljóðum því þýðandinn, Gyrðir Elíasson, kynnir hér úrval sem fléttast listilega saman við hans eigin skáldskap.

***** Morgunblaðið

***** Fréttablaðið

***** Fréttatíminn


Morð og möndlulykt
eftir Camillu Läckberg

ÚTGÁFUDAGUR 30. MARS 2011

Það er tæp vika til jóla þegar Martin Molin, lögreglumaður í Tanumshede, mætir til veislu hjá ættingjum kærustunnar, þótt tregur sé. Höfuð Liljecrona-fjölskyldunnar, Ruben, sem stýrir málefnum hennar harðri hendi, hefur stefnt hópnum saman á Hvaley, sem liggur úti fyrir Fjällbacka. Þegar grenjandi stórhríð brestur á rofnar allt samband við meginlandið.
Í veislunni miðri hnígur Ruben örendur niður og því líkast að hann hafi verið myrtur með eitri. Eins og aðrir á staðnum gerir Martin sér grein fyrir því að vegna einangrunarinnar hlýtur morðinginn að vera meðal þeirra. En hvert þeirra hefur tilefni til morðs – og er nógu kaldrifjað til að fremja það?

Morð og möndlulykt er heillandi nóvella í anda Agötu Christie. Camilla Läckberg er einn vinsælasti glæpa­sagna­höfundurinn á Íslandi og víðar. Hún er meðal mest lesnu rithöfunda Evrópu og bækur henn­ar eru gefnar út um allan heim.

Camilla Läckberg og Uppheimar hafa í sam­einingu kos­ið að styrkja Umhyggju, félag til stuðn­ings langveikum börn­um. 100 kr. af andvirði hverrar seldrar bókar renna til félagsins.

Hinir dauðu
eftir Vidar Sundstøl
ÚTGÁFUDAGUR 9. MARS 2011
Lögreglumaðurinn Lance Hansen í Minnesota á í sálarstríði eftir að ungur norskur ferðamaður hefur verið myrtur á bökkum vatnsins mikla, Lake Superior.
Lance er sannfærður um að saklaus maður sitji í fangelsi fyrir þennan skelfilega glæp en Andy bróðir hans sé í raun morðing-inn. Hann reynir að láta sem ekkert sé þegar þeir bræður fara saman á hjartarveiðar, eins og þeir eru vanir á haustin.
Hversu langt mun Andy ganga þegar hann áttar sig á að Lance hefur hann grunaðan? Verður veiðimaðurinn kannski sjálfur bráð?
Jafnframt leysist aldargömul morðgáta smám saman.

Hinir dauðu er önnur bók hins norska Vidars Sundstøl í Minnesota-þríleiknum. Vidar, sem sjálfur hefur búið á slóðum sögunnar við Lake Superior, hefur hlotið einróma lof fyrir þessar bækur.
Land draumanna, sem kom út á íslensku 2010, hlaut Rivertonverðlaunin 2008 sem besta glæpasaga ársins í Noregi og var tilnefnd til Norrænu glæpasagnaverðlaunanna, Glerlykilsins, 2009.
Þriðja og síðasta bókin, Hrafnarnir, er væntanleg haustið 2011.

Vidar Sundstøl spinnur æsilegan sagnavef um morð, norræna innflytjendur, afturgöngu töfralæknisins Swamper Caribou og síðast en ekki síst um núlifandi afkomendur norrænu landnemanna í Minnesota.

Bækur 71 - 80 af 217. Síða 8 af 22.
Fara á síðu
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS