FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Tvær bækur Gyrðis saman í öskju
Ljóðabókin Nokkur almenn orð um kulnun sólar
og smásagnasafnið Milli trjánna eru einnig gefnar út saman í sérstakri öskju. Upplag er takmarkað eða 100 öskjur, þær eru tölusettar og með áritun höfundar.

Sjóræningi segir frá
Sagan segir frá Pétri Planka sem er atvinnulaus sjóræningi í leit að vinnu. Svo virðist sem Pétur hafi aldrei verið neitt sérstaklega góður í starfi ræningjans; honum líkaði betur að halda sig um borð og elda súpu. Því var hann látinn taka pokann sinn og settur á land í litlum hafnarbæ á Jamaíka þar sem hann settist að í gistihúsi frú DelFresno.

Óþekktur hermaður
Óþekktur hermaður fjallar ekki um stríð heldur um menn í stríði. Unga menn úr öllum landshornum Finnland og flestum þjóðfélagsþrepum sem safnað er saman og sendir til að berjast við Sovétríkin í því sem Finnar kalla framhaldsstríðið 1941-1944.

Höfundurinn Väinö Linna (1920-1992) var sjálfur undirliðþjálfi í vélbyssusveit finnska hersins og dregur upp lifandi og fjölbreytilega mynd af félögum sínum, baráttu þeirra, lífi þeirra og dauða. Óþekktur hermaður kom fyrst út árið 1955 vakti strax gríðarlega athygli.

Leitin að Audrey Hepburn
Bjarni Bjarnason hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og Leitin að Audrey Hepburn er áttunda skáldsaga hans. Líkt og í fyrri verkum Bjarna einkennist frásögnin af beittum persónulegum stíl og frumleika – stutt er í gráa kímni, jafnvel galsafenginn húmor.

Gullbrandur Högnason er ævinlega tilbúinn að fylgja fólki út í ótal hversdagsævintýri, fólki sem segir honum hvernig hann eigi að klæða sig, bera sig, koma fram við konur og sleppa hugsunum sínum lausum eins og kanínum. Í París, Róm, Reykjavík og á Eyrarbakka eltir hann óljósan draum en hefur ekkert til að halda sér í nema pennann og dagbókina sem gleypir umhverfið orðrétt.

Rennur upp um nótt
Ísak beitir myndmáli á sinn sérstaka hátt og oft af sláandi frumleika, ekki síst í trúarljóðum bókarinnar. Þá gengur ljóðmælandi á hólm við sjálfan sig, líf sitt og mistök af nístandi miskunnarleysi í röð einstakra prósaljóða sem undirstrika – líkt og bókin öll – þá sérstöðu sem Ísak Harðarson hefur í hópi samtímaskálda okkar.

Rennur upp um nótt er tíunda ljóðabók Ísaks Harðarsonar og kallast að mörgu leyti á við fyrri bækur höfundar enda er hér ekki ort af neinni hálfvelgju.

UPPSELD HJÁ OKKUR!

Yfir hafið og í steininn
Í lok framhaldsstríðs Finnlands og Sovétríkjanna (1941-1944) var Finnum gert að skila aftur til Rússlands öllum Ingerlendingum sem komnir voru til landsins. Ingerlendingar voru finnskumælandi þjóðarbrot sem bjó í Rússlandi en fjöldi þeirra hafði flúið ofríki Stalíns og börðust margir hverj­ir í finnska hernum gegn Sovétríkjunum.
Ekki lögðu þó allir Ingerlendingar trúnað á að þeim yrði tekið opnum örmum í Rússlandi og reyndu með ýmsum ráðum að komast til annarra landa, þar á meðal Svíþjóðar, með aðstoð finnskra fiskimanna.

Sóley
Þegar SÓLEY gerist stigamaður er það til að sann­reyna heilindi elskhuga síns. En fleira knýr hana áfram, hvarf föður hennar og ásakan­ir um að hann hafi gerst föður­lands­svikari ... einnig nýtur hún um stund spennunnar og frægðarinnar sem líf þjóðvegaræningjans aflar henni. Fyrr en varir er Sóley flækt í skuggalegan vef svika og blekk­inga. Tekst henni að losa sig og sleppa á endanum heil á húfi?
Spennandi ævitnýrasaga eftir Celiu Rees, höfund GALDRA­STELPUNNAR og SEIÐKONUNNAR.

Kristín R. Thorlacius þýddi.

Gleymskunnar bók
Meginviðfangsefni þeirra ellefu ritgerða sem hér birtast eru ljóð,
ljóðskáld og það sem nefna mætti smáar bókmenntir og höfundar þeirra. Meðal umfjöllunarefnis er skáldskapur Ingibjargar Haraldsdóttur og skrif bandaríska ljóðskáldsins Ezra Pounds um meinsemdir hins kapítalíska bankakerfis. Fjallað er um kvæðagerð Kristjáns Karlssonar og endursköpun fortíðar okkar í heimildaþáttum Þorsteins frá Hamri.

Tíu vísur
Tíu vísur hefur að geyma alkunnar vísur og kvæði sem fylgt hafa íslenskum börnum kynslóð eftir kynslóð og eiga sér stað í hjörtum okkar allra. Með gullfallegum myndskreytingum Helgu Egilson vakna vísurnar til lífsins fyrir augum lesandans – klæða menningararfinn í nýjum búningi.


Enn er morgunn
ENN ER MORGUNN er ný söguleg skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson, höfund hinna ástsælu bóka um íslensku vesturfaranna – Híbýli vindanna og Lífsins tré.

Haustið 1936 kemur til Reykjavíkur ungur þýskur tónlistarmaður að nafni Jóhannes Kohlhaas. Hann er af gyðingaættum og hefur hrökklast undan nasistum, sem fara mikinn í heimalandi hans. Menningarlíf hins unga höfuðstaðar nýtur hæfileika hans um hríð, hann „aðlagast“ eins og það heitir nú á dögum, finnur meira að segja ástina og kvænist – stúlku af einni fínustu og áhrifamestu ætt landsins, Önnu Láru Knudsen.

Bækur 121 - 130 af 217. Síða 13 af 22.
Fara á síðu
l 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS