 |
 |
 |
| Tvísöngur hins eina |
 |
Tvísöngur hins Eina er í flokki þeirra rita á sanskrít sem tengjast hindúasið beint og óbeint og taka eingöngu til þess sem öllu skiptir en leiða hjá sér það sem annars skipar mest rúm í helgiritum. Lesandinn verður að vera búinn undir að heyra reynslusvar við spurningunni: Hvers eðlis er veruleikinn og hver er staða manneskjunnar innan hans?
Vésteinn Lúðvíksson þýddi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Draugahöndin |
 |
Bráðskemmtileg og falleg barnabók eftir Bjarna Bjarnason um um strákinn Kolbein og skondin ævintýri sem hann lendir í. Kjartan H. Grétarsson myndskreytir bókina af miklu listfengi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Hálmstráin |
 |
| Magnús Sigurðsson er ungur höfundur sem stígur hér fram á ritvöllinn með sína fyrstu bók. Stíllinn er fágaður og sögupersónurnar búa um sig í huga lesandans og eiga það síðan til að skjóta upp kollinum fyrirvaralaust, lengi eftir að lestri er lokið. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Baráttufólk |
 |
| Löngum hefur búið baráttufólk á Skaganum! Í Baráttufólki er brugðið upp sex svipmyndum af þekktum Akurnesingum. Þeir eru: Steini á Hvítanesi, Svafa Þórleifsdóttir, sr. Jón M. Guðjónsson, Herdís Ólafsdóttir, Árni Böðvarsson og Hafsteinn Jóhannsson. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Brjálsemiskækir á fjöllum |
 |
Úr formála þýðanda:
„Þjóðsagan segir að kínverska skáldið Po Chüi hafi aldrei lokið svo ljóði – og var hann þó síyrkjandi alla sína daga – að hann llæsi það ekki fyrir gamla vinnukonu og helst fleiri en eina. Ef í því reyndist eitthvað sem þær áttuðu sig ekki á, breytti hann því þar til þær voru með á nótunum . . .
Vésteinn Lúðvíksson þýddi. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Blóðberg - kilja |
 |
| Einn kaldan febrúarmorgun berast þær fréttir af virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka að sex starfsmenn hafi farist í hörmulegu slysi. Fljótlega koma í ljós vísbendingar sem benda til þess að þetta hafi ekki verið slys heldur kaldrifjað morð – jafnvel fyrsta mannskæða hryðjuverkið á Íslandi... |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Svartir englar - kilja |
 |
Kona hverfur sporlaust og óvenju umfangsmikil lögreglurannsókn fer af stað. Konan er einsstæð, tveggja barna móðir – og einn færasti kerfisfræðingur landsins. Leynd virðist hvíla yfir starfi hennar síðustu mánuðina áður en hún hvarf... Hraður taktur og grípandi spenna dregur lesandann áfram allt til enda. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Skítadjobb - kilja |
 |
Munnurinn var vígvöllur mölvaðra tanna, sundurtættra vara og þrútinnar tungu, og nefið var aðeins blóðug, ólöguleg klessa alþakin sandi og möl... „Andskotinn,“ muldraði Árni oní jakkann um leið og honum varð aftur litið á lækninn og líkið, „ljóta djöfuls djobbið sem ég er kominn í.“ |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Sandárbókin - kilja |
 |
| Gyrðir Elíasson er einn listfengasti rithöfundur þjóðarinnar og fáir ná betur þeirri dýpt að láta tilfinningar og kenndir krauma undir yfirborði orðanna. Sandárbókin er nýr áfangi í höfundarverki hans og kannski hefur Gyrðir aldrei skrifað jafn sterka og áleitna sögu, sem jafnframt er um margt aðgengilegri en fyrri verk hans. |
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Lágmynd |
 |
Lágmynd eftir Tadeusz Rozewicz er í þýðingu Geirlaugs Magnússonar. Höfundurinn fæddist 1921 nærri Varsjá í Póllandi og er meðal þekktustu skálda í heimalandi sínu. Bókin hefur fengið góðar viðtökur ljóðaunnenda.
Geirlaugur Magnússon þýddi. |
|
 |
|
|
| Bækur 171 - 180 af 217. Síða 18 af 22. |
|
l 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
|
|