FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Manneskja án hunds
 eftir sænska rithöfundinn Håkan Nesser í þýðingu Ævars Arnar Jósepssonar.

Håkan Nesser hefur ritað á þriðja tug skáldverka af ýmsu tagi og unnið til fjölmargra verðlauna í heimalandi sínu, Svíþjóð. Glæpasögur hans njóta mikillar hylli víða um lönd en Manneskja án hunds er fyrsta bókin af fimm um rannsóknarlögreglumanninn Gunnar Barbarotti og leit hans að sannleikanum, tilgangi lífsins og öðru smálegu.

Það er desember í Kymlinge og Hermansson-fjölskyldan er samankomin til að halda 105 ára afmælisveislu – tvöfalt afmæli feðginanna Karl-Eriks, sem verður 65 ára, og Ebbu, sem verður fertug.

Ekkert fer þó eins og ætlað var. Nóttina fyrir stóra daginn fer Róbert, frægur að endemum úr raunveruleikasápunni Fangarnir á Koh Fuk og bróðir Ebbu, út að ganga – en skilar sér ekki aftur. Og nóttina þar á eftir hverfur Henrik, sonur hennar. Gunnar Barbarotti, ítalskættaður aðalvarðstjóri í rannsóknarlögreglunni fær þetta undarlega mál inn á sitt borð. Getur það verið tilviljun að tveir einstaklingar úr sömu fjölskyldu hverfi sporlaust með sólarhrings millibili? Hlýtur ekki eitthvað að búa þar að baki?

Til að leysa gátuna verður Barbarotti að kynnast þessari undarlegu fjölskyldu og draga hennar myrkustu leyndarmál fram í dagsljósið – og það er ekki laust við að hann óski þess stundum, að til væri einhver velviljaður æðri máttur, sem mögulega mætti snúa sér til á erfiðum stundum.



Svikalogn
eftir VIVECU STEN

Miðvikudaginn
20. mars kemur út undir nafni Undirheima skáldsagan Svikalogn eftir
sænska rithöfundinn Vivecu Sten. Þetta er fysta bók Vivecu á íslensku en
hún hefur aflað sér mikilla vinsælda á síðustu misserum og gjarnan
verið líkt við Camillu Läckberg. Sigurður Þór Salvarsson þýðir.

Á bókarkápu segir:

Á
heitum júlímorgni finnst sjórekið lík á strönd eyjarinnar Sandhamn, sem
er ein af sumarleyfisperlum skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm.

Rúmri
viku síðar finnst annað lík á gistiheimili í eynni, kona sem flest
bendir til að hafi verið myrt. Thomas Andreasson lögreglumaður er sendur
frá Stokkhólmi til að rannsaka málið en hann er alinn upp í
skerjagarðinum og því kunnugur á þessum slóðum. Rannsóknin reynist
erfið, fáar vísbendingar og engan veginn ljóst hvernig dauðsföllin
tengjast hinu friðsama eyjasamfélagi.

Svikalogn er fyrsta bókin í
nýrri röð glæpasagna sem gerast í Sandhamn. Í aðalhlutverkum eru
rannsóknarlögreglumaðurinn Thomas og æskuvinkona hans, lögfræðingurinn
Nora, sem dvelur í eynni á sumrin ásamt manni sínum og börnum.

---

„Nýr sænskur spennukrimmi sem rígheldur lesandanum.“
Aftonbladet
 
„Svikalogn
er frumraun Vivecu Sten en það er þegar ljóst að Camilla Läckberg hefur
fengið verðugan keppinaut. /.../ Óendanlega spennandi. /.../ Höfundur
lætur ýmsum áhugaverðum spurningum ósvarað og þess vegna bíður maður
spenntur eftir næstu Sandhamn-bók.“
Hallandsposten

„Þetta er frumraun sem gefur góð fyrirheit og skipar Vivecu Sten á bekk með fremstu glæpasagnahöfundum Svía.“
Dagbladet


Héraðsskólar Borgfirðinga, Hvítárbakki - Reykholt


eftir Lýð Björnsson mun koma út síðsumars 2013. Bókin býðst í forsölu á hagstæðu tilboði, kr. 5.690, með sendingarkostnaði. Frestur til að skrá sig á heillaóska og þakkarlista (Tabula gratulatoria) fremst í bókinni er til 24. júní n.k.

Kaupendum sem hafa áhuga að skrá sig á listann er bent á að senda staðfestingu á uppheimar@uppheimar.is

Í bókinni er fjallað ítarlega um sögu Hvítárbakkaskóla, og síðan upphaf Reykholtsskóla og sögu hans allt til enda. Bókin er prýdd fjölda mynda. Flest skólaspjöldin eru þar að finna, margar bekkja- og hópamyndir, myndir af hljómsveitum, kórum, íþróttaliðum og mörgu fleira.

Einnig er að finna í bókinni ýmis skjöl og aðrar heimildir sem tengjast skólastarfinu, skírteini, plögg og kveðskap.

Nemendur frá ýmsum tímum leggja til efni í bókina og bregða upp skemmtilegum svipmyndum af skólanum.



BRYNHJARTA
eftir JO NESBØ

Í þýðingu Bjarna Gunnarssonar.

Jo Nesbø er heimskunnur fyrir bækur sínar um rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole. Brynhjarta er sú sjötta þeirra á íslensku en hinar fyrri hafa notið miklla vinsælda.

Á bókarkápu segir:
Með stuttu millibili finnast lík tveggja kvenna í Osló. Af dularfullum áverkum í munni þeirra dregur lögreglan þá ályktun að þær hafi verið myrtar af sama ódæðismanninum.

Kaja Solness er send til Hong Kong til að hafa uppi á eina norska lögreglumanninum sem er sérfróður um raðmorðingja. Hann hefur falið sig þar í mannhafinu og vill ekki láta finna sig. Vill ekki horfast í augu við drauga fortíðarinnar. Hann heitir Harry Hole.

Brynhjarta er það ástand þegar manneskja er grafin undir svo miklu fargi að álagið á brjóstkassann er slíkt að hún nær ekki andanum. Með brynhjarta er hægt að lifa í fjórar mínútur.




ARIASMAN
eftir Tapio Koivukari

Ariasman – frásaga af hvalföngurum eftir Tapio Koivukari
er söguleg skáldsaga um Spánverjavígin þegar 31 baskneskur
skipbrotsmaður var veginn af vestfirskum bændum haustið 1615 undir
forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri.

Tveimur árum áður en
þessir atburðir urðu stendur ung stúlka, Kristrún að nafni, undir
Kaldbakshorni og skolar ull. Hún sér segl við sjóndeildarhring, ókunn
segl og heimamenn leggja á flótta undan útlendum sjóreyfurum, að því er
þeir halda. En komumenn eru friðsamir hvalfangarar og góður
kunningsskapur myndast á milli þeirra og heimamanna fyrir milligöngu
sóknarprestsins. Sjálfur Vestfjarðakóngurinn, Ari í Ögri, leggur blessun
sína yfir veru þeirra á Ströndum.

Saga Spánverjavíganna og
aðdraganda þeirra er hér rakin frá sjónarhorni bæði Íslendinga og Baska.
Martin de Villafranca er ungur og metnaðarfullur maður í sinni fyrstu
för sem hvalveiðikapteinn örlagasumarið 1615. Hann ávinnur sér brátt
traust og virðingu áhafnarinnar en samskiptin við heimamenn ganga
brösuglegar. Um borð er ungur piltur, aðstoðarbeykirinn Gartzia de
Aranburu, en leiðir hans og Kristrúnar liggja saman.

Skömmu fyrir
brottför veiðimannanna úr Reykjarfirði um haustið skellur á mikið
óveður og þá hefst atburðarás sem endar með þeim ósköpum sem enn eru
talin eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar.

Árið 2009 kom út á íslensku skáldsagan Yfir hafið og í steininn eftir Tapio Koivukari. Bókin hlaut prýðilegar viðtökur lesenda og afar lofsamlega dóma gagnrýnenda.


Ást í meinum

eftir Rúnar Helga Vignisson.

 
Rúnar Helgi Vignisson hefur sent frá sér 8. skáldverk sitt, Ást í meinum. Bókin geymir fimmtán nýjar smásögur sem tengjast allar efnislega – raða sér í svokallaðan sagnasveig – en þær eiga það sammerkt að fjalla um náin samskipti. Höfundur spyr áleitinna spurninga um hjónabandið, ástina, kynlíf, barneignir, lífsstíl og heilbrigði og ekki hvað síst um það að eldast saman. Ef um sjálfshjálparbók væri að ræða héti hún mögulega „Listin að þola makann“. Svo er hins vegar ekki, hér er um
listræn skrif að ræða þar sem tekist er á við lífið í öllum sínum fjölbreytileika, allt frá getnaði til dauða. Flestar sögurnar leiftra af kímni en þó er undirtónninn jafnan alvarlegur, enda gerast ótrúlegustu hlutir á langri lífsleið. Fólk getur verið býsna harðskeytt þegar það leitast við að eiga saman farsæla ævi.

Rúnar Helgi Vignisson er Ísfirðingur, fæddur 1959. Hann hefur sent frá sér fjölmargar bækur, jafnt skáldverk sem þýðingar, og verið verðlaunaður á báðum þeim sviðum. Undanfarin ár hefur hann haft umsjón með ritlistarnámi við Háskóla Íslands.


Urðarmáni

Urðarmáni
eftir Ólaf Ásgeir Steinþórsson. Í bókinni rifjar höfundur upp æsku sína og ungdómsár við Breiðafjörð um og uppúr miðri síðustu öld og skrifar m.a.:

Það voru forréttindi að hafa hlotið og notið þess að alast upp í Breiðafjarðareyjum. Enginn sem það hefur reynt gleymir nokkru sinni fjörulyktinni, fuglakliðnum, kvöldkyrrðinni og hinni algjöru þögn þegar haf og himinn runnu saman í tímalausa sumarnótt.

Í þessari bráðskemmtilegu endurminningabók bregður Ólafur Ásgeir Steinþórsson upp einstökum myndum af daglegu lífi og störfum fólks í Bjarneyjum á Breiðafirði síðustu árin sem eyjarnar voru í byggð. Frá Bjarneyjum er horfið vestur til Flateyjar og sagt frá töfraveröld æskunnar í leik og starfi. Að lokum er mannlífi og uppgangi í stórbænum Stykkishólmi lýst, þar sem fleiri lásu nótur en þeir voru sem kunnu faðirvorið og ungir menn sem áttu kærustur leiddu þær undir hendi um holóttar göturnar eins og þær væru úr postulíni frá Bing & Gröndal.

Höfundur segir frá af leiftrandi sagnagáfu svo að lesandi skellir einatt upp úr. Jafnframt er hér endurvakin veröld sem var á eyjunum við Breiðafjörð, veröld sem mun mörgum ókunn.

Urðarmáni er önnur bók Ólafs Ásgeirs, en árið 1995 kom út bók hans Ferð til fortíðar.



Töfrahöllin

Böðvar Guðmundsson
hefur sent frá sér fjölda bóka með ljóðum og sögum. Á sínum tíma vann hann hug og hjörtu landsmanna með einstökum skáldsögum sínum um íslenska vesturfara, Híbýli vindanna og Lífsins tré, en fyrir þá síðarnefndu hlaut Böðvar Íslensku bókmenntaverðlaunin. Sögur úr Síðunni og skáldsagan Enn er morgunn juku hróður þessa ástsæla rithöfundar enn. Í Töfrahöllinni, líkt og í fyrri skáldsögum, skapar Böðvar ljóslifandi persónur og fléttar örlög þeirra saman við sögu lands og þjóðar.

Í Töfrahöllinni er rakið sérkennilegt lífshlaup Jóseps Malmholms sem lifir tímana tvenna í íslensku samfélagi. Hann elst upp í skilnaðarfjölskyldu og stendur framan af í skugga bróður síns en nær sér á strik flegar örlögin grípa í taumana. Hér ber margt undarlegt við og stórskemmtilegar söguhetjur stíga á svið: Afi Jóseps sem kallar hlutina sínum réttu nöfnum, Símon bóndi á Litla-Háfi sem er engum líkur, auðmaðurinn og sjarmatröllið Kormákur Cooltran og dætur hans sem verða örlagavaldar í lífi Jóseps. Leiksviðið er öðru fremur veiðihús sem Kormákur byggir og gengur undir nafninu Töfrahöllin. Þar eiga sér stað afdrifaríkir atburðir.

Töfrahöllin er rúmar 400 blaðsíður.



AKRANES – milli fjalls og fjöru

Ljósmyndabók eftir Friðþjóf Helgason

Bókin er sú fjórða sem Friðþjófur gerir um sinn gamla heimabæ, sú fyrsta kom út fyrir réttum aldarfjórðungi. Sem fyrr hefur Friðþjófur náð að fanga svipmót bæjarins á líðandi stundu í glæsilegum og heillandi ljósmyndum. Í ávarpi Árna Múla Jónassonar, bæjarstjóra á Akranesi, í upphafi bókar segir m.a.:

„Góður ljósmyndari fangar mannlífið, umhverfið og náttúruna, svo að augnablikið lifir áfram. Þannig eru myndir Friðþjófs – blátt áfram og fullar af væntumþykju fyrir viðfangsefninu. Það er því ekki skrítið að mér finnist hann öðrum fremur ná að sýna okkur Akranes í réttu ljósi – milli fjalls og fjöru.“




Suðurglugginn
eftir Gyrði Elíasson.

Það má með sanni segja að Gyrðir sitji ekki auðum höndum þótt hann hafi tekið við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs á síðasta ári fyrir smásagnasafnið Milli trjánna. Fyrr á þessu ári sendi hann frá sér ljóðabókina Hér vex enginn sítrónuviður sem hlotið hefur frábærar viðtökur og nú kemur skáldsaga. Suðurglugginn er þrítugasta skáldverk Gyrðis sem kemur út á bók og hefur þó höfundurinn aðeins einn um fimmtugt. Jafnframt hafa komið út 17 bækur með þýðingum hans og eitt greinasafn. Um ágæti þessara verka er ekki deilt.


„Skáldsögur eru myllusteinn um háls höfundarins.“
Rithöfundur dvelur í sumarhúsi vinar síns í grennd við lítið þorp og glímir við að skrifa skáldsögu – verk sem stöðugt neitar að taka á sig þá mynd sem höfundurinn leitast við að skapa. Honum verður lítið úr verki og ritvélin stendur óhreyfð dögum saman. Þessi rithöfundur hefur lítil samskipti við annað fólk, og virðist hafa sætt sig við að einangrunarvist listamannsins verði ekki umflúin. Þótt ritstörfum miði hægt gefst lesendum einstakt tækifæri til að kynnast áhugaverðum og margbrotnum sögumanni og fólkinu í lífi hans.

Hér tekur Gyrðir Elíasson upp þráðinn þar sem frá var horfið í Sandárbókinni og spinnur nýja og áleitna sögu um hlutskipti listamannsins.



Bækur 11 - 20 af 221. Síða 2 af 23.
Fara á síðu
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |

Stúdíóið

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS