 |
 |
 |
| Skindauði |
 |
Thomas Enger
Fortíðin lætur blaðamanninn Henning Juul ekki í friði – fyrir tveimur árum missti hann son sinn í eldsvoða. Harmleikurinn hefur sett mark sitt á Henning, bæði á líkama og sál. fiegar hann loks snýr aftur til starfa þarf hann að berjast fyrir því að öðlast virðingu á ný sem blaðamaður – virðingu kolleganna, eiginkonunnar fyrrverandi og lögreglunnar.
Í tjaldi á Ekebergsléttunni finnst lík konu sem augljóslega hefur verið myrt. Henning Juul er falið að fjalla um málið og hann rekur þræði sem leiða hann á sífellt hættulegri brautir. Öfugt við lögregluna trúir hann ekki að málið sé eins einfalt og það virðist við fyrstu sýn. Og dauðs-föllin verða fleiri . . .
Thomas Enger er hratt rísandi stjarna á glæpasagnahimninum. Hjá Gyldendal útgáfurisanum var því lýst yfir að sennilega væri Skindauði besta handrit fyrstu bókar höfundar sem til þeirra hefði borist!
Skindauði, dauðadá: Ástand þar sem starfsemi líkamans er við lágmark og sjúklingurinn virðist dáinn. Ástandið er sjaldgæft og fái sjúklingurinn ekki rétta meðhöndlun mun það leiða hann til dauða.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Hefndargyðjan |
 |
Sara Blædel
Í miðri yfirheyrslu hringir síminn hjá lögreglukonunni Louise Rick. Það er fóstursonur hennar, Jónas: bekkjarpartí hefur snúist upp í hrylling þegar hópur ofbeldisfullra ræningja ryðst inn. Hin 12 ára gamla Signe hleypur af stað eftir hjálp en áður en Louise kemst á staðinn hefur orðið hræðilegt slys – Signe hefur orðið fyrir bíl og um nóttina deyr hún af áverkum sínum. Við dótturmissinn glatar móðir stúlkunnar jafnframt tilgangi lífsins. En er hún kannski ekki einungis fljökuð af sorg, heldur einnig hefndarþorsta? Við mannskæða íkveikju fær málið forgang hjá lögreglunni. Sporin liggja í margar áttir en eftir vísbendingu frá vinkonu sinni, Camillu Lind, er Louise sannfærð um að sannleikurinn er enn ósagður.
Hefndargyðjan er þriðja bókin um Louise Rick sem kemur út á íslensku.
Kallaðu mig prinsessu og Aldrei framar frjáls hafa vakið verðskuldaða athygli.
„Það kemur ekki á óvart að Sara Blædel skuli vera útnefnd okkar allra vinsælasti rithöfundur . . .“ Henrik Tjalve, Frederiksborg Amts Avis
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| SPRENGIVARGURINN |
 |
Liza Marklund
Þegar undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í Stokkhólmi stendur sem hæst springur sprengja í stúku nýja Ólympíuleikvangsins. Ein valda-mesta kona Svíþjóðar ferst í spreng-ingunni. Á meðan umfangs-mikil og áköf leit lögreglunnar að morð-ingjanum stendur yfir fer Annika Bengtzon, blaðamað-ur á Kvöld-blaðinu, að rannsaka málið og uppgötvar óvæntar tengingar sem aðrir virðast ekki hafa komið auga á. Þar með er lesandinn lagður af stað í æsispennandi för með þekktasta blaða-manni sænskra spennusagna.
Sprengivargurinn er meðal vinsælustu skáldsagna sem út hafa komið í Svíþjóð. Hún hlaut Poloni-verðlaunin 1998 sem besta sænska skáld-sagan eftir konu og var jafnframt valin besta fyrsta skáld-saga höf-undar sama ár. Bókin hlaut sænsku glæpa-sagna--verðlaunin árið 1998.
Sprengivargurinn kom fyrst út á íslensku 2001 en hefur verið ófáanleg um langa hríð og er því gefin út að nýju.
„Sprengivargurinn er ein besta glæpasaga síðustu ára á sama tíma og eftirminnileg mynd er dregin upp af lífi tveggja barna móður í krefjandi starfi í stórborginni.“ Dagens Nyheter
„Það er engin tilviljun að Liza Marklund er einn áhrifamesti og vinsælasti glæpasagnahöfundur samtímans.“ Patricia Cornwell
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| STÚDÍÓ SEX |
 |
Liza Marklund
Annika Bengtzon kemst í sumarafleysingar á Kvöldblaðinu og gerir sér vonir um fastráðningu. Hún fær ekki langan tíma til að venjast lífinu á blaðinu því lík af ungri stúlku sem hefur verið myrt finnst í kirkjugarði í borginni. Fórnarlambið er nektardansmær og grunur fellur á ráðherra í ríkisstjórninni. Annika Bengtzon fer að rýna í málið og veit að þetta er fréttin sem mun koma henni á kortið hjá blaðinu. Þræðirnir sem liggja að baki morðinu reynast flóknir og sá ógnvænlegi og ofbeldisfulli heimur kynlífsiðnaðarins sem Annika kynnist við rannsókn málsins hefur mikil áhrif á hana.
Stúdíó sex var fyrst gefin út á íslensku árið 2002 en hefur verið ófáanleg um langa hríð og er því gefin út að nýju.
„Annika Bengtzon er vítamínsprauta fyrir sænsku glæpasöguna.“ Svenska Dagbladet
„Svíþjóð hefur eignast nýja hetju!“ Der Spiegel
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| PARADÍS |
 |
Liza Marklund
Mikið óveður gengur yfir Svíþjóð og þegar því slotar finnast tveir menn skotnir til bana á hafnarbakka í Stokkhólmi. Sígar-ettu-farmur upp á tugi milljóna er horfinn og ung kona, Aida, hefur bjargað sér á flótta frá höfninni. Fleiri lík finnast og ljóst að þetta er ekkert venjulegt sakamál. Annika Bengtzon, blaðamaður á Kvöldblaðinu, kemur Aidu í samband við sam-tökin Paradís, sem gefa sig út fyrir að bjarga fólki sem er í lífshættu. Rannsókn málsins verður tækifæri Anniku til að ná fótfestu á ný í blaðamennskunni, en í einkalífinu gengur á ýmsu og að lokum stendur hún frammi fyrir erfiðustu ákvörð-un lífs síns.
Paradís kom fyrst út á íslensku 2003 en hefur nú verið gefin út að nýju.
„Það leikur enginn vafi á því að Liza Marklund er sér á parti. Hún skrifar snjallar sögur, skáldskapurinn er sannfærandi og viðhorf hennar til samfélagsins róttæk.“ Henning Mankell
„Liza Marklund er næsti stóri Norræni höfundurinn fyrir glæpa-sagnaaðdáendur að uppgötva. Bækur hennar bjóða upp á spennu, vel skrifuð plott, góða persónusköpun og einstakar svið-setningar. Njótið!“ Harlan Coben
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| HÚS ERU ALDREI EIN / BLACK SKY |
 |
eftir Nökkva Elíasson ljósmyndara og Aðalstein Ásberg Sigurðsson skáld.
Ljósmyndir Nökkva og ljóð Aðalsteins Ásbergs mynda sterka og hrífandi heild í þessari glæsilegu bók.
Viðfangsefnið – eyðibýli víðs vegar um Ísland – býr yfir miskunnarlausri fegurð hnignunar sem þeir fanga í myndir og orð með einstökum hætti. Bergmál horfinna tíma og þess lífs sem var á tvímælalaust erindi við nýja öld. Tregablandin ljóðin kallast á við áhrifamiklar myndir sem vakið hafa verðskuldaða athygli víða um heim, líkt og ljóðin sem þýdd hafa verið á fjölda tungumála. Allur texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku.
**** Páll Baldvin, Fréttatíminn
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Alltaf er Farmall fremstur |
 |
Ný bók eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri, höfund bókarinnar ...og svo kom Ferguson, kemur út 16. júlí 2011.
Alltaf er Farmall fremstur Sögur um Farmall-dráttarvélar og fleiri tæki frá International Harvester og hlut þeirra í framvindu landbúnaðar og þjóðlífs á Íslandi.
Hér heldur Bjarni áfram að skrá þróun vélvæðingar íslenskra sveita á síðustu öld með þeim einstaka hætti sem menn kynntust í bók hans um Ferguson dráttarvélarnar. Alltaf er Farmall fremstur er vegleg bók, ríkulega skreytt einstöku myndefni og á erindi til allra þeirra sem áhuga hafa á íslenskum landbúnaði og þróun íslensks samfélags á tímum mikilla breytinga og tæknivæðingar.
Bókin er gefin út í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Saga Akraness I. og II. bindi |
 |
Saga Akraness er 1100 síður í stóru broti í tveimur bindum, prýdd fjölda mynda og korta og ber sérstaklega að geta vandaðra örnefnakorta. Þetta tímamótaverk er ótæmandi brunnur upplýsinga um hvaðeina sem snertir sögu Akraness og varpar nýju ljósi á uppruna fólks í landnámi Bresasona. Í lýsingu á þróun og uppbyggingu samfélagsins eru settar fram nýjar hugmyndir sem varða sögu landsins alls.
Ef óskað er eftir raðgreiðslusamningi vinsamlegast hafið samband við forlagið.
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
| Bækur 61 - 70 af 217. Síða 7 af 22. |
|
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
|
|