FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN UNDIRHEIMAR
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Yfir hafið og í steininn
Í lok framhaldsstríðs Finnlands og Sovétríkjanna (1941-1944) var Finnum gert að skila aftur til Rússlands öllum Ingerlendingum sem komnir voru til landsins. Ingerlendingar voru finnskumælandi þjóðarbrot sem bjó í Rússlandi en fjöldi þeirra hafði flúið ofríki Stalíns og börðust margir hverj­ir í finnska hernum gegn Sovétríkjunum.

Ekki lögðu þó allir Ingerlendingar trúnað á að þeim yrði tekið opnum örmum í Rússlandi og reyndu með ýmsum ráðum að komast til annarra landa, þar á meðal Svíþjóðar, með aðstoð finnskra fiskimanna.
Yfir haf­ið og í steininn er saga þeirra.

Eins og við séum einhverjir meiriháttar bófar og glæpamenn, við sem höfum ekki gert annað en flytja fólk þangað sem það langaði að komast.

Yrjö Aaltonen fiskimaður


Rithöfundurinn og þýðandinn Tapio Koivukari (f. 1959) hefur notið sí­vaxandi athygli og vinsælda fyrir skáldsögur sínar um líf og örlög fólks­­ins í heimabyggð hans Rauma og á eyjunum útifyrir vesturströnd Finn­­lands. Hann er einstakur sögumaður sem segir frá atburðum og lífi fólks af óvenjulegu innsæi og hlýju en hefur jafnframt sérstaklega næmt auga fyrir skoplegum atvikum og háttalagi persónanna.

Eftir að hafa lokið guðfræðinámi kom Tapio til Íslands sem farandverka­maður, fyrst í ráðhúsgrunninum í Reykjavík og síðan við fiskverkun vestur á fjörðum. Í bókinni Óðinnin korpi (Hrafn Óðins) segir hann frá þeirri reynslu sinni sem og bjórdeginum mikla 1. mars 1989. Seinna starfaði hann sem smíðakennari á Ísafirði um þriggja ára skeið en á þeim tíma hóf hann að fást við þýðingar og hefur síðan orðið einn mikil­virkasti þýðandi íslenskra bókmennta á finnska tungu.

Meðal íslenskra rithöfunda sem Tapio hefur þýtt á finnsku eru Vigdís Grímsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Friðrik Erlingsson, Þórarinn Eldjárn, Einar Kárason og Guðbergur Bergsson.

Höfundur: Tapio Koivukari
Útgáfuár: 2009
Band: Innbundin
Verð: 4990,-
Tilboðsverð: 3990,-




Ástandsbarnið

Óheillakrákan

Kallaðu mig prinsessu

Þar sem sólin skín

Rauðbrystingur

Land tækifæranna - kilja
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS