|
|
 |
 |
 |
|
|
 Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana voru tilkynnt á dögunum. Þar hlaut bókin Hvernig ég kynntist fiskunum eftir Ota Pavel í þýðingu Gyrðis Elíassonar önnur verðlaun í flokki þýddra skáldverka.
Af þessu tilefni er ekki úr vegi að rifja upp ummæli um þessa bók sem féllu í Kiljunni í haust:
„Ótrúlega falleg bók.“ Kolbrún Bergþórsdóttir
„Þýðingarnar eru náttúrulega órtúlegar … gríðarlega auðugur og fallegur skáldskapur.“ Páll Baldvin Baldvinsson
Það er langt síðan ég hef lesið bók sem hefur hreyft jafn mikið við mér.“ Egill Helgason
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Gyrðir Elíasson var í dag tilnefndur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir ljóðasafnið Tunglið braust inn í húsið.
Bókin kom út í apríl í vor á fimmtugsafmæli þýðandans og seldist upp á nokkrum vikum. Annarri prentun var dreift í verslanir nú á haustmánuðum.
Uppheimar óska Gyrði Elíassyni til hamingju með tilnefninguna.
Tunglið braust inn í húsið er viðamikið safn ljóða eftir 36 skáld víðsvegar að úr heiminum. Það elsta, kínverska skáldið Tao Tsien, var uppi á fjórðu öld en það yngsta, bandaríska skáldkonan Jane Hirshfield, er fædd 1953.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Glóðheitar bækur og fjölbreytt dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó 12. og 13. nóvember
Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó. Í fyrsta sinn er haldin glæsileg bókamessa hérlendis þar sem íslenskir útgefendur kynna nýja titla sem koma út nú fyrir jólin. Um leið verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Iðnó báða dagana, bæði í stóra og litla sal. Einnig verður dagskrá í kaffihúsi Ráðhússins, Öndinni, og sögubíll Borgarbókasafnsins, Æringi, verður á svæðinu.
Meðal dagskráratriða í Iðnó má nefna „Græna sófann“, en þar fá ýmsir umsjónarmenn, svo sem Egill Helgason, Jórunn Sigurðardóttir og Druslubókadömurnar Kristín Svava Tómasdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Hildur Knútsdóttir, til sín góða gesti og spjalla um ólíkar bækur. Sigurlaug M. Jónasdóttir kynnir matgæðinga og matreiðslubækur, Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur ræðir við höfunda ævisagna sem byggja á rituðum heimildum og Jón Proppé listheimspekingur fer yfir íslenska listasögu á 50 mínútum. Leynifélagskonurnar Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir sjá síðan um metnaðarfulla dagskrá fyrir börn.
Að auki verður boðið upp á upplestur, jóga fyrir börn, barnanudd og föndursmiðju, að ógleymdri vísindastund með Ævari vísindamanni. Áhugafólki um stjörnuspeki gefst kostur á að hitta Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking, Kristín Tómasdóttir svarar spurningum stelpna frá A – Ö og svo mætti lengja telja. Kaffiveitingar verða á boðstólum í Iðnó og á Öndinni og gestir geta því átt notalega stund um leið og þeir kynna sér bókaútgáfu ársins í þessum tveimur byggingum við Tjörnina.
Nánari upplýsingar um messuna má sjá á vef Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO, www.bokmenntaborgin.is og þar er einnig hægt að nálgast ítarlega dagskrá.
Um leið vekur Félag íslenskra bókaútgefenda athygli á Bókatíðindum sem dreift verður inn á öll heimili landsins þessa dagana.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Skáldsaga eftir Sigrúnu Davíðsdóttur
Blaðakonan Hulda er búsett í London og fjallar á gagnrýninn hátt um umsvif íslenskra auðmanna á erlendri grund. Hún er komin vel á veg með bók um bankahrunið þegar hún lætur lífið í umferðarslysi. Eftirlifandi unnusti hennar, listamaðurinn og lögfræðingurinn Arnar, ákveður að halda rannsókn hennar áfram ásamt blaðamanninum Ragga, æsku-vini Huldu. Saman rekja þeir slóðir þeirra sem með ósvífnum viðskiptaháttum komu íslensku þjóðfélagi á heljarþröm. Á þeirri vegferð er ekki allt sem sýnist …
Sigrún Davíðsdóttir er landskunn fyrir pistla sína sem hún flytur hlustendum Spegilsins í Ríkisútvarpinu. Sýn hennar á íslenskt efnahagslíf er skörp, efnistökin vönduð og beinskeytt. Hér fær þekking hennar og reynsla notið sín til fulls í spennandi skáldsögu sem skrifuð er beint inn í íslenskan samtíma. Höfundur setur hlutina í samhengi sem er í senn óvænt, áleitið og sárt.
Samhengi hlutanna er önnur skáldsaga Sigrúnar Davíðsdóttur fyrir fullorðna lesendur, en hún hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 1989 fyrir bókina Silfur Egils og sendi frá sér skáldsöguna Feimnismál árið 2006.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 eftir Ísak Harðarson með myndskreytingum eftir Helga Þorgils Friðjónsson.
Í litlu hreiðri í fallegu tré í Hljómskálagarðinum klekjast út ungar, fjórir dúnmjúkir bræður, foreldrum sínum til mikillar gleði. Eitt fyrsta verkefnið sem ungi í hreiðri þarf að leysa er að finna nafnið sitt. En áður þarf hann að svara erfiðri spurningu: Til hvers eru fuglar? Eldri bræðrunum þremur tekst þetta en sá yngsti á ekki svar við spurningunni. Ungarnir vaxa og dafna en líf fjölskyldunnar er í uppnámi á meðan sá yngsti hefur ekki fengið nafn. Löng og ströng leitin fær þó loks óvæntan endi.
Ísak Harðarson segir hér, af sinni alkunnu stílfimi, hrífandi ævintýri sem á erindi til barna á öllum aldri. Söngur Guðsfuglsins er fyrsta barnabók Ísaks, sem var tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 fyrir ljóðabókina Rennur upp um nótt.
Helgi Þorgils Friðjónsson, einn okkar virtustu og þekktustu myndlistarmanna um áratuga skeið, myndskreytir bókina.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Skáldverk eftir Ara Trausta Guðmundsson.
11. október kom út hjá Uppheimum skáldverkið Sálumessa eftir Ara Trausta Guðmundsson. Ari Trausti hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir skáldverk sín. Hann hefur sent frá sér fjórar ljóðabækur og þrjár skáldsögur auk þess sem hann hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið 2002 fyrir sagnasafnið Vegalínur.
Í Sálumessu kristallast saga þjóðarinnar frá upphafi byggðar til okkar daga. Þær fimm tengdu frásagnir sem hér birtast eiga það sameiginlegt að greina frá merkum tímamótum í sögu okkar. Þáttaskil – átökin sem fylgja nýjum siðum í breyttu samfélagi – eru leiðarstefið sem leggur grunninn að eftirminnilegri hljómkviðu í þessu heilsteypta skáldverki.
Hér segir meðal annars af hnignun goðaveldisins á 12. öld og endalokum Þingeyraklausturs með siðaskiptum. Við kynnumst hugdirfsku og fórnum íslenskrar alþýðu við upphaf tæknialdar og dregin er upp mynd af þeim veruleika sem blasir við Íslendingum samtímans. Af samhenginu má ef til vill ráða hvers er að vænta af framtíðinni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Eftir Ota Pavel í þýðingu Gyrðis Elíassonar Þann 7. október 2011 kemur út bókin Hvernig ég kynntist fiskunum eftir Ota Pavel Hvernig ég kynntist fiskunum eftir tékkneska rithöfundinn Ota Pavel (1930–1973) er rómað safn samtengdra frásagna sem byggja á bernskuminningum höfundar. Verkið leikur á mörkum skáldsagna- og smásagnagerðar og lýsir með ljúfsárum hætti veröld sem var í sveitahéruðum Tékkóslóvakíu, áður en síðari heimsstyrjöldin skall á og landið var hernumið af Þjóðverjum. Hér segir af ævintýralegum veiðiferðum Poppers sölufulltrúa og Proseks ferjumanns, af vatnakörfum sem fóðraðir eru á maltkorni og dádýrshjörtum sem ruggað er í barnavögnum. En þegar stríðið brýst út, eru faðir og bræður hins unga sögumanns sendir í fangabúðir Þjóðverja. Og þá stendur upp á hann einan að færa björg í bú. GYRÐIR ELÍASSON Hvernig ég kynntist fiskunum er önnur bókin sem kemur út á árinu í þýðingu Gyrðis Elíassonar og átjánda bókin sem kemur út í þýðingu hans.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þann 7. október 2011 kemur út bókin Hausaveiðararnir eftir Norðmanninn Jo Nesbø
Roger Brown er vel settur: Glæsilegt einbýlishús í Osló, eiginkonan Diana er stórkostleg og hann er ekki bara farsæll í starfi hausaveiarans, sem leitar uppi rétta fólkið í æðstu stöður norskra stórfyrirtækja, heldur óumdeilanlega sá besti. En þótt launin séu há duga þau engan veginn fyrir lífsstílnum sem Roger telur nauðsynlegan til að halda í konuna sem hann elskar. Til að drýgja tekjurnar hefur hann komið sér upp öðrum og skuggalegri starfsferli og gert listaverkaþjófnað að list.
Í gegnum Diönu kynnist Roger Hollendingnum Clas Greve, sem virðist hinn fullkomni kostur í forstjórastöðuna sem Roger þarf að manna, auk þess að hafa komist yfir óhemjudýrmætt Rubens-verk. Nái Roger að stela málverkinu verður hann á grænni grein. En Clas Greve hefur komist yfir fleira en myndlist og í einu vetfangi er grundvellinum kippt undan tilveru Rogers, sem þarf að glíma við aðstæður sem gera allar fjárhagsáhyggjur léttvægar.
Í Hausveiðurunum er lesandanum kastað vægðarlaust inn í tryllta skuggaveröld uns hann stendur á öndinni. Nesbø lætur gamminn geysa á sinn óviðjafnanlega hátt.
Ingunn Ásdísardóttir þýddi.
Hausaveiðararnir eru þriðja bókin eftir Nesbø sem kemur út á íslensku á árinu. Hinar tvær eru Djöflastjarnan og Frelsarinn. Áður höfðu komið út Rauðbrystingur og Nemesis. Nú í októberbyrjun er Jo Nesbø mest seldi rithöfundurinn í bókabúðum Eymundsson frá áramótum, enda vinsældir hans gífurlegar og hratt vaxandi, hér sem annars staðar. hljodbok.is gefur Hausaveiðarana út á hljóðbók á sama tíma og bókin kemur út. Þann 21. október mun svo Sena frumsýna nýja norska bíómynd sem gerð er eftir þessari bók. Myndin hefur hlotið frábæra dóma frá því hún var frumsýnd í Noregi fyrir skömmu og er þegar sú norsk kvikmynd sem mest hefur selst til sýninga út um heim. Aðstandendur hennar eru þeir sömu og útfærðu Millenium-þríleik Steigs Larssons fyrir hvíta tjaldið.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Henry „Hank“ Chinaski (65) vill helst fara á veðhlaupabrautina á daginn og fitla við ljóðagerð á kvöldin, gjarnan með vínflösku við hönd og útvarpið stillt á stöð sem leikur klassíska tónlist. Skrifa í mesta lagi smásögu. Skáldskapurinn heldur honum óbrjáluðum, veðreiðarnar minna hann á að hafa lífið einfalt – þannig komi sannleikurinn í ljós, þannig komist hlutirnir í verk. Nú hefur hann hins vegar verið ráðinn til að skrifa kvikmyndahandrit. Hvað er á seyði? Hefur Hollywood tekist að læsa í hann klónum? Er hann dæmdur og glataður, orðinn hluti af þeirri peningamaskínu sem hann hefur fyrirlitið allt sitt líf?
Charles Bukowski (1920-1994) var einn af áhugaverðari rithöfundum tuttugustu aldar, ótvíræður hæfileikamaður og stílisti en umdeildur vegna drykkjuskapar og óheflaðs orðfæris. Hann sendi frá sér tugi ljóðabóka og birti mikinn fjölda smásagna, auk þess að skrifa sex skáldsögur. Hollywood er sú fimmta í röð þeirra, kom út 1989, og er sjálfsævisöguleg eins og flest verka Bukowskis. Hér segir hann frá því – í gegnum hliðarsjálfið Hank Chinaski – þegar hann tók að sér að skrifa kvikmyndahandrit í fyrsta og eina skiptið, að myndinni Barfly. Það má því segja að Hollywood sé eins konar fæðingarsaga bíómyndar; saga sem Bukowski skrifar um Bukowski að skrifa handrit að mynd sem fjallar um Bukowski.
Hjördís Sigurðardóttir þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin barnabókin Saga úr síldarfirði eftir Örlyg Kristfinnsson í samstarfi Uppheima og Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Saga úr síldarfirði segir frá Sigga sem 12 ára gamall flyst ásamt fjölskyldu sinni til Siglufjarðar í upphafi síðustu aldar. Þar bíður ný framtíð þeirra sem áður sáu ekki aðra leið út úr ógöngum og sárri fátækt en að flytja til Vesturheims í von um betra líf. Tilvera Sigga tekur stakkaskiptum – en það er ekki einfalt að byrja upp á nýtt á ókunnum stað. Þessi örlagasaga byggir á raunverulegum atburðum sem lesa má um á vef Síldarminjasafns Íslands.
 Örlygur Kristfinnsson, myndlistarmaður og safnstjóri Síldarminjasafnsins, segir í þessari bók sögu sem kemur okkur við. Hann segir okkur hvernig síldarbær varð til – iðandi af lífi með alþjóðlegum blæ – þar sem silfur hafsins var gjaldmiðillinn sem greiddi dugmiklu alþúðufólki leið úr örbirgð til bjargálna og breytti íslensku samfélagi á undraskömmum tíma.
Höfundur myndskreytir bókina sjálfur með glæsilegum vatnslitamyndum sem fullkomna verkið og tendra í frásögninni liti og líf.
Formleg útgáfa bókarinnar var í gær, 19. september, í Síldarminjasafninu. Þar er uppi sýning á myndum Örlygs sem skreyta bókina.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í dag, 8. september, kemur út í Finnlandi ný söguleg skáldsaga eftir rithöfundinn og íslenskuþýðandann Tapio Koivukari. Bókin fjallar um Spánverjavígin á Vestfjörðum á 1615, en þá var 31 baskneskur skipsbrotsmaður veginn af vestfirskum bændum undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri. Margir hafa talið þessi víg ein helstu grimmdarverk Íslandssögunnar.
Bók Tapios heitir Ariasman – kertomus valaanpyytäjistä eða „Ariasman – frásaga um hvalfangara“. Ariasman var nafnið sem Baskarnir kölluðu Ara sýslumann. Í bókinni er sagt frá veiðiferðum Baska til Íslands og atburðarrásinni frá báðum hliðum, og blandar höfundurinn heimildarvinnu, tilgátum og skáldskap saman.
 Sagan um Ariasman mun koma út á íslensku hjá Uppheimum haustið 2012 í þýðingu Sigurðar Karlssonar. Sigurður hefur áður þýtt eina bóka Tapios, Yfir hafið og inn í steininn, sem kom út 2009 og vakti mikla athygli og hlaut afar lofsamlega dóma. Sigurður Karlsson var tilnefndur til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir þá bók.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 kemur út á morgun, 7. september Mannorð er níunda skáldsaga Bjarna Bjarnasonar sem undirstrikar með þessu áleitna verki sérstöðu sína á íslenskum skáldabekk. Bjarni hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín.
Bjarni verður þátttakandi í Bókmenntahátíð í Reykjavík og mun taka þátt í upplestri í Iðnó föstudaginn 9. september.
Um Mannorð:
Hvað kostar óflekkað mannorð?
Það er ekki að ástæðulausu sem Starkaður Leví veltir þessari spurningu fyrir sér, enda hefur hann farið huldu höfði frá bankahruni, úthrópaður og eftirlýstur fyrir sinn hlut í íslenska efnahagsundrinu. Niðurstaðan er sú að eina leiðin fyrir hann til að öðlast aftur þátttökurétt í samfélaginu sé að verða sér úti um nýtt mannorð – hvað sem það kostar. Þar með fer af stað mögnuð atburðarás sem krefur lesendann um fylgd allt til enda.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Uppheimar standa fyrir Kiljumarkaði í húsnæði sínu við Stórhöfða í Reykjavík (beint á móti Bílsölu Guðfinns) í dag og næstu daga.
Markaðurinn hefst fimmtudaginnn 25. ágúst og stendur fram á sunnudag, klukkan 13:00 til 17:00 alla dagana.
Á Kiljumarkaðnum býðst fólki að kaupa splunkunýjar kiljur frá Upp- og Undirheimum janft og eldri bækur á sérlega hagstæðu verði, frá kr. 499-.
 Í dag, fimmtudag, mun danski rithöfundurinn Sara Blædel, höfundur Kallaðu mig prinsessu, Aldrei framar frjáls og Hefndagyðjunnar sem kom út fyrir skemmstu, verða á staðnum og spjalla við gesti og árita bækur sínar.
Laugardaginn 27. ágúst verður svo hinn kunni glæpasagnahöfundur Ævar Örn Jósepsson á staðnum, áritar bækur og ræðir við gesti.
Auk norrænna glæpasagna er úrval íslenskra og þýddra fagurbókmennta í boði; ljóðabóka, smásagna og skáldverka.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Milli trjánna, smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, kom út í Danmörk í dag hjá forlaginu Torgard í þýðingu Eric Skyum-Nielsen. Eins og kunnugt er hlýtur Gyrðir Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókina en verðlaunin verða einmitt afhent í Kaupmannahöfn í nóvemberbyrjun.
Danskir gagnrýnendur eru stórhrifnir af verkinu, og er víða fjallað um bókina í blöðum dagsins: Jorgen Johansen hjá Berlingske gefur því fullt hús, 6 stjörnur og bókin fær 5 stjörnur í Jyllands-Posten. Thomas Bredsdorff, gagnrýnandi Politiken, fjallaði mjög lofsamlega um bókina skömmu áður en tilkynnt var um verðlaunin og taldi að hún yrði vel að þeim komin – aðrir danskir gagnrýnendur eru greinilega sama sinnis.
Það vakti athygli í dönskum fjölmiðlum á sínum tíma þegar í ljós kom að Gyrðir valdi þetta litla forlag, Torgard, en margir stærri útgefendur sýndu verkinu áhuga.
Gyrðir verður gestur á bókmenntahátíð Louisiana-safnsins í Danmörk nú í byrjun september ásamt mörgum fleiri þekktum höfundum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þau fáheyrðu tíðindi urðu í gær að á metsölulista Eymundsson yfir seld skáldverk dagana 3.-8. ágúst sl. voru fjórir titlar eftir norska glæpasagnahöfundinn Jo Nesbø á listanum – allar bækur hans sem út eru komnar á íslensku. Þær eru: Rauðbrystingur, Nemesis, Djöflastjarnan og Freslarinn. Sú síðastnefnda kom út núna í lok ágúst og hefur setið í fyrsta sæti metsölulistans síðan. Bjarni Gunnarsson og Ingunn Ásdísardóttir skipta með sér verkum við að þýða bækur Nesbø á íslensku.
Ljósmynd: Håkon Eikesdal
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Fjórða bók Jo Nesbø á íslensku, Frelsarinn, rauk beint í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson örfáum dögum eftir að hún kom út. Sem raunar allar hans bækur til þessa hafa einnig gert. Það vekur jafnframt athygli að á heildarlista Eymundsson yfir tíu mest seldu bækur í öllum flokkum eru núna fimm bækur frá Upp- og Undirheimum, helmingur listans. Auk Frelsarans eru þetta nýju glæpasögurnar Ófreskjan eftir Roslund og Hellström, Hefndargyðjan eftir Söru Blædel, Skindauði eftir Thomas Enger og loks Nemesis sem einnig er eftir Jo Nesbø.
Á listanum yfir 15 mest seldu skáldverk í Eymundsson síðustu viku eru hvorki meira né minna en átta bækur frá Uppheimum! Auk þeirra sem áður eru taldar er þar að finna Rauðbrysting eftir títtnefndan Jo Nesbø, Predikarinn eftir Camillu Läckberg og verðlaunabók Gyrðis Elíassonar, Milli trjánna.
Og ekki má gleyma Eyjafjallajökli, bók Ara Trausta Guðmundssonar og Ragnars Th. Sigurðssonar, sem hefur setið á metsölulista Eymundsson í hverri einustu viku síðan hún kom út í byrjun júní á síðasta ári.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Sögur um Farmall-dráttarvélar og fleiri tæki frá International Harvester og hlut þeirra í framvindu landbúnaðar og þjóðlífs á Íslandi.
Hér heldur Bjarni Guðmundsson áfram að skrá þróun vélvæðingar íslenskra sveita á síðustu öld með þeim einstaka hætti sem menn kynntust í bók hans um Ferguson dráttarvélarnar, ...og svo kom Ferguson.
Alltaf er Farmall fremstur er vegleg bók, ríkulega skreytt einstöku myndefni og á erindi til allra þeirra sem áhuga hafa á íslenskum landbúnaði og þróun íslensks samfélags á tímum mikilla breytinga og tæknivæðingar.
Bókin er gefin út í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þetta er 11 bókin en fyrsta Árbókin kom út árið 2001.
Fastir þættir í Árbók Akurnesinga eru ítarlegir og ríkulega myndskreyttir frétta- og íþróttaannálar. Í bókinni eru viðtöl við Akurnesinga sem starfað hafa erlendis. Ýmsar frásagnir og myndaþættir ásamt æviágripum og myndum af Akurnesingum sem jarðsungnir eru frá Akraneskirkju á ári hverju.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Jo Nesbø
Á Egertorgi í miðborg Oslóar er meðlimur Hjálpræðishersins skotinn til bana af manni úr áheyrendahópnum. Blaða- ljósmyndari hefur náð myndum af grunsamlegum manni en Beate Lønn, sérfræðingur lögreglunnar í að þekkja andlit, ruglast í ríminu því ásýnd mannsins virðist breytast frá einni mynd til annarrar. Rannsóknarlögreglumaðurinn Harry Hole leitar þessa andlitslausa morðingja og meðan Oslóarbúar óska hver öðrum gleðilegra jóla verða stokkfrosin strætin að vígvelli þar sem barist er upp á líf og dauða. Einkum dauða. FRELSARINN var tilnefnd til hinna virtu ensku glæpasagnaverðlauna, CWA International Dagger, 2009.
FRELSARINN er fjórða bók JO NESBØ sem kemur út á íslensku. Bækur hans hafa slegið eftirminnilega í gegn hérlendis, líkt og um heim allan, því JO NESBØ hefur átt gríðarlegum vinsældum að fagna á síðustu árum og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Bækur hans eru gefnar út í tugum landa og hafa selst í milljónum eintaka.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Thomas Enger
Fortíðin lætur blaðamanninn Henning Juul ekki í friði – fyrir tveimur árum missti hann son sinn í eldsvoða. Harmleikurinn hefur sett mark sitt á Henning, bæði á líkama og sál. Þegar hann loks snýr aftur til starfa þarf hann að berjast fyrir því að öðlast virðingu á ný sem blaðamaður – virðingu kolleganna, eiginkonunnar fyrrverandi og lögreglunnar.
Í tjaldi á Ekebergsléttunni finnst lík konu sem augljóslega hefur verið myrt. Henning Juul er falið að fjalla um málið og hann rekur þræði sem leiða hann á sífellt hættulegri brautir. Öfugt við lögregluna trúir hann ekki að málið sé eins einfalt og það virðist við fyrstu sýn. Og dauðs-föllin verða fleiri . . .
Thomas Enger er hratt rísandi stjarna á glæpasagnahimninum. Hjá Gyldendal útgáfurisanum var því lýst yfir að sennilega væri Skindauði besta handrit fyrstu bókar höfundar sem til þeirra hefði borist!
Skindauði, dauðadá: Ástand þar sem starfsemi líkamans er við lágmark og sjúklingurinn virðist dáinn. Ástandið er sjaldgæft og fái sjúklingurinn ekki rétta meðhöndlun mun það leiða hann til dauða.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Roslund & Hellström
Tvö stúlkubörn finnast látin í kjallarageymslu. Fjórum árum síðar tekst banamanni þeirra að flýja meðan á fangaflutningi stendur og lögreglan er ekki í neinum vafa um að hann muni myrða á ný.
Í sænskum smábæ kemur faðir óvenju seint með dóttur sína á leikskólann og örfáum klukkustundum síðar finnst hún látin og svívirt. Þegar lögreglan virðist komin í þrot grípur faðir fórnarlambsins til sinna ráða. Fyrr en varir hefur málið undið svo upp á sig að það varðar alla þjóðina . . .
Ófreskjan er óhugnanlega spennandi glæpasaga sem spyr lesandann mikilvægra og óvæginna spurninga um það hvers líf sé dýrmætast.
Ófreskjan er fyrsta glæpasaga félaganna Roslunds og Hellströms og hefur, líkt og síðari bækur þeirra, farið sigurför um heiminn. Bókin hlaut Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin, 2005 sem besta norræna glæpasagan.
„Í glæpasögur sínar flétta Roslund og hellström hárbeitta þjóðfélagsgagnrýni – sterka, brýna og æsispennandi.“ Liza Marklund
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Sara Blædel
Í miðri yfirheyrslu hringir síminn hjá lögreglukonunni Louise Rick. Það er fóstursonur hennar, Jónas: bekkjarpartí hefur snúist upp í hrylling þegar hópur ofbeldisfullra ræningja ryðst inn. Hin 12 ára gamla Signe hleypur af stað eftir hjálp en áður en Louise kemst á staðinn hefur orðið hræðilegt slys – Signe hefur orðið fyrir bíl og um nóttina deyr hún af áverkum sínum. Við dótturmissinn glatar móðir stúlkunnar jafnframt tilgangi lífsins. En er hún kannski ekki einungis fljökuð af sorg, heldur einnig hefndarþorsta? Við mannskæða íkveikju fær málið forgang hjá lögreglunni. Sporin liggja í margar áttir en eftir vísbendingu frá vinkonu sinni, Camillu Lind, er Louise sannfærð um að sannleikurinn er enn ósagður.
Hefndargyðjan er þriðja bókin um Louise Rick sem kemur út á íslensku.
Kallaðu mig prinsessu og Aldrei framar frjáls hafa vakið verðskuldaða athygli.
„Það kemur ekki á óvart að Sara Blædel skuli vera útnefnd okkar allra vinsælasti rithöfundur . . .“ Henrik Tjalve, Frederiksborg Amts Avis
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ljósmyndir Nökkva Elíassonar og ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar
Í dag kemur út hjá Uppheimum bókin HÚS ERU ALDREI EIN / BLACK SKY eftir Nökkva Elíasson og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Bókin er 128 síður og allur texti bæði á íslensku og ensku.
Ljósmyndir Nökkva Elíassonar og ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar mynda sterka og hrífandi heild í þessari glæsilegu bók.
Viðfangsefnið – eyðibýli víðs vegar um Ísland – býr yfir miskunnarlausri fegurð hnignunar sem þeir fanga í myndir og orð með einstökum hætti. Bergmál horfinna tíma og þess lífs sem var á tvímælalaust erindi við nýja öld. Tregablandin ljóðin kallast á við áhrifamiklar myndir sem vakið hafa verðskuldaða athygli víða um heim, líkt og ljóðin sem þýdd hafa verið á fjölda tungumála.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|

Sprengivargurinn Þegar undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í Stokkhólmi stendur sem hæst springur sprengja í stúku nýja Ólympíuleikvangsins. Ein valdamesta kona Svíþjóðar ferst í sprengingunni. Á meðan umfangsmikil og áköf leit lögreglunnar að morðingjanum stendur yfir fer Annika Bengtzon, blaðamaður á Kvöldblaðinu, að rannsaka málið og uppgötvar óvæntar tengingar sem aðrir virðast ekki hafa komið auga á.
 Stúdíó Sex Annika Bengtzon kemst í sumarafleysingar á Kvöldblaðinu og gerir sér vonir um fastráðningu. Hún fær ekki langan tíma til að venjast lífinu á blaðinu því lík af ungri stúlku sem hefur verið myrt finnst í kirkjugarði í borginni. Fórnarlambið er nektardansmær og grunur fellur áráðherra í ríkisstjórninni. Annika Bengtzon fer að rýna í málið og veit að þetta er fréttin sem mun koma henni á kortið hjá blaðinu. Þræðirnir sem liggja að baki morðinu reynast flóknir og sá ógnvænlegi og ofbeldisfulli heimur kynlífsiðnaðarins sem Annika kynnist við rannsókn málsins hefur mikil áhrif á hana.
 Paradís Mikið óveður gengur yfir Svíþjóð og þegar því slotar finnast tveir menn skotnir til bana á hafnarbakka í Stokkhólmi. Sígarettufarmur upp á tugi milljóna er horfinn og ung kona, Aida, hefur bjargað sér á flótta frá höfninni. Fleiri lík finnast og ljóst að þetta er ekkert venjulegt sakamál. Annika Bengtzon, blaðamaður á Kvöldblaðinu, kemur Aidu í samband við samtökin Paradís, sem gefa sig út fyrir að bjarga fólki sem er í lífshættu. Rannsókn málsins verður tækifæri Anniku til að ná fótfestu á ný í blaðamennskunni, en í einkalífinu gengur á ýmsu og að lokum stendur hún frammi fyrir erfiðustu ákvörðun lífs síns.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þann 19. maí sl. var haldin útgáfuhátíð í Bókasafninu á Akranesi í tilefni af útgáfu á fyrstu tveimur bindum af Sögu Akraness eftir Gunnlaug Haraldsson. Útgefandi er bókaforlagið Uppheimar á Akranesi. Bæjarbúar fjölmenntu á samkomuna þar sem Árni Múli Jónasson bæjarstjóri tók við fyrstu eintökunum úr hendi Kristjáns Kristjánssonar útgefanda. Árni Múli sagðist fagna útkomu verksins, það væri mikill fróðleiksbrunnur sem ætti alls ekki að byrgja og sérstaklega ætti að leyfa börnunum að að detta ofan í hann! Að loknum stuttum ávörpum Jóns Gunnlaugssonar formanns ritnefndar um Sögu Akraness og Sveins Kristinssonar forseta bæjarstjórnar var fulltrúum stofnana og skóla á Akranesi afhent eintök að gjöf.
Bindin tvö eru samtals 1.100 síður í stóru broti og prýdd fjölda mynda og korta.
Fyrsta bindið spannar tímabilið frá landnámstíð til 1700. Sögusviðið er landnám Ketils og Þormóðs Bresasona. Sérstaklega ber að nefna fyrsta kafla verksins, Örnefni og búsetuminjar í landnámi Bresason, en þar er svæðinu frá Katanesi og út á Skaga, allt norðurfyrir að Stóru-Fellsöxl lýst. Þúsundum örnefna og upplýsingum um búsetuminjar er þar haldið til haga fyrir komandi kynslóðir.
Átjándu öldinni eru gerð skil í öðru bindinu. Uppbygging sjávarútvegsins og sjósókn Akurnesinga myndar þar ákveðna þungamiðju, enda lykilinn að þróun byggðar og mannlífs. Bindið í heild geymir yfirgripsmikla og þaulunna lýsingu á samfélagi bænda og sjómanna á átakatímum þegar Akranes byggðist upp.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Við óskum Akurnesingum nær og fjær til hamingju með daginn. Kl. 16-18 í dag er boðið til útgáfuhátíðar á Sögu Akraness eftir Gunnlaug Haraldsson í Bókasafninu á Akranesi. Þar verður bókin sýnd og kynnt, lifandi tónlist og veitingar.
Allir velkomnir og Skagamenn hvattir til að mæta.
Saga Akraness er stórvirki sem stendur undir nafni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Um miðjan júní 2011 kemur út bókin Hús eru aldrei ein eftir Nökkva Elíasson ljósmyndara og Aðalstein Ásberg Sigurðsson skáld.
Ljósmyndir Nökkva og ljóð Aðalsteins Ásbergs mynda sterka og hrífandi heild í þessari glæsilegu bók.
Viðfangsefnið – eyðibýli víðs vegar um Ísland – býr yfir miskunnarlausri fegurð hnignunar sem þeir fanga í myndir og orð með einstökum hætti. Bergmál horfinna tíma og þess lífs sem var á tvímælalaust erindi við nýja öld. Tregablandin ljóðin kallast á við áhrifamiklar myndir sem vakið hafa verðskuldaða athygli víða um heim, líkt og ljóðin sem þýdd hafa verið á fjölda tungumála. Allur texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku.
Nú gefst kostur á að kaupa þessa fallegu bók í forsölu á sérstöku útgáfutilboði.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Á HAGSTÆÐU TILBOÐI Í FORSÖLU
Ný bók eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri, höfund bókarinnar ...og svo kom Ferguson, kemur út 16. júlí 2011.
Alltaf er Farmall fremstur Sögur um Farmall-dráttarvélar og fleiri tæki frá International Harvester og hlut þeirra í framvindu landbúnaðar og þjóðlífs á Íslandi.
Hér heldur Bjarni áfram að skrá þróun vélvæðingar íslenskra sveita á síðustu öld með þeim einstaka hætti sem menn kynntust í bók hans um Ferguson dráttarvélarnar. Alltaf er Farmall fremstur er vegleg bók, ríkulega skreytt einstöku myndefni og á erindi til allra þeirra sem áhuga hafa á íslenskum landbúnaði og þróun íslensks samfélags á tímum mikilla breytinga og tæknivæðingar.
Bókin er gefin út í samstarfi við Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri.
Uppheimar bjóða nú þessa merku bók í forsölu á einkar hagstæðu verði fram að útgáfu hennar á Hvanneyri þann 16. júlí 2011.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Blindir fiskar Önnur ljóðabók Magnúsar Sigurðssonar. Fyrir þá fyrstu, Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu, hlaut Magnús Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2008.
 Höfuð drekans á vatninu Ellefta ljóðabók Guðbrands Siglaugssonar. Hinar tíu komu út á árabilinu 1977 til 2007. Hér tifar tíminn, leikur sér ljóðið á meðan hafið hlustar.

Kafbátakórinn Steinunn G. Helgadóttir vakti verðskuldaða athygli er hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2011 fyrir ljóðið Kaf . Steinunn, sem þekktust er fyrir störf sín að myndlist, stígur hér fram sem þroskað skáld. Kafbátakórinn er fyrsta ljóðabók hennar.

Marlene og ég Þriðja ljóðabók Gunnars M. G. Fyrsta bók hans, Skimað út, kom út árið 2007 og var fylgt eftir með bókinni Milli barna 2009.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 HUNDGÁ ÚR ANNARRI SVEIT er fyrsta ljóðabók Eyþórs Árnasonar. Ný prentun. Á bókarkápu segir: Að lesa verðlaunabókina Hundgá úr annarri sveit er ekki ólíkt því að fara með veiðistöng út í íslenska nátturu og renna fyrir silung. Ljóðmálið streymir fram eins og tært vatn, lesandinn finnur fyrir nærveru fiska undir niðri og kastar út agninu. Að sjálfsögðu bítur á og smám saman hleðst aflinn upp á bakkann. En eins og í öllum góðum veiðiferðum er það ekki aflinn sem mestu máli skiptir, heldur ferðin sjálf og snertingin við umhverfið - náttúruna.
Eyþór hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2009 fyrir bókina.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
NÁTTBÁL eftir Johan Theorin
Líkt og Hvarfið er Náttbál ógleymanleg lesning; allt í senn sakamálasaga, draugasaga og fjölskyldudrama þar sem sérkennilegar persónur og heillandi umhverfi sameinast í harmræna og spennandi fléttu. Náttbál, önnur skáldsaga Johans Theorin, hefur hlotið einróma lof og verið þýdd á fjölda tungumála. Bókin hlaut m.a. Norrænu glæpasagnaverðlaunin, Glerlykilinn, 2009.
SUMARDAUÐINN eftir Mons Kallentoft
Sumardauðinn, önnur bókin um Malin Fors, segir áhrifamikla sögu af gæfulausri ást og kolsvartri illsku – og skelfingunni þegar ógnin beinist að því sem Malin Fors stendur hjarta næst . . .
Mons Kallentoft (f. 1968) er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svía og bækur hans um Malin Fors njóta mikillar hylli. Hann vakti verðskuldaða athygli þegar fyrsta bók hans á íslensku, Vetrarblóð, kom út 2010 og hlaut frábærar viðtökur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ný bók frá Camillu Läckberg, Morð og möndlulykt er komin í verslanir!
Morð og möndlulykt er heillandi nóvella í anda Agöthu Christie. Camilla Läckberg er einn vinsælasti glæpasagnahöfundurinn á Íslandi og víðar. Hún er meðal mest lesnu rithöfunda Evrópu og bækur hennar eru gefnar út um allan heim.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin bókin Hinir dauðu eftir Vidar Sundstøl. Bókin er beint framhald Lands draumanna sem kom út á síðasta ári og markaði upphaf Minnesota-þríleiksins sem mun svo lokast á komandi hausti með þriðju bókinni um Lance Hansen og fólkið á Norðurströnd Lake Superior, Hröfnunum. Kristín R. Thorlacius þýðir bækur Sundstøls.
 Í dag, 16. mars, kemur svo út Djöflastjarnan eftir Jo Nesbø, en eftir hann hafa þegar komið út bækurnar Rauðbrystingur og Nemesis á íslensku og slegið eftirminnilega í gegn. Nesbø er hratt rísandi stórsjarna í heiminum og um þessar mundir er verið að vinna að tveimur kvikmyndum eftir bókum hans. Harry Hole, söguhetja bókanna, er eftirminnilegur karakter sem heillar alla sem honum kynnast. Bjarni Gunnarsson þýðir Nesbø á íslensku.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Þessa dagana er haldinn árlegur bókamarkaður í Perlunni þar sem hægt er í að gera góð kaup. Í tilefni þess höfum við lækkað verð á völdum kiljum hér á vefnum og bjóðum þær á kr. 1.490 á meðan markaðurinn er í gangi. Smellið á VEFVERSLUN hér að ofan og þá finnið þið tilboðsbækurnar undir flokknum Bókamarkaðstilboð á kiljum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í liðinni viku varð ljóst að Ævar Örn Jósepsson flytti sig um set milli útgefenda í Danmörku. Forlagið LIndhart og Ringhof gáfu út Blóðberg og Sá yðar sem syndlaus er en það verður hið gamalgróna forlag KLIM í Árósum sem mun gefa út Land tækifæranna. Meðal þekktra glæpasagnahöfunda sem KLIM gefur út má nefna Ian Rankin og Elmore Leonard. Útgefandi Ævars Arnar í Þýskalandi, Random House, hefur þegar tryggt sér útgáfuréttinn á Landi tækifæranna en í júlí í sumar kemur út Sá yðar sem syndlaus er. Fimm þúsund kynningareintökum var dreift á aðila innan þýska bókabransans í haust sem leið og ljóst að þar á bæ ætla menn sér stóra hluti með verk Ævars Arnar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þýska forlagið Klett-Cotta hefur keypt útgáfuréttinn á Endurkomu Maríu eftir Bjarna Bjarnason. Bókin hefur komið út á arabísku hjá forlagi í Karó í Egyptalandi og væntanlega er útgáfa á kúrdísku. Michael Zöllner útgáfustjóri Klett-Cotta segir bókina bæði sérkennilega og fyndna og hann hafi lesið hana í striklotu. "Okkur finnst hún passa vel inn í línuna hjá okkur með framsæknum bókmenntum," segir Michael Zöllner en þess má geta að Klett-Cotta er útgefandi Hallgríms Helgasonar í Þýskalandi. Upppheimar gáfu verkið út á ensku árið 2008 en skáldsagan kom upphaflega út hjá Ormstungu árið 2000 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Uppheimar óska Ingimar Sveinssyni til hamingju með tilnefningu til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir bókina Hrossafræði Ingimars. Jafnframt óskum við öllum tilnefndum höfundum til hamingju.
Hrossafræði Ingimars er glæsilegt grundvallarrit um hesta og hestamennsku. Bókin er í stóru broti og skreytt hundruðum mynda. Hrossafræði Ingimars er því miður ófáanleg sem stendur, þar sem hún er uppseld. Önnur prentun bókarinnar er væntanleg innan skamms.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Uppheimar hafa tekið að sér að annast útgáfu á Sögu Akraness eftir Gunnlaug Haraldsson. Skrifað var undir samning við Akraneskaupstað um útgáfuna þriðjudaginn 18. janúar en við sama tækifæri afhenti höfundurinn Árna Múla Jónassyni bæjarstjóra fyrstu tvö bindin af verkinu og eru þau fullbúin til prentunar. Saga Akraness er stórglæsilegt rit sem á eftir að vekja mikla athygli lang út fyrir raðir Skagamanna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Önnur Líf eftir Ævar Örn Jósepsson, í kiljubroti, er komin í bókabúðir.
Önnur líf er sjötta skáldsaga Ævars um löggugengið Árna, Katrínu, Stefán og Guðna. Rétt eins og í hinum fyrri er sögusviðið sótt beint í íslenskan samtíma og samfélag, um leið og hugað er jafnt að hinu stærra sem hinu smærra samhengi hlutanna.
Aðfaranótt páskadags 2010 fannst Erla Líf Bóasdóttir í blóði sínu undir kirkjuvegg í Reykjavík, vafin í hvítt lín. Hún hafði verið stungin ellefu sinnum. Rúmu ári áður, í janúar 2009, varð hún fyrir hrottalegri árás þriggja grímuklæddra manna eftir að hafa dansað við eldana á Austurvelli við taktfastan undirleik búsáhalda og byljandi trommuslátt langt fram á frostkalda nótt. Katrín stýrir rannsókn málanna og á afar bágt með að trúa að engin tengsl séu á milli þessara tveggja grimmilegu árása á Erlu Líf.
Það reynist henni þó allt annað en auðvelt að sýna fram á þessi tengsl og finna hina seku, ekki síst af því að almenna rannsóknardeildin er í upplausn vegna fjarveru Stefáns, sem ekki kemur til af góðu. Árni er í feðraorlofi og karlinn Guðni reynist Katrínu verri en enginn þegar hann verður sjálfur miðpunktur rannsóknar á sóðalegu morði í innsta hring undirheima Reykjavíkur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Kallinn undir stiganum eftir Marie Hermanson, í kilju, komin í bókaverslanir. Árifamikill og spennandi sálfræðitryllir
Út er komin skáldsagan Kallinn undir stiganum eftir sænsku skáldkonuna Marie Hermanson í þýðingu Ísaks Harðarsonar. Bóksalar í Svíþjóð útnefndu bókina bestu skáldsöguna 2005 og SVT hefur gert sjónvarpsþætti eftir henni.
„Marie Hermanson er sér á parti í sænskum samtímabókmenntum – skapar einstaklega spennuhlaðið andrúmsloft. Expressen
„Kallinn undir stiganum er ágeng og ögrandi spennusaga.“ Sydsvenskan
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þriðja prentun af Eyjafjallajökli uppseld, fjórða prentun væntanleg í búðir um miðja næstu viku!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þann 1. desember var þýðing Njarðar P. Njarðvík á ljóðabók sænska skáldsins Kjell Espmark, Vetrarbraut, tilnefnd til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Uppheimar óska skáldunum báðum til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. Vetrarbraut er nú uppseld hjá útgefanda en enn fáanleg í bókaverslunum.
Þá er einnig gaman að geta þess að fleiri bækur Njarðar eru að gera það gott. Barnabókin ástsæla, Helgi skoðar heiminn, sem var endurútgefin í sjötta sinn í haust, er einnig uppseld hjá forlaginu og enn ein prentunin væntanleg. Þá hefur nýjasta bók Njarðar, Spegill þjóðar, náð mikilli hylli, fengið prýðilega dóma og selst eins og heitar lummur. Auk þessara bóka sendi Njörður frá sér smásagnasafnið Hver ert þú? fyrr á þessu ári.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin bókin Hrossafræði Ingimars eftir Ingimar Sveinsson á Hvanneyri.
Hér er loksins komið fram alhliða upplýsinga- og fræðirit um hesta, ritað af höfundi sem býr að ómældri þekkingu og reynslu, bæði á viðfangsefni sínu og eins hinu, að miðla til annarra. Ingimar Sveinsson hefur áratugum saman viðað að sér fróðleik um hesta og hestahald og efnistök hans eru skýr og aðgengileg.
Hrossafræði Ingimars er mikið og glæsilegt rit í hvívetna, enda hefur höfundurinn unnið að verkinu í áratugi og viðað að sér þekkingu og reynslu ævina alla. Bókin er 334 bls. í stóru broti og öll litprentuð. Hana prýðir aragrúi ljósmynda víðs vegar að auk fjölda skýringateikninga og taflna.
Bókin á tvímælalaust erindi til allra sem yndi hafa af hestum og hestamennsku, áhugafólks jafnt sem atvinnumanna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í dag kl. 11:00 var tilkynnt í Gunnarshúsi hvaða bækur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011. Fyrir Íslands hönd eru tilnefndar annars vegar ljóðabókin Rennur upp um nótt, eftir Ísak Harðarson og hins vegar smásagnasafnið Milli trjánna eftir Gyrði Elíasson. Ísak er nú tilnefndur til þessara virtu verðlauna í fyrsta sinn en Gyðir hefur tvisvar áður verið hlotið tilnefningu.
Báðar þessar bækur komu út hjá Uppheimum haustið 2009 og hafa nú verið þýddar á sænsku. Við óskum skáldunum innilega til hamingju!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 eftir Rudyard Kipling
Böðvar Guðmundsson þýddi
Frumskógarbókin eftir Rudyard Kipling var fyrst gefin út árið 1894 og hefur lengi talist til sígildra bókmennta. Frægastar eru sögurnar þrjár um Mógla sem elst upp hjá úlfum í skógum Indlands og eignast björninn Balú og svarta hlébarðann Bakíra að vinum. Af öðrum sögum bókarinnar er sagan um mongúsinn Rikki-Tikki-Tavi líklega þekktust.
Ný þýðing Böðvars Guðmundssonar á þessu sívinsæla verki er mikill fengur fyrir íslenska lesendur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Skáldsagan Drottning rís upp frá dauðum eftir Ragnar Arnalds er komin út.
Drottning rís upp frá dauðum er ævintýralegt ferðalag til fortíðar og ber lesandann víða – frá Skotlandi til Orkneyja, Íslands, Englands, Þýskalands og Noregs. Ragnar Arnalds bregður upp ljóslifandi og hrífandi myndum af Evrópu miðalda í spennandi frásögn af miklum örlögum.
Seint á 14. öld lagði Margrét konungsdóttir í Noregi upp í örlagaríka ferð. Átta ára gömul varð hún drottning Skotlands og hélt á fund væntanlegs brúðguma síns og jafnaldra, Játvarðar, krónprins Englands. Skotar og Englendingar biðu hennar þúsundum saman án árangurs – drottningin unga kom ekki í eigið brúðkaup.
Rúmum áratug síðar sigldi þýskur kaupmaður til Íslands ásamt konu sinni, Bláklukku. Þar hittu þau fyrir klerk sem verið hafði hirðprestur í Noregi og kennari Margrétar fyrir hina afdrifaríku för. Saman sviptu þau hulunni af leyndarmálinu um hvarf drottningarinnar . . .
Drottning rís upp frá dauðum er þriðja sögulega skáldsaga Ragnars Arnalds, sem einnig hefur getið sér gott orð sem leikskáld.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Uppheimar gefa nú út á bók ritgerðasafnið Okkurgulur sandur. Í bókinn er að finna tíu ritgerðir um skáldskap Gyrðis Elíassonar. Ritgerðasafninu er ætlað að varpa ljósi á ólíka þætti í höfundarverki Gyrðis Elíassonar á aðgengilegan og fræðandi (en ekki endilega fræðilegan) hátt, út frá þeirri meginspurningu hver lestrarupplifun okkar sé af verkum svo sérstæðs höfundar. Greinahöfundar hafa allir fylgt rithöfundarferli Gyrðis eftir um árabil, og leggja nú á djúpið í fyrsta heildstæða verkinu sem helgað er skáldskap hans. Höfundar: Fríða Björk Ingvarsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Guðrún Eva Mínervudóttir, Halldór Guðmundsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Hermann Stefánsson, Ingunn Snædal, Jón Kalman Stefánsson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Sveinn Yngvi Egilsson. Ritstjóri: Magnús Sigurðsson.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin bókin Svipmyndir úr síldarbæ eftir Örlyg Kristfinnsson á Siglufirði.
Svipmyndir úr síldarbæ er safn svipmynda og frásagna af fólki sem setti mark sitt á síldarbæinn Siglufjörð fram eftir síðustu öld. Hér eru nefndir til sögunnar kallar eins og Sveini sífulli, Daníel Þórhalls, Gústi guðsmaður, Fúsi Friðjóns, Vaggi í Bakka, Maggi á Ásnum, Nörgor, Tóri, Óli Tór, Bjössi Frímanns, Vignir hringjari, Guðmundur góði, Jón Þorsteins, Hannes Beggólín, Jói bö og Schiöth.
Örlygur Kristfinnsson, myndlistarmaður og safnstjóri Síldarminjasafnsins á Siglufirði, dregur hér upp einstaklega lifandi og skemmtilegar myndir af eftirminnilegu fólki. Með þessari fyrstu bók sinni hefur hann bjargað fjölda sagna af lífinu á Siglufirði frá því að verða gleymskunni að bráð. Þær eru færðar í letur af spriklandi fjöri og einlægri virðingu fyrir viðfangsefninu.
Svipmyndir úr síldarbæ er heillandi bók sem ætti að höfða til allra þeirra sem njóta þess að velta fyrir sér fjölbreytni mannlífsins og kunna að meta skemmtilegar sögur – hvort sem lesandinn er kunnugur á Siglufirði eða ekki.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þann 6. desember nk. kemur út einstök bók, Hrossafræði Ingimars. Áhugasömum kaupendum býðst að kaupa bókina í forsölu hér á vef Uppheima á sérstöku áskriftartilboði, aðeins kr. 4.980- (fullt verð kr. 5.980-). Sendingarkostnaður er ekki innfalinn í verði.
Hér er loksins komið fram alhliða upplýsinga- og fræðirit um hesta, ritað af höfundi sem býr að ómældri þekkingu og reynslu, bæði á viðfangsefni sínu og eins hinu, að miðla til annarra. Ingimar Sveinsson hefur áratugum saman viðað að sér fróðleik um hesta og hestahald og efnistök hans eru skýr og aðgengileg.
Hrossafræði Ingimars er mikið og glæsilegt rit í hvívetna, enda hefur höfundurinn unnið að verkinu í áratugi og viðað að sér þekkingu og reynslu ævina alla. Bókin er 334 bls. í stóru broti og öll litprentuð. Hana prýðir aragrúi ljósmynda víðs vegar að auk fjölda skýringateikninga og taflna. Bókin á tvímælalaust erindi til allra sem yndi hafa af hestum og hestamennsku, áhugafólks jafnt sem atvinnumanna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Önnur líf er sjötta skáldsaga Ævars um löggugengið Árna, Katrínu, Stefán og Guðna. Rétt eins og í hinum fyrri er sögusviðið sótt beint í íslenskan samtíma og samfélag, um leið og hugað er jafnt að hinu stærra sem hinu smærra samhengi hlutanna.
Aðfaranótt páskadags 2010 fannst Erla Líf Bóasdóttir í blóði sínu undir kirkjuvegg í Reykjavík, vafin í hvítt lín. Hún hafði verið stungin ellefu sinnum. Rúmu ári áður, í janúar 2009, varð hún fyrir hrottalegri árás þriggja grímuklæddra manna eftir að hafa dansað við eldana á Austurvelli við taktfastan undirleik búsáhalda og byljandi trommuslátt langt fram á frostkalda nótt. Katrín stýrir rannsókn málanna og á afar bágt með að trúa að engin tengsl séu á milli þessara tveggja grimmilegu árása á Erlu Líf.
Það reynist henni þó allt annað en auðvelt að sýna fram á þessi tengsl og finna hina seku, ekki síst af því að almenna rannsóknardeildin er í upplausn vegna fjarveru Stefáns, sem ekki kemur til af góðu. Árni er í feðraorlofi og karlinn Guðni reynist Katrínu verri en enginn þegar hann verður sjálfur miðpunktur rannsóknar á sóðalegu morði í innsta hring undirheima Reykjavíkur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Klukkan fimm á fimmtudaginn 11.11. kemur út bókin Önnur líf eftir Ævar Örn Jósepsson.
Af þessu tilefni verður haldið útgáfuhóf í Bókabúð Máls og menningar við Laugaveg á slaginu FIMM.
Höfundur kynnir bókina og áritar.
ALLIR VELKOMNIR – LÉTTAR VEITINGAR.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 eftir Megas og Þórunni Erlu Valdimarsdóttur kemur út í dag, 4. nóvember.
Dagurinn í haustkvosinni er Kvennafrídagurinn 24. október 1975. Clint Himinhrjóður Eastwood gengur sinn keika vanagang út úr Moggahöllinni og kinkar graðlega kolli til hverrar vanadísu er á vegi hans verður. Hann fylgist með 40.000 fótum og jafnmörgum brjóstum hópast angandi á Lækjartorg, ætlar inn á Hótel Borg og hittir dísina Máneyju í hringdyrunum, sem varðar eru af froski í einkennisklæðum: „Hér er kvennafundur.“
Handritið að þessari makalausu nóvellu hefur legið óútgefið í átján ár en lítur nú loks dagsins ljós. Eftir að kynjastríðið kom konum á toppinn var loks hægt að ljúka sögunni. Unnendur safaríkra og gróteskra karnivalbókmennta fagna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Fimmtudagskvöldið 4. nóvember kl. 20:00 lesa höfundar úr nýjum bókum frá Uppheimum á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18.
Lesið verður úr Spegli þjóðar eftir Njörð P. Njarðvík, Geislaþráðum eftir Sigríði Pétursdóttur, Degi kvennanna eftir Þórunni Valdimars og Megas, Öðrum lífum eftir Ævar Örn Jósepsson og Hver ert þú? eftir Njörð P. Njarðvík.
Sama dag kemur bók Þórunnar og Megasar, Dagur kvennanna út.
Allir velkomnir!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 – svipmyndir úr lífi Sæmundar Sigmundssonar bílstjóra í Borgarnesi. Bragi Þórðarson skráði.
Sæmundur Sigmundsson í Borgarnesi er einn þekktasti rútubílstjóri Íslands. Á sínu sjötugasta og fimmta aldursári lítur hann yfir farinn veg – í bókstaflegri merkingu því talnaglöggir menn hafa reiknað það út að hann hafi ekið vegi landsins sem svarar 17 ferðum til tunglsins, eða tæpa sex milljónir kílómetra – og hann er enn að.
Margt hefur verið um Sæmund rætt enda maðurinn löngu orðinn þjóðsagnapersóna. Hann hefur verið ófús til frásagna um líf sitt þar til nú og vafalaust fýsir marga að vita meira. Bragi Þórðarson, rithöfundur og fyrrum bókaútgefandi á Akranesi, skráir hér endurminningar Sæmundar en einnig var fjöldi vina og samstarfsmanna fengnir til frásagna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 eftir Njörð P. Njarðvík
Á allra næstu dögum kemur út hjá Uppheimum bókin Spegill þjóðar – persónulegar hugleiðingar um íslenskt samfélag eftir Njörð P. Njarðvík.
Í bókinni ræðir höfundur opinskátt við lesandann og veltir fyrir sér ástæðum þess að við stöndum nú í þeim sporum sem raun ber vitni. Hann er óhræddur við að segja hug sinn allan og fer engum silkihönskum um þá sem hann telur ábyrga fyrir óförunum, hvort sem það eru stjórnmálamenn, embættismenn, „útrásarvíkingar“ eða borgararnir sem gagnrýnislaust gína við hverju gylliboði. Spegill þjóðar er skráning á persónulegum vangaveltum um íslenskt samfélag frá miðri síðustu öld og fram í október 2010, með áherslu á atburði og þróun síðustu ára. Njörður P. Njarðvík er ekki einasta virt skáld og rithöfundur, þýðandi og fræðimaður, heldur nýtur hann einnig virðingar sem ábyrgur og glöggur þjóðfélagsrýnir sem tjáir sig tæpitungulaust á skiljanlegu máli þar sem húmanisminn situr í fyrirrúmi. --- Þá er gaman að Njörður hefur verið einkar afkastamikill undanfarið. Uppheimar hafa það sem af er árinu gefið út eftir hann smásagnasafnið Hver ert þú?, endurútgefið barnabók hans og Halldórs Péturssonar, Helgi skoðar heiminn og gefið hana út á ensku undir titlinum Helgi Explores the World. Og þar að auki er nýútkomin ljóðabókin Vetrarbraut eftir Kjell Espmark í þýðingu Njarðar. Njörður er margra bóka maður þetta árið – með Spegli þjóðar eru þetta fimm titlar!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 eftir Sigríði Pétursdóttur
Út er komin hjá Uppheimum bókin Geislaþræðir eftir Sigríði Pétursdóttur. Hér er á ferð nýstárlegt smásagnasafn og fyrsta bók Sigríðar.
Þótt ýmislegt hafi breyst í samskiptum fólks á nýrri öld slá hjörtu mannanna alltaf eins. Í Geislaþráðum liggja leiðir fólks saman á Netinu – tölvupóstar skjótast á örskotsstund heimshorna á milli, eða bara yfir í næsta hverfi. Ástæðurnar fyrir því að fólkið sem við kynnumst í þessari bók byrjar að skrifast á eru mismunandi: Hulda, ófrísk táningsstúlka, kynnist aldraðri ástralskri konu og þær komast að því að þær eiga sitthvað sameiginlegt. Kveikjan að skrifum Alison og Höllu er karlmaður sem virðist ekki við eina fjölina felldur. Berglind býr yfir leyndarmáli og sendir Halldóri póst. Feðgarnir Gunnar og Árni Þorkell skrifast á yfir hafið.
Geislaþræðir er nýstárleg bók. Sigríður Pétursdóttir kveður sér hljóðs sem þroskaður og áhugaverður rithöfundur með sínu fyrsta skáldverki. Fyrir þekkjum við Sigríði vel úr útvarpi en hér eru það persónur og leikendur sagnanna sem öðlast skýrar raddir. Við hlustum og við látum okkur örlög þeirra varða.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ný ljóðabók eftir Ara Trausta Guðmundsson
Út er komin hjá Uppheimum ljóðabókin Blindhæðir eftir Ara Trausta Guðmundsson, rithöfund og jarðeðlisfræðing.
Sterkur þráður bindur saman ljóðin í Blindhæðum. Við fylgjum skáldinu um slóðir bernskunnar í borg og sveit. Ótal atvik á leið barns til þroska varða veginn uns dyr opnast að unglingshausti – og þá er ekkert lengur eins og það var. Í gegnum skýrar og meitlaðar ljóðmyndir byggist upp saga, úr borg bernskunnar rís ný borg sem verður stöðugt á vegi okkar, uppspretta minninga og innblástur þessara ljóða.
Blindhæðir er fjórða ljóðabók Ara Trausta.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 eftir Bjarna Gunnarsson
Út er komin hjá Uppheimum ljóðabókin Moldarauki eftir Bjarna Gunnarsson.
Moldarauki er óvenjulegur ljóðabálkur um ferðalag sem vekur okkur af dvalanum. Smátt og smátt skýrist stefnan og lesandanum kemur ekki á óvart að finna sjálfan sig fyrir í áfangastað. Ferðin sem í fyrstu virtist stefnulaus svo óvænt og ítrekað er skipt á milli ólíkra sviða er í raun einstaklega vel skipulögð reisa um lendur skáldskaparins og þaulhugsuð kortlagning á hinu mennska ástandi.
Moldarauki er þriðja ljóðabók Bjarna Gunnarssonar, en áður hefur hann sent frá sér bækurnar Lúpínublámi og Blóm handa pabba.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Árifamikill og spennandi sálfræðitryllir
Út er komin skáldsagan Kallinn undir stiganum eftir sænsku skáldkonuna Marie Hermanson í þýðingu Ísaks Harðarsonar. Bóksalar í Svíþjóð útnefndu bókina bestu skáldsöguna 2005 og SVT hefur gert sjónvarpsþætti eftir henni.
„Marie Hermanson er sér á parti í sænskum samtímabókmenntum – skapar einstaklega spennuhlaðið andrúmsloft. Expressen
„Kallinn undir stiganum er ágeng og ögrandi spennusaga.“ Sydsvenskan
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Á nýafstaðinni bókamessu í Frankfurt festi hið virta forlag GALLIMARD kaup á útgáfuréttinum á SVÖRTUM ENGLUM eftir Ævar Örn Jósepsson. Áður hefur bókin verið gefin út í Þýskalandi, Hollandi, Danmörku og Svíþjóð. Aurélien Masson, ritstjóri glæpsagna hjá forlaginu (Serie Noire collection) segir þessa bók falla mjög vel að útgáfustefnu Gallimard og hann segist fullviss um að serían um Guðna, Katrínu, Árna og Stefán muni falla frönskum lesendum vel í geð. Hátt í 30.000 eintök hafa selst samanlagt af SVÖRTUM ENGLUM og BLÓÐBERGI í Þýskalandi og í tilefni af útgáfu SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER í júlí á næsta ári ætlar útgefandinn RANDOM HOUSE að dreifa 5000 kynningareintökum á þýska málsvæðinu nú nóvember.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin ljóðabókin VETRARBRAUT eftir sænska skáldið KJELL ESPMARK í þýðingu NJARÐAR P. NJARÐVÍK. ESPMARK er væntanlegur til landsins um miðjan október og mun kynna bókina. Í inngangi sínum að þessari mögnuðu ljóðabók ritar skáldið Kjell Espmark : „Ef maður ímyndar sér að sérhver mannsævi geymi eitt andartak þar sem öll reynsla og öll viðhorf þéttist í snöggan skilning, þá myndi alheimur tímans sem umlykur okkur, glitra eins og vetrarbraut slíkra opinberana. Stundum eru þær hrífandi bjartar, oftar deyfðar beiskju, en ævinlega í ljóma mannlegrar skarpskyggni. Meðal þeirra má jafnvel sjá óra fyrir svartholi, örlögum svo sárum og óskiljanlegum, að þau megna ekki að gefa frá sér minnsta ljós. Ef okkur tækist að fanga slíka vitnisburði, – hvernig myndu þeir hljóma?“ Vetrarbraut er bálkur ljóða þar sem brugðið er upp svipmyndum mannlegrar reynslu allt frá því í árdaga og til nútímans. Sjónarhornið er jafnan óvenjulegt, eins og þegar skyggnst er inn í huga skylmingaþræls í rómversku hringleikahúsi í þann mund sem net andstæðingsins fellur yfir hann, fangar þríforkinn og sólin blikar á brugðið sverð. Eða þegar ljóðmælandinn er ung stúlka sem felur sig í hálmi og hrossaskít undir úrsérgengnum vagni meðan óvinveittur her æðir um göturnar, brennandi hús og helgidóma. Djúpur mannlegur skilningur og samkennd höfundar með lítilmagnanum er sá þráður sem bindur saman þessa „sögu á spássíu Sögunnar með stórum staf“. Njörður P. Njarðvík íslenskaði.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin barnabókin VAR ÞAÐ BARA SVONA? eftir Kristínu R. Thorlacius með myndskreytingum Erlu Sigurðardóttur. Fyrir tveimur árum kom út bókin SAGA UM STELPU eftir Kristínu og Erlu og hlaut góðar undirtektir. Á bókarkápu VAR ÞAÐ BARA SVONA? segir:
Amma kann margar sögur sem gott er að hlusta á. Og muna. Sagan hennar um stelpuna í sveitinni sem var illa við geithafrana er skemmtileg og fræðandi. Það er sagan af því þegar hrútarnir átu hafrana. Kristín R. Thorlacius segir frá á sprelllifandi og gamansaman hátt og Erla Sigurðardóttir gefur sögunni líf og lit með gullfallegum myndskreytingum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 HELGI SKOÐAR HEIMINN, hin ástsæla barnabók eftir Njörð P. Njarðvík rithöfund og Halldór Pétursson myndlistarmann hefur verið endurútgefin. Þetta er sjötta útgáfa bókarinnar frá því hún kom fyrst út árið 1976. Sagan kemur ennfremur út í fyrsta sinn á ensku, í þýðingu John Porter. Enska útgáfan ber titilinn Helgi Explores the World.
Fáar íslenskar barnabækur hafa notið meiri hylli en HELGI SKOÐAR HEIMINN og bókin á ekki síður erindi til æskunnar í dag en fyrir 34 árum. Boðskapur bókarinnar er virðing fyrir lífinu og náttúrunni. Myndir Halldórs Péturssonar þekkja allir og snilld hans nýtur sín til fulls í þessari bók.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Útgáfurétturinn á bókinni EYJAFJALLAJÖKULL Stórbrotin náttúra | Untamed Nature hefur verið seldur til þýska forlagsins Bassermann sem er hluti af útgáfurisanum Random House. Bókin er væntanleg á markað í Þýskalandi nú í nóvember og er fyrsta prentun 8000 eintök. Þessi glæsilega ljósmynda- og fræðibók Ragnars Th. Sigurðssonar ljósmyndara og Ara Trausta Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings og rithöfundar hefur verið meðal vinsælustu bóka á Íslandi í sumar og hefur m. a. verið 12 vikur í efsta sæti sölulista bókabúða Eymundsson yfir bækur fyrir erlenda ferðamenn. Þriðja prentun er í undirbúningi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Svissneska forlagið Walde + Graf Verlag hefur fest kaup á útgáfurétti tveggja bóka Gyrðis Elíassonar, Sandárbókinni, pastoralsónötu, sem kom út árið 2007, og Gangandi íkorna, fyrstu skáldsögu Gyrðis frá 1987. Báðar bækurnar verða gefnar út á þýsku í Sviss á næsta ári. Fáar íslenskar skáldsögur hafa hlotið jafn einróma lof og Sandárbókin og með Gangandi íkorna sýndi Gyrðir hversu sterk tök hann hefur á ólíkum formum skáldskaparins. Vaxandi áhugi er á verkum Gyrðis, í undirbúninig er þýsk þýðing á ljóðabókinni NOKKUR ALMENN ORÐ UM KULNUN SÓLAR, og rómað smásagnasafn hans, MILLI TRJÁNNA, frá síðasta ári og tilnefnt var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, hefur vakið athygli útgefenda í Skandinavíu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|

Á þessu ári hafa nú yfir 10.000 eintök selst af bókum Camillu Läckberg en VITAVÖRÐURINN, sjöunda bók hennar um glæpi og morðgátur í Fjällbacka, kom út fyrir mánuði síðan. Eftir aðeins fjórar vikur í sölu er Vitavörðurinn orðin áttunda mest selda bók ársins á Íslandi samkvæmt bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda. Og bókin að sjálfsögðu í 1. sæti í ágústmánuði. HAFMEYJAN sem kom út í apríl vermir 4 sætið á þessum sama lista. Í dag er svo birtur sölulisti bókabúða Eymundsson og þar á Camilla hvorki meira né minna en 4 bækur á kiljulistanum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þriðjudaginn 3. ágúst kom út sjöunda bók Camillu Läckberg, Vitavörðurinn.
Á bjartri vornótt snarast kona inn í bíl sinn - hendurnar á stýrinu eru ataðar blóði. Með son sinn ungan í aftursætinu leitar hún á eina griðarstaðinn sem hún þekkir, eyjuna Grásker, sem liggur út af Fjällbacka.
Skömmu síðar finnst maður myrtur í íbúð sinni. Nýráðinn fjármálastjóri sveitarfélagsins, sem eftir áralanga fjarveru hefur snúið aftur á æskuslóðirnar.
Camilla, sem er einn vinsælasti rithöfundur Evrópu, hefur hlotið heimsathygli fyrir glæpasögur sínar, sem selst hafa í milljónum eintaka, og má með sanni segja að íslenskir lesendur hafi tekið bókum hennar fagnandi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Árbók Akurnesinga 2010 er komin út. Þetta er 10 bókin en fyrsta Árbókin kom út árið 2001. Fastir þættir í Árbók Akurnesinga eru ítarlegir og ríkulega myndskreyttir frétta- og íþróttaannálar. Í bókinni eru viðtöl við merka Akurnesinga, þá Vilhjálm Birgisson og Einar Ólafsson. Ýmsar frásagnir og myndaþættir ásamt æviágripum og myndum af Akurnesingum sem jarðsungnir eru frá Akraneskirkju á ári hverju.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 ENN ER MORGUNN er söguleg skáldsaga eftir Böðvar Guðmunds-son, höfund hinna ástsælu bóka um íslensku vesturfaranna – Híbýli vindanna og Lífsins tré. Haustið 1936 kemur til Reykjavíkur ungur þýskur tónlistarmaður að nafni Jóhannes Kohlhaas. Hann er af gyðingaættum og hefur hrökklast undan nasistum, sem fara mikinn í heimalandi hans. Menningarlíf hins unga höfuðstaðar nýtur hæfileika hans um hríð, hann „aðlagast“ eins og það heitir nú á dögum, finnur meira að segja ástina og kvænist – stúlku af einni fínustu og áhrifamestu ætt landsins, Önnu Láru Knudsen. Bókin hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Milli trjánna er áttunda smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, og hlaut það tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna á síðasta ári. Tvær fyrri prentanir af bókinni eru uppseldar hjá útgáfunni. Milli trjánna er safn 47 nýrra smásagna sem einkennast allar af þeim áreynslulausa og myndríka stíl sem prýðir verk Gyrðis. Þá kallast umfjöllunarefni þessa safns á við fyrri sögur höfundar.
Gagnrýnendur eru á einu máli um að þetta sé frábært verk: „Milli trjánna er verk samið af höfundi sem hefur náð fullkomnum tökum á list sinni . . . hreinn listgaldur.“ Bergsteinn Sigurðsson - Fréttablaðið
„Helst er ég þó bara á því að Gyrðir sé upp á sitt allra besta í þessari bók. Hún er hreinasta gersemi.“ Þröstur Helgason - Víðsjá
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Föstudaginn 25. júní kemur út bókin Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. Sara Blædel var útnefnd af dönskum lesendum sem vinsælasti höfundur Danmerkur árið 2009 og í vali lesenda Søndagsavisen á rithöfundi ársins 2009 naut Sara mikilla yfirburða.

Í tilefni af útkomu bókarinnar er Sara Blædel væntanleg til Íslands. Kristján Kristjánsson útgefandi mun kynna höfundinn og síðan mun Sara lesa upp úr bókinni og sitja fyrir svörum í Norræna húsinu, föstudaginn 25. júní kl. 17.00.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þriðju vikuna í röð situr bókin um eldsumbrotin í Eyjafjallajökli eftir þá Ragnar Th. Sigurðsson og Ara Trausta Guðmundsson í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson. Af tíu mest seldu bókum Eymundsson-verslananna síðustu vikuna er Eyjafjallajökull eina „túristabókin“. Í gær var annarri útgáfu bókarinnar dreift í verslanir, en bókin hafði þá verið uppseld hjá forlaginu í viku. Í lofsamlegum ritdómi í Morgunblaðinu gaf Matthías Árni Ingimarsson bókinni fjórar stjörnur. Uppheimar óska Ragnari og Ara til hamingju með frábæran árangur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Hver ert þú? kallast nýtt smásagnasafn eftir Njörð P. Njarðvík rithöfund. Á kápu bókarinnar, sem gefin er út í kilju, segir:
Í tíu tengdum smásögum endurskapar Njörður P. Njarðvík af listfengi þann hluta vegferðar Jesú sem kristnum mönnum er alla jafna hugleiknastur. Atburðirnir birtast lesandanum í nýju ljósi – í gegnum skáldskapinn er leitað svara við spurningunni um hver Jesús var. Og þeir sem spyrja eru ekki síður forvitnilegir
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ljósmynda- og fræðibókin Eyjafjallajökull eftir Ragnar Th. Sigurðsson og Ara Trausta Guðmundsson rauk beint í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson eftir örfáa daga í sölu. Viðbrögð við bókinni hafa verið á eina lund: Hrifning.
Á útgáfudegi bókarinnar sl. föstudag veitti Eymundsson höfundum og útgefendum bókarinnar Blekbikarinn með skemmtilegri athöfn fyrir að hafa unnið kapphlaupið um fyrstu bókina um eldgosið í Eyjafjallajökli.
Vinna við aðra útgáfu bókarinnar er þegar komin á fullan skrið og er hennar að vænta síðar í mánuðinum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í dag, 4. júní, kemur út bókin EYJAFJALLAJÖKULL Stórbrotin náttúra | Untamed Nature eftir Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndara og Ara Trausta Guðmundsson, jarðeðlisfræðing og rithöfund.
Hér er á ferðinni einkar glæsileg ljósmynda- og fræðibók, 112 blaðsíður í stóru broti. Bókin spannar tímabilið frá því eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi í mars fram til 15. maí. Báðum gosunum eru gerð ítarleg skil og einstakt að atburðir af þessum toga séu komnir á bók svo fljótt sem raun ber vitni. Þótt bókin hafi verið unnin hratt er hvergi slegið af gæðakröfum, enda höfundar þaulreyndir afburðamenn, hvor á sínu sviði.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar og Gyrðir Elíasson hafa nýverið gert samning við svissneska útgefandann WALDE + GRAF Verlag AG um útgáfu á tveimur bóka Gyrðis á þýska málsvæðinu. Bækurnar eru Gangandi íkorni og Sandárbókin. Uppheimar óska Gyrði til hamingju með samninginn og vænta góðs árangurs af samstarfinu við Svisslendinga. Vefsíða WALDE + GRAF
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Johan Theorin, höfundur Hvarfsins og handhafi Glerlykilsins 2009, var á dögunum tilnefndur til hinna virtu CWA INTERNATIONAL DAGGER verðlauna í Bretlandi fyrir aðra bók sína, sem á frummálinu heitir Nattfåk en The Darkest Room á ensku. Bókin mun koma út á íslensku hjá Undirheimum snemma á næsta ári í Þýðingu Önnu Ragnhildar Ingólfsdóttur. Sex höfundar eru tilnefndir til Rýtingsins og er gaman að geta þess að ásamt Theorin er þar að finna Stieg Larsson og Arnald Indriðason. Verðlaunin verða afhend 23. júlí nk. Nýjasta bók Theorins, Blodläge, hefur setið í efstu sætum sænska metsölulistans síðan hún kom út í apríl sl.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Verið er að ganga frá glæsilegri bók á ensku og íslensku um eldsumbrotin, allt frá fyrstu stundu til dagsins í dag. Í bókinni er vikið að eldvirkni almennt á Íslandi og að systureldfjallinu Kötlu. Bókin ber titilinn Eyjafjallajökull – Stórbrotin náttúra / Grandeur of Nature.
Það eru Uppheimar, Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson sem vinna að útgáfunni af fullum krafti og er bókin væntanleg áður en maímánuður er liðinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í Kiljunni þann 14. apríl sl. lýsti Kolbrún Bergþórsdóttir yfir þeirri skoðun sinni að Jo Nesbø væri bestur norrænna glæpasagnahöfunda; betri en Arnaldur, betri en Mankell. „Þetta er stór yfirlýsing hjá þér,“ sagði þá Egill Helgason og um Nemesis sagði hann: „Við getum mælt með henni.“
Það eru ekki bara gagnrýnendur sem hrífast; lesendur fagna bókum Nesbø enda situr Nemesis nú í efsta sæti á metsölulista Eymundsson yfir kiljur – aftur. Af fimmtán mest seldu kiljum í Eymundsson eru nú sex titlar frá Undirheimum, þar af tveir eftir Jo Nesbø, því Rauðbrystingur sem út kom fyrir ári situr einnig á listanum þriðju vikuna í röð.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ísprinsessan, fyrsta bók Camillu Läckberg í Fjällbackaseríunni, er nú komin í verslanir eftir að hafa verið ófáanleg um nokkra hríð. Þetta er þriðja prentun bókarinnar, sem ráðist var í vegna fjölda áskorana.
Camilla er í hópi vinsælustu rithöfunda Evrópu og hafa nú verið gefnar út sex bækur eftir hana hér á landi, sem allar njóta mikilla og vaxandi vinsælda. Nýjasta bók hennar, Hafmeyjan, hefur setið í fyrsta sæti á metsölulistum undanfarnar vikur. Síðar á árinu er væntanleg sjöunda bók Camillu, Vitavörðurinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Vetrarblóð eftir sænska rithöfundinn Mons Kallentoft er komin út. Kallentoft er ungur höfundur sem vakið hefur mikla athygli fyrir glæpasögur sínar um lögreglukonuna ungu, Malin Fors, og hlotið einróma lof.
Í grimmdarfrosti í febrúar finnst nakið lík manns hangandi í stöku tré á vindbarinni sléttu á Östergötlandi. Malin Fors, lögreglukonu og einstæðri móður sem glímir við erfið vandamál í einkalífinu, er falið að rannsaka málið...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Á nýjum metsölulista Eymundssons yfir mest seldu kiljurnar raða nýju Undirheimabækurnar sér í FYRSTU FJÖGUR SÆTIN og það níunda. Það eru Hafmeyjan, Hvarfið, Land draumanna, Nemesis og Rauðbrystingur sem eru að ná þessum frábæra árangri. Camilla Läckberg er í efsta sæti með Hafmeyjuna. Heildarlistinn yfir allar bækur er samhljóða kiljulistanum í efstu sætum að öðru leyti en því að níu binda glæpasaga Rannsóknarnefndar Alþingis stal fyrsta sætinu – Undirheimabækurnar eru í öðru, þriðja, fjórða og fimmta þar. Hver segir svo að glæpir borgi sig ekki?
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Árni Matthíasson, gagnrýnandi Morgunblaðsins gefur HVARFINU eftir Johan Theorin fjórar stjörnur í umsögn í Sunnudagsmogganum. Hann segir höfundinn eiga skilda þá góðu dóma sem hann hefur fengið enda „ . . .þrællipur höfundur með góða persónusköpun (. . .) Þrælfín spennubók þar sem spennan er þó meira fyrir heila en hjarta.“
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Metsölulisti Eymundsson er birtur í dag. NEMESIS eftir Jo Nesbö er í fyrsta sæti kiljulistans sem og aðallistans og HAFMEYJAN eftir Camillu Läckberg er í þriðja sæti á báðum listum eftir aðeins einn dag í sölu! Á kiljulistanum eru ennfremur LAND DRAUMANNA eftir Vidar Sundstøl (6. sæti) og HVARFIÐ eftir Johan Theorin sem er í 11. sæti. Krimmaþyrstir lesendur taka bókunum úr Undirheimum greinilega fagnandi!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Skrifar Árni Matthíasson um NEMESIS í Sunnudagsmogganum og bætir við: . . . fléttan er hugvitssamleg og bókin hin besta skemmtun.“ Páll Baldvin Balvinsson fjallar um krimmaútgáfu Undirheima í menningarkálfi Fréttablaðsins í dag. Hann kemst að eftirfarandi niðurstöðu um NEMESIS: „Nesbö er snjall vefari fléttunnar og kemur lesenda stöðugt á óvart.“ Páll Baldvin segir upphaf sögunnar tendra í lesandanum og líkt og í öðrum verkum Nesbö sé sögusviðið víðfeðmt.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Mánudaginn 29. mars kemur út bókin Hvarfið eftir Svíann Johan Theorin. Þetta er fyrsta skáldsaga Thorins sem hlaut Glerlykilinn 2009 fyrir aðra bók sína, Nattfåk. Hvarfið hlaut ensku Rítingsverðlaunin sem besta frumraun höfundar árið 2009.
Hvarfið gerist á sænsku eyjunni Öland þar sem lítill drengur hverfur sporlaust í byrjun áttunda áratugarins. Tuttugu árum síðar berst afa drengsins vísbending um hvarfið og fer að grafa í fortíðinni ásamt dóttur sinni, móður drengsins...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Mánudaginn 29. mars nk. kemur út sjötta bók Camillu Läckberg, Hafmeyjan. Morð er framið í Fjällbacka og Patrik og Erica þurfa leita aftur til fortíðar til að leysa málið.
Camilla, sem er einn vinsælasti rithöfundur Evrópu, hefur hlotið heimsathygli fyrir glæpasögur sínar, sem selst hafa í milljónum eintaka, og má með sanni segja að íslenskir lesendur hafi tekið bókum hennar fagnandi. Camilla klikkar aldrei!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Mánudaginn 29. mars kemur út bókin Land draumanna eftir norska rithöfundinn Vidar Sundstøl. Bókin var tilnefnd til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna, 2009.
Land draumanna gerist við Lake Superior í Minnesota. Þar segir af lögreglumanninum Lance Hansen sem finnur illa leikið lík norsks ferðamanns sem myrtur hefir verið á hroðalegan hátt og skilinn eftir í blóði sínu...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Hagþenkir hefur tilnefnt tíu höfunda og rit þeirra til viðurkenningar Hagþenkis 2009. Meðal höfunda sem eru tilnefndir er Aðalsteinn Ingólfsson fyrir bókina VEFTIR. Í þessari glæsilegu bók rekur hann feril Ásgerðar Búadóttur en hún er án efa markverðasti veflistamaður Íslendinga á 20stu öld.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Fjögur íslensk bókaforlög hafa í samvinnu við Eymundsson ákveðið að gefa sjö ný stórvirki á sviði útgáfu að söluverðmæti um 4,5 milljónir króna til stuðnings rústabjörgunarsveit Landsbjargar við að endurnýja búnað sem sveitin skildi eftir á Haítí til aðstoðar hjálparsveitum á svæðinu. Stórvirkin verða seld í Eymundsson um allt land nú um helgina og er þetta upphaf átaks sem nefnist „Bókaþjóðin styður fólkið á Haítí“. Allir fjármunir sem koma inn fyrir sölu á þessum bókum renna óskertir til að endurnýja búnað sveitarinnar. Jafnframt hefur Eymundsson ákveðið að bæta 10% af allri sölu íslenskra barnabóka í verslunum sínum þessa daga við söfnunarupphæðina. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar. Félagar í rústabjörgunarsveit Landsbjargar hleypa átakinu af stað í Eymundsson Austurstræti kl. 14 á morgun, föstudaginn 22. janúar. Átakið stendur til mánudagins 25. janúar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ljóðstafur Jóns úr Vör, verðlaun í ljóðasamkeppni Lista- og menningarráðs Kópavogs, var afhentur í áttunda sinn í gær við hátíðlega athöfn. Ljóðstafinn hlaut Gerður Kristný fyrir ljóðið Strandir. Auk Gerðar Kristnýjar hlaut Bjarni Gunnarsson sérstaka viðurkenningu fyrir ljóð sitt Smíðar, sem þykir sýna „tvær hliðar skáldskapar á hugvitssaman og jafnframt skáldlegan hátt“. Bjarni, sem er ljóðskáld og þýðandi, starfar fyrir Uppheima og hefur sent frá sér ljóðabækurnar Lúpínublámi og Blóm handa pabba. Dómnefndin var skipuð þeim Ingibjörgu Haraldsdóttur rithöfundi, Sigþrúði Gunnarsdóttur bókmenntafræðingi og Þórarni Eldjárn rithöfundi, sem var formaður. Uppheimar óska Gerði Kristnýju og Bjarna innilega til hamingju með verðlaunin.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Á morgun, gamlársdag, er útgáfudagur ÁRBÓKAR AKURNESINGA 2009. Bókin er sú níunda í þessum flokki en fyrsta Árbókin kom út vorið 2001. Undir hnappnum hér til vinstri, ÁRBÓK AKURNESINGA, er hægt að kynna sér efni bókarinnar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin bókin Barna- og unglingafræðsla í Mýrasýslu 1880-2007 eftir Snorra Þorsteinsson. Hún er gefin út í tilefni af aldarafmæli skólahalds í Borgarnesi haustið 2008 og 50 ára afmæli skólahalds að Varmalandi 2005. Bókin er hátt á fjórða hundrað blaðsíðna í stóru broti. Fjöldi mynda prýðir hana og hefur víða verið leitað fanga til að gera þann þátt sem fjölbreyttastan. Bókin er á sérstöku tilboðsverði.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Við úthlutun Bókmenntaverðlauna starfsfólks bókaverslana sem fór fram í gær var ljóðabókin Nokkur almenn orð um kulnun sólar eftir Gyrði Elíasson valin besta ljóðabók ársins. Verðlaunin koma í kjölfar tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna þar sem Gyrðir er tilnefndur fyrir hina bókina sem hann sendir frá sér á árinu, smásagnasafnið Milli trjánna. Báðar bækur Gyrðis hafa nú verið endurprentaðar.
Önnur verðlaun af þremur fyrir ljóðabækur hlaut Eyþór Árnason fyrir bókina Hundgá úr annarri sveit, sem fyrr í haust hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.
Uppheimar óska Gyrði og Eyþóri til hamingju með frábæran árangur!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin bókin Veftir. Hér er komið fyrsta yfirlitsrit um listferil Ásgerðar Búadóttur, helsta veflistamanns Íslendinga á 20. öld. Rakinn er ferill Ásgerðar frá skólaárunum í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík á öndverðum fimmta áratugnum og allt til 1998, er hún lokar vinnustofu sinni og sest í helgan stein.
Birtar eru heilsíðumyndir af 58 veftum frá gjörvöllum ferli listakonunnar og að auki teikningar frá námsárum hennar á Íslandi og í Danmörku, formyndir að veftum og ljósmyndir frá ýmsum tímum. Bókinni fylgir ítarleg heimildaskrá.
Ritstjóri bókarinnar og meginhöfundur er Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, auk þess sem Guðbergur Bergsson rithöfundur skrifar formála.
VEFTIR er 128 blaðsíður, glæsileg bók með íslenskum og enskum texta.
Hér er hægt að panta bókina - á sérstöku tilboðsverði!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Uppheimar óska rithöfundunum Böðvari Guðmundssyni og Gyrði Elíassyni til hamingju með að vera tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bækur sínar Enn er morgunn og Milli trjánna.
Ennfremur óskum við Sigurði Karlssyni þýðanda til hamingju með tilnefningu til Íslensku þýðingaverðlaunanna fyrir finnsku skáldsöguna Yfir hafið og í steininn eftir Tapio Koivukari.
Uppheimar eru afar stoltir af sínum mönnum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Kristín Ómarsdóttir sýnir enn og sannar með þessari bók að rödd hennar á sér enga hliðstæðu í íslenskum bókmenntum. Hjá brúnni einkennist af makalausu ímyndunarafli og einstakri hugmyndaauðgi, nístandi gálgahúmor, grallara- og prakkaraskap, skáldlegri myndvísi og ljóðrænni fegurð sem þó er borin fram með ögrandi tungutaki.Sagan er í senn fyndin og gáskafull, spennandi og ógnþrungin. Veisla fyrir öll skilningarvit.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þriðjudagskvöldið 17. nóvember kl. 20:00 munu Uppheimahöfundar lesa úr nýjum bókum á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Landið sem aldrei sefur er þriðja skáldsaga hins víðförla Ara Trausta Guðmundssonar sem einnig hefur getið sér gott orð sem ljóðskáld með þremur ljóðabókum, auk þess að hafa hlotið verðlaun fyrir smásögur sínar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin bókin Í fótspor afa míns eftir Finnboga Hermannsson. Hér heldur Finnbogi áfram að rifja upp æsku sína þar sem frá var horfið í lok bókarinnar Í húsi afa míns frá 2008 sem nýtur mikilla vinsælda, hlaut einróma lof og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna bóksala.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bjarni Bjarnason rithöfundur er þekktastur af skáldverkum sínum sem hafa aflað honum fjölda verðlauna. Í þessu safni greina um gildi, bókmenntir og samfélag sýnir hann á sér nýja hlið án þess að slaka nokkurs staðar á á kröfum um frjóan stíl og óvænt sjónarhorn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18 verður upplestrarkvöld Uppheimahöfunda fimmtudaginn 12. nóvember kl. 20:00.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Bragi Þórðarson, fyrrverandi bókaútgefandi, sendir frá sér nýja bók, SPORASLÓÐ. Bókin hefur að geyma safn frásagna af atburðum og fólki sem setti mark sitt á íslenskt samfélag. Bækur Braga um íslenskt þjóðlíf á fyrri tíð hafa notið mikilla vinsælda. Í SPORASLÓÐ eru margar og merkilegar myndir sem - eins og textinn - eru heimildir um sögu Íslendinga.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bækur Gyrðis Elíassonar, smásagnasafnið MILLI TRJÁNNA og ljóðabókin NOKKUR ALMENN ORÐ UM KULNUN SÓLAR eru einnig gefnar út saman í glæsilegri öskju. Upplag er 100 eintök, tölusett og með áritun höfundar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Þær umsagnir sem hafa birtst um bækur frá Uppheimum síðustu dægur er einstaklega lofsamlegar. Bækur Gyrðis Elíassonar, sagnasafnið MILLI TRJÁNNA og ljóðbókin NOKKUR ALMENN ORÐ UM KULNUN SÓLAR eru sagðar meðal hans bestu til þessa, bók Böðvars Guðmundssonar ENN ER MORGUNN er sögð hin læsilegasta og spáð vinsældum, verðlaunabókin HUNDGÁ ÚR ANNARRI SVEIT eftir Eyþór Árnason þykir greinilega standa undir verðlaunum Tómasar Guðmundssonar og skáldsagan YFIR HAFIÐ OG Í STEININN eftir Tapio Kovukari er hrósað í hástert. Með því að smella á fyrirsögn fréttarinnar er hægt að lesa nokkra mola úr þessu einróma lofi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Út er komin barnabókin SJÓRÆNINGI SEGIR FRÁ eftir Natalie Babbitt. Sagan segir frá Jóa Planka sem er atvinnulaus sjóræningi í leit að vinnu. Svo virðist sem Jói hafi aldrei verið neitt sérstaklega góður í starfi ræningjans; honum líkaði betur að halda sig um borð og elda súpu.
Kristín R. Thorlacius þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 RENNUR UPP UM NÓTT er tíunda ljóðabók Ísaks Harðarsonar og kallast að mörgu leyti á við fyrri bækur höfundar enda er hér ekki ort af neinni hálfvelgju. Ísak beitir myndmáli á sinn sérstaka hátt og oft af sláandi frumleika, ekki síst í trúarljóðum bókarinnar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Nýkomin er út bók Bjarna Bjarnasonar, LEITIN AÐ AUDREY HEPBURN. Bjarni hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og Leitin að Audrey Hepburn er áttunda skáldsaga hans. Líkt og í fyrri verkum Bjarna einkennist frásögnin af beittum persónulegum stíl og frumleika – stutt er í gráa kímni, jafnvel galsafenginn húmor.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bók Böðvars Guðmundssonar, ENN ER MORGUNN, fór beint í 1. sæti hjá Eymundsson - á lista yfir mest seldu bækurnar. Á þessum sama lista, í 2. sæti, er ÁSTANDSBARNIÐ eftir Camillu Läckberg. Þessar bækur eru síðan báðar í 1. sæti - önnur á lista yfir innbundin skáldverk og hin á kiljulistanum - í 1. sæti 5. vikuna í röð!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Nú í vikunni hlaut Johan Theorin frá Svíþjóð CWA John Creasy (New Blood) rýtinginn 2009 fyrir fyrstu skáldsögu sína, Skumtimmen (e. Echoes From The Dead), sem Undirheimar munu gefa út á næsta ári. CWA John Creasy (New Blood) Rýtingurinn er einungis veittur fyrir fyrstu skáldsögu áður óútgefins höfundar. Þau eru veitt til minningar um John Creasy, stofnanda CWA, og eru mikill heiður.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Innan nokkurra daga er væntanleg bókin SÓLEY eftir hinn vinsæla höfund Celia Rees. Spennandi ævitnýrasaga eftir Celiu Rees, höfund GALDRASTELPUNNAR og SEIÐKONUNNAR. Þegar SÓLEY gerist stigamaður er það til að sannreyna heilindi elskhuga síns. En fleira knýr hana áfram, hvarf föður hennar og ásakanir um að hann hafi gerst föðurlandssvikari ... einnig nýtur hún um stund spennunnar og frægðarinnar sem líf þjóðvegaræningjans aflar henni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Magnús Sigurðsson, höfundur Hálmstráa og ljóðabókarinnar Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu - sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2008 - sendir frá sér greinasafn - GLEYMSKUNNAR BÓK. Bókin er væntanleg allra næstu daga.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Á næstu dögum kemur út skáldsagan YFIR HAFIÐ OG Í STEININN eftir finnska rithöfundinn Tapio Koivukari í þýðingu Sigurðar Karlsson, sem þýðir úr finnsku. Höfundurinn og þýðandinn eru báðir staddir á Íslandi um þessar mundir. Á bókarkápu segir: Í lok framhaldsstríðs Finnlands og Sovétríkjanna (1941-1944) var Finnum gert að skila aftur til Rússlands öllum Ingerlendingum sem komnir voru til landsins. Ingerlendingar voru finnskumælandi þjóðarbrot sem bjó í Rússlandi ...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar eiga fjórar bækur á metsölulista Eymundssons yfir innbundin skáldverk og ljóð: í 5. sæti er verðlaunaljóðabókin Hundgá úr annarri sveit, í 9. sæti smásögur Gyrðis Milli trjánna, í 11. sæti ljóðabókin Milli barna og í 13. sæti ljóð Gyrðis Nokkur almenn orð um kulnun sólar. Ágætu skáld - til hamingju! Á toppi kiljulistans situr Ástandsbarnið eftir Camillu Läckberg - 4. vikuna í röð!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Böðvar Guðmundsson verður í verslun Eymundsson, Skólavörðustíg, kl. 17.00 í dag og áritar bók sína, ENN ER MORGUNN.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
ENN ER MORGUNN er ný söguleg skáldsaga eftir Böðvar Guðmundsson, höfund hinna ástsælu bóka um íslensku vesturfaranna – Híbýli vindanna og Lífsins tré. Haustið 1936 kemur til Reykjavíkur ungur þýskur tónlistarmaður að nafni Jóhannes Kohlhaas. Hann er af gyðingaættum og hefur hrökklast undan nasistum, sem fara mikinn í heimalandi hans. Menningarlíf hins unga höfuðstaðar nýtur hæfileika hans um hríð, hann „aðlagast“ eins og það heitir nú á dögum, finnur meira að segja ástina ...
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Miðvikudaginn 21. okt. kemur út hin gullfallega bók TÍU VÍSUR. Hún hefur að geyma alkunnar vísur og kvæði sem fylgt hafa íslenskum börnum kynslóð eftir kynslóð og eiga sér stað í hjörtum okkar allra. eð gullfallegum myndskreytingum Helgu Egilson vakna vísurnar til lífsins fyrir augum lesandans klæða menningararfinn í nýjum búningi. Sjá nánar um vísur í bókinni - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Komin er út ljóðabók eftir Gunnar Má Gunnarsson, MILLI BARNA. Bókin er gefin út með Nýræktarstyrk frá Bókmenntasjóði. Um bókina segir: Ferskir vindar blása milli spjalda þessarar nýju ljóðabókar Gunnars. Stíllinn er kraftmikill og áræðinn, skáldið hikar hvergi við að nýta sér þann mátt sem býr í tungumálinu og leyfir textanum að hefja sig til flugs, án þess nokkurn tíma að missa jarðtenginguna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Eyþór Árnason hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina HUNDGÁ ÚR ANNARRI SVEIT. Þetta er fyrsta ljóðabók Eyþórs. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Í bókinni streymir ljóðmálið fram, sterkt og hugmyndaríkt. Kímnin er aldrei langt undan og alls kyns furður gera vart við sig, eins og þegar rjúpurnar hans Guðmundar í Miðdal sem gerðar eru úr gleri lifna við og láta sig hverfa."
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í þessari nýju ljóðbók sinni yrkir Njörður P. Njarðvík um það viðfangsefni sem fyrr eða síðar bíður allra, að líta inn á við. Ljóðin liggja sem þögull strengur gegnum hávaðasamt mannlíf í átt til upphafsins, sjálfrar lífsorkunnar. Hún er manninum svo augljós að hann sér hana ekki – ekki frekar en fiskurinn finnur vatnið þegar hann syndir.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
  Hjá Uppheimum eru komin út tvö verk eftir Gyrði Elíasson, smásagnasafnið MILLI TRJÁNNA og ljóðabókin NOKKUR ALMENN ORÐ UM KULNUN SÓLAR. Gyrðir hlaut tilnefningu til hinna virtu Frank O’Connor bókmenntaverðlauna vorið 2009 fyrir STEINTRÉ, síðasta smásagnasafn sitt.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
ÁSTANDSBARNIÐ (Tyskungen) er fimmta bók Camillu á íslensku. Um bókina segir á kápu: Hvers vegna skyldi móðir Ericu Falck hafa varðveitt gamla nasistaorðu? Spurningin lætur Ericu ekki í friði og hún hefur uppi á sögukennara á eftirlaunum til að leita skýringa. Sá bregst hins vegar undarlega við og veitir engin svör. Tveimur dögum síðar er hann látinn. Myrtur. VERÐ Í ÁSKRIFT: 1.990 KR. Sendingarkostnaður innanlands er kr. 190.
.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Upp úr miðjum september nk. kemur út önnur bók Camillu Läckberg á árinu. Það er ÁSTANDSBARNIÐ (Tyskungen) sem er fimmta bók Camillu á íslensku. Um bókina segir á kápu: Hvers vegna skyldi móðir Ericu Falck hafa varðveitt gamla nasistaorðu? Spurningin lætur Ericu ekki í friði og hún hefur uppi á sögukennara á eftirlaunum til að leita skýringa. Sá bregst hins vegar undarlega við og veitir engin svör. Tveimur dögum síðar er hann látinn. Myrtur.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í stórri netkosningu sem Dagbladet í Noregi stóð fyrir í sumar gafst lesendum kostur á að velja „bestu norsku glæpasögu allra tíma“. Fyrsta sæti hlaut Snømannen eftir JO NESBØ. Annað sæti hreppti Frelseren eftir JO NESBØ. Þriðja sætið á Rauðbrystingur eftir JO NESBØ!. Á topp 13 voru allar gæpasögur hans, 8 að tölu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag er útgáfudagur tveggja glæsilegra bóka - ... og svo kom Ferguson og Im Einklang. ... og svo kom Ferguson eftir Bjarna Guðmundsson, er bók fyrir alla þá sem vilja fræðast um íslenska þjóðhætti á fyrsta skeiði vélaaldarinnar. Bókin er aðgengileg og skemmtileg, prýdd fjölda merkilegra ljósmynda víðs vegar að. Bókin SAMSPIL er nú komin út á þýsku, Im Einklang, hún er því fáanleg á þremur tungumálum. Í bókinni leiða saman hesta sína tveir afburðamenn, þeir Benedikt Líndal tamningameistari og Friðþjófur Helgason ljósmyndari.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bók Bjarna Guðmundssonar ... og svo kom Ferguson er komin úr prentun en formlegur útgáfudagur bókarinnar er á laugardaginn, 18. júlí. Í ár eru liðin rétt sextíu ár frá því fyrstu Ferguson-dráttarvélarnar komu til Íslands. Af því tilefni öðrum fremur hefur Bjarni á Hvanneyri tekið bókina saman með aðstoð fjölda heimildarmanna.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Svenk bokhandel birtir á vefsíðu sinni lista fyrir mest seldu bækurnar "Topplistor 2009". Höfundar Uppheima raða sér í þrjú efstu sætin. Mons Kallentoft og bók hans "Sommardöden" er í fyrsta sæti, Camilla Läckberg og "Sjöjungfrun" í öðru sæti og í þriðja sæti listans er Johan Theorin með bókina "Nattfåk.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag var BLÓÐDROPINN veittur en hann er verðlaun Hins íslenska glæpafélags. Í ár voru níu glæpasögur, útgefnar árið 2008, tilnefndar. Að þessu sinni hlaut þau ÆVAR ÖRN fyrir bókina LAND TÆKIFÆRANNA. Sem handhafi verðlaunanna verður Ævar Örn fulltrúi Íslands í samkeppni um Glerlykilinn 2010.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar halda fyrsta sæti á metsölulista Eymundssons yfir kiljur með ÓHEILLAKRÁKUNNI eftir Camillu Läckberg. Marklund og Nesbø í 6. og 7. sæti og eru á listanum 12. vikuna í röð!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa samið við rithöfundana Vidar Sundstøl og Mons Kallentoft. Bók Vidars, Drömmenes land, var tilnefnd til GLERLYKILSINS 2009. Bókin, sem er fjórða bók Vidars, er fyrsta bókin í þríleik eða trílógíu og gerist á slóðum Norðmanna í Minnesota - og þykir hörku spennandi. Kallenhoft hefur skrifað bækurnar "Midvinterblod" og "Sommardöden" og bókina "Höstoffer" - sem er væntanleg. Um Kallentoft segir Magnus Utvik, sænskur gagnrýnandi: "Don´t bother with Stieg Larsson, Kallentoft is better."
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þann 18. júlí nk. kemur út bókin ...og svo kom Ferguson. Í ár eru liðin rétt sextíu ár frá því fyrstu Ferguson-dráttarvélarnar komu til Íslands. Af því tilefni öðrum fremur hefur BJARNI GUÐMUNDSSON á Hvanneyri tekið bókina saman með aðstoð fjölda heimildarmanna. Bókin er gefin út með stuðningi Landbúnaðarsafns Íslands og rennur hluti andvirðis bókarinnar til safnsins.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag birtu verslanir Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar nýjan lista yfir mest seldu kiljurnar. Listinn er gerður út frá sölu dagana 10. - 16. júní. Óheillakrákan eftir Camillu Läckberg er í 1. sæti og síðan koma þær hver af annarri, bækur Uppheima, Þar sem sólin skín eftir Lizu Marklund (5), Rauðbrystingur eftir Jo Nesbø (6), Kallaðu mig prinsessu eftir Söru Blædel (7), Steinsmiðurinn (14) og Predikarinn (15) báðar eftir Camillu Läckberg.
Af 15 söluhæstu kiljunum í síðustu viku eiga uppheimar sex bækur sem hlýtur að teljast frábær árangur.
Óheillakrákan er í 2. sæti yfir mest seldu bækurnar í öllum flokkum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag sæmdi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeirra á meðal var BÖÐVAR GUÐMUNDSSON. Hann var sæmdur verðskulduðum riddarakrossi fyrir framlag til íslenskrar menningar og bókmennta.
Uppheimar óska Böðvari til hamingju.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
STEINTRÉ eftir Gyrði Elíasson hefur verið tilnefnt til hinna alþjóðlegu Frank O'Connor smásagnaverðlauna en það eru helstu verðlaun sem veitt eru fyrir smásögur. Ensk þýðing Victoriu Cribb er tilnefnd á lista fimmtíu bóka en síðar í sumar verður fækkað í hópnum í sex til átta bækur. Á listanum er Gyrðir meðal margra þekktra rithöfunda. FRANK O´CONNOR smásagnaverðlaunin verða afhent á Írlandi í haust.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa tryggt sér útgáfuréttinn á bókum sænska rithöfundarins, JOHANS THEORIN en hann hlaut GLERLYKILINN á dögunum fyrir aðra bók sína, NATTFÅK (Næturstormur). Fyrsta bók hans, SKUMTIMMEN, sem kom út fyrir tveimur árum, er tilnefnd til GULLNA RÝTINGSINS 2009 í Englandi. Bókin hefur verið seld til 18 landa og hvarvetna hlotið einróma lof.
Bókin FRELSEREN eftir JO NESBØ, höfund RAUÐBRYSTINGS sem kom út hjá Uppheimum snemma í vor, er einnig tilnefnd til GULLNA RÝTINGSINS.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 „Camilla Läckberg vekur aðdáun vegna hæfni sinnar að halda mörgum boltum – og afbrotum – á lofti. Lesandanum er haldið föngnum á nákvæmlega réttu stigi óvissunnar. Frásögnin er hæg og skipuleg og hún gefur sér góðan tíma til að skyggnast inn í sálarlíf persónanna, um leið og spennan eykst óbærilega þegar örlagaþrungin lausn gátunnar nálgast.“ Svenska dagbladet
Sigrún Ástríður Eiríksdóttir þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|

Óheillakrákan er æsispennndi og grípandi glæpasaga þar sem Patrik Hedström stendur frammi fyrir stærsta verkefni lífs síns.
Camilla Läckberg er fædd árið 1974 og hefur á fáum árum vakið heimsathygli fyrir glæpasögur sínar sem nú eru orðnar sex talsins. Það er vægt til orða tekið að íslenskir lesendur hafi tekið bókum hennar fagnandi. Fyrstu þrjár bækur Camillu, Ísprinsessan, Predikarinn og Steinsmiðurinn hafa þegar verið gefnar út á íslensku.
Sigurður Þór Salvarsson þýddi
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|

Sara Blædel, fædd 1964, starfaði sem blaðamaður um níu ára skeið og hefur jafnframt leikstýrt sjónvarpsþáttum fyrir danska sjónvarpið. Hún stofnaði eigin bókaútgáfu sem sérhæfir sig í glæpasögum. Fyrsta skáldsaga Söru kom út árið 2004 og sló eftirminnilega í gegn. M.a. hafa danskir lesendur kosið hana „vinsælasta rithöfund Danmerkur“.
„Ég gat ekki lagt bókina frá mér! Sagan er heillandi og hrollvekjandi í senn, því þetta gæti svo auðveldlega átt sér stað.“ Bogormen
Auður Aðalsteinsdóttir þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|

... segir Bryndís Loftsdóttir hjá bókabúðum Eymundssonar en nýr metsölulisti búðanna var birtur í dag. Listinn er gerðir út frá sölu dagana 15. apríl til 21. apríl. Í síðustu viku höfðu þessir norsku og sænsku glæpasagnahöfundar, Jo Nesbø og Liza Marklund, skipt um sæti - og þeir endurtaka leikinn á nýjan leik, RAUÐBRYSTINGUR eftir Jo Nesbø er aftur kominn í fyrsta sæti listans og ÞAR SEM SÓLIN SKÍN eftir Lizu Marklund, er í 2. sæti. DÆTUR MÁLARANS eftir Anna-Karin Palm fikrar sig aftur upp í níunda sætið.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Nýr metsölulisti Eymundssonar og Bókabúðar Máls og menningar var birtur í vikunni. Bækur Uppheimar tróna á toppnum líkt og í síðustu viku en Liza Marklund og Jo Nesbø hafa skipt um sæti. Bók Lizu, ÞAR SEM SÓLIN SKÍN, er því í fyrsta sæti listans og RAUÐBRYSTINGUR Jo Nesbø í öðru sæti.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Metsölulisti Eymundssonar og Bókabúðar Máls og menningar var birtur í dag. Þrjár bækur Uppheimar verma listann. Í fyrsta sæti er RAUÐBRYSTINGUR eftir Jo Nesbö, í því öðru er ÞAR SEM SÓLIN SKÍN eftir Lizu Marklund og loks í 9. sæti er bókin DÆTUR MÁLARANS eftir Önnu-Karin Palm. Bókum Uppheima og Undirheima er tekið fagnandi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|

Bækur JO NESBØ um rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole hafa farið sigurför um heiminn og koma nú út í vel á fjórða tug landa. RAUÐBRYSTINGUR er sú fyrsta sem þýdd er á íslensku. Bókin hlaut norsku bóksalaverðlaunin árið 2000 og hefur jafnframt verið kosin besta innlenda glæpasaga allra tíma af lesendum í Noregi.
Bjarni Gunnarsson þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Óþolinmóðir aðsáendur Lizu Marklund geta nú tekið gleði sína því nýju bókinni verður dreift í bókaverslanir nú á fimmtudag og bókin kemur því formlega út þann 3. apríl eins og kynnt var. Forsalan á hér á vef Uppheima hefur gengið vonum framar og þökkum við frábærar viðtökur. Ljóst er að unnendur góðra glæpasagn munu í framtíðinni leita stíft í Undirheimana.
Tilboðsverð: 1.790 KR. Enginn sendingarkostnaður innanlands!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Uppheimar gefa út skáldsöguna Dætur málarans eftir sænsku skáldkonuna Önnu-Karin Palm. Bókinni verður dreift í búðir þann 3. apríl. Dag nokkurn berst Maríu og Martin bróður hennar málverk frá ókunnri konu á Englandi. Málverkið er eftir föður þeirra, en hann hvarf að heiman þegar þau voru enn lítil börn. Þau ferðast til Suður-Englands og finna fljótt slóð föður síns. Hjalti Rögnvaldsson þýddi.
Tilboð: 1.790.-
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Fyrsta prentun af bók Finnboga Hermannssonar, Í HÚSI AFA MÍNS, er uppseld. Bókin hefur nú verið endurprentuð og sem kilja.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent 15. mars, á bókmenntahátíð kvenna, Góugleðinni. Í flokki fagurbókmennta voru veitt tvenn verðlaun og hlaut Kristín Ómarsdóttir önnur þeirra fyrir ljóðabókina SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag var tilkynnt hvaða höfundar væru tilnefndir til viðurkenningar Hagþenkis. Meðal höfunda að þessu sinni er Aðalsteinn Ingólfsson fyrir bókina ELÍSAS B. HALLDÓRSSON - MÁLVERK/SVARTLIST. Um bókina segir: „Klassísk listaverkabók þar sem fræðileg úttekt á verkum listamannsins ber frásögn af ævi hans uppi“. Sjá tilnefningar á vef Hagþenkis.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
. . . segir Guðmundur Andri Thorsson um listaverkabókina ELÍAS B. HALLDÓRSSON - MÁLVERK/SVARTLIST. Bókin þykir í alla staði hin glæsilegasta. Ef smellt er á titill fréttar má kynna sér nokkur ummæli um bókina.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Böðvar Guðmundsson er tvímælalaust meðal ástsælustu skálda og rithöfunda þjóðarinnar. Auk fjölmargra bóka með ljóðum og sögum vann hann hugi og hjörtu landsmanna með eftirminnilegum hætti með skáldsögum sínum um íslenska vesturfara, Híbýli vindanna og Lífsins tré, og með smásagnasafninu Sögur úr Síðunni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þann 18. des. var upplestur í Skrúðgarðinum. Eftirtaldir höfundar lásu úr verkum sínum, Auður Jónsdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Helgi Guðmundsson, Sjón, Stefán Máni og Ævar Örn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þann 18. desember var tilkynnt um styrkveitingar úr nýræktarsjóði Bókmenntasjóðs. Veittir voru fimm styrkir og hlaut smásagnasafn Magnúsar Sigurðssonar, HÁLMSTRÁIN, einn þeirra.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í Fréttablaðinu 14. des. skrifar Sigurður Hróarsson um ljóðabók Kristínar Ómarsdóttur SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA. Þar segir hann m.a. „ ... myndmálið er blátt áfram, engir stælar, stríð og sérstæð mælska, hrollköld kímnigáfa sem á sér vart hliðstæðu. Bókin er bæði fyndin og hvöss, tárin eru beggja orð.“ Nánar um ritdóminn ef smellt er á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
„Þá hefur Ævar Örn Jósepsson sent frá sér sína fimmtu bók ... Ævar hefur verið í stöðugri framför sem krimmahöfundur. Tvær síðustu bækur hans, Blóðberg og Sá yðar sem syndlaus er, voru verulega góðar og Land tækifæranna er hans besta ... Sagan byrjar með látum og það sem meira er: Hún heldur sínu striki. Þetta er sem sagt þrælþéttur og krassandi krimmi sem óhætt er að mæla með.“ Náner ef titill fréttar er valinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Önnur prentun af bókinni SAMSPIL eftir Benedikt Líndal tamingameistara og Friðþjóf Helgason ljósmyndara er komin út. Hér er á ferð einstök bók sem sameinar fræðslu, hugleiðingar og hreina upplifun.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þórarinn Þórarinsson skrifar krítik um LAND TÆKIFÆRANNA á DV.is í dag. Þar segir hann m.a. „ ... Ævar Örn er langbesti reyfarahöfundur landsins.“ Sjá nánar ef titill fréttar er valinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þessi orð eru titill greinar um ELÍAS B. HALLDÓRSSON listamann sem Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar í Morgunblaðið 8. des. sl. Í greininni er rætt við þá bræður, Gyrði og Sigurlaug Elíassyni um tilurð bókar um listamanninn og ýmislegt fleira.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í Lesbók Morgunblaðsins 6. desember birtist ritdómur um LAND TÆKIFÆRANNA, skrifaður af Fríðu Björk Ingvarsdóttur. Hún segir m.a.: „Spennan heldur vel og afraksturinn er ein besta glæpasaga sem skrifuð hefur verið á íslensku lengi.“ Á Bókmenntavefnum, bokmenntir.is, skrifar Ingibjörg Rögnvaldsdóttir „ ... það verður enginn svikinn af „jólakortinu“ frá þeim Árna, Katrínu, Guðna og Stefáni í ár.“
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Jón Þ. Þór birtir ritdóm um bók Finnboga Hermannssonar, Í HÚSI AFA MÍNS, á DV.is 7. des. - Hvunndagur á Njálsgötu og gefur henni 4 stjörnur af 5 mögulegum. Hann segir þar m.a. um bókina - „Hún er vel skrifuð og læsileg, bráðskemmtileg og vafalítið geta sumir gamlir Austurbæingar þekkt sig og nágranna sína á síðum hennar.“ Nánar um ritdóminn ef titill fréttar er valinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þann 2. desember, á fæðingardegi Elíasar B. Halldórssonar listamanns, kom út bókin ELÍAS B. HALLDÓRSSON - Málverk / svartlist - Paintings / Graphic Works. Bókin er yfirgripsmikið verk sem unnendur listar hans munu telja happafeng. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um bókina - ef bókarkápa hér til hægri er valin.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Bók Ævars Arnar, Blóðberg, kemur út í Þýskalandi á næsta vori. Þýskur titill bókarinnar er BLUTBERG. Útgefandi er btb, sem í gær, keypti útgáfuréttinn að LANDI TÆKIFÆRANNA og SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Bók Ævars Arnar, LAND TÆKIFÆRANNA, fer vel af stað. Í dag - sem telst formlegur útgáfudagur bókarinnar - hefur þýska útgáfufyrirtækið btb, sem er hluti af Random House, keypt útgáfuréttinn að bókinni. btb keypti einnig réttinn að SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER sem kom út 2006.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Bók Ævars Arnar, LAND TÆKIFÆRANNA, er komin úr prentun. Þetta er fimmta bókin um rannsóknarlöggurnar Katrínu, Stefán, Guðna og Árna. Bækur Ævars Arnar Jósepssonar njóta mikillar hylli lesenda enda er Ævar Örn í fremstu röð glæpasagnahöfunda landsins.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
„Snert hörpu mína ... himinborna dís” segir í vinsælu ljóði Davíðs Stefánssonar, en ljóðlínan spratt fram þegar ég sá titilinn á ljóðabókinni Sjáðu fegurð þína. Óneitanlega er þó fátt sem ber saman þeim ofurljúfa texta og frekar grimmlyndum ljóðum Kristínar Ómarsdóttur." Þannig kemst Úlfhildur Dagsdóttir að orði í upphafi umfjöllunar sinnar um bók Kristínar Ómarsdóttur. Sjá nánar ef smellt er á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í Viðsjá þann 10. nóvember sl. flutti Eiríkur Guðmundsson pistil um bók Magnúsar Sigurðssonar, HÁLMSTRÁIN. Ef þú smellir á titil fréttar getur þú kynnt þér hvað Eiríkur hafði að segja um bókina. Eins og margir vita þá hlaut Magnús nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabók sína, Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Kristín Rós Hákonardóttir sunddrottning er ungu fólki hvarvetna hvatning og fyrirmynd. Í óvenjulegri bók er lesendum veitt innsýn í líf og hugsanagang einstakrar afrekskonu sem af einurð og æðruleysi náði svo glæsilegum árangri.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Út er komin bókin Í HÚSI AFA MÍNS eftir Finnboga Hermannson. Hér rifjar hann upp bernskuslóðir sínar á Njálsgötunni á árunum eftir stríð. Stíllinn ætti að koma kunnuglega fyrir sjónir þeim sem hafa hlustað á útvarpspistla Finnboga gegnum tíðina, góðlátleg kímnin á sínum stað og tekur oftar en ekki völdin í textanum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Ef smellt er á titil fréttar þá má sjá myndir af þeim höfundum er lásu úr verkum sínu á bókmenntakvöldi UPPHEIMA. Ævar Örn var floginn til Finnlands en í hans stað mætti "svartur engill".
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Miðvikudaginn 5. nóvember kl. 20:30 bjóða UPPHEIMAR til bókmenntakvölds í Skrúðgarðinum á Akranesi. Kynnt verða ný íslensk skáldverk sem út koma hjá Uppheimum og höfundar lesa úr bókum sínum. Bækur frá Uppheimum verða til sýnis og sölu og höfundar árita bækur sínar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, STEINTRÉ (2005), kemur út í Englandi í dag. Þýðandi er Victoria Cribb, forlagið Comma Press gefur út.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Við upphaf menningar- og listahátíðarinnar Vökudaga hlutu Uppheimar Menningarverðlaun Akraness fyrir framlag sitt til menningar á Akranesi á árinu 2008.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag voru Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar afhent í Höfða. Að þessu sinni hlýtur þau Magnús Sigurðsson fyrir ljóðabókina Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu. Uppheimar gefa nú út tvær bækur eftir þennan efnilega höfund, þ.e. ljóðabókina sem hér hefur verið nefnd og HÁLMSTRÁIN.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í nóvember er væntanleg listaverkabók um Elías B. Halldórsson. Ef smellt er á titil fréttar - þá er hægt að nálgast kynningarbækling um bókina.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Föstudaginn 24. október verður opnaður í Skrúðgarðinum á Akranesi BÓKAMARKAÐUR UPPHEIMA. Splunkunýjar bækur á sérstökum vildarkjörum og eldri bækur á lagerútsöluverði. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Viðvörun - í þessum ljóðum er fjallað um fegurðina! Sjáðu fegurð þína staðfestir að Kristín Ómarsdóttir er í fremstu röð íslenskra ljóðskálda og hefur þar sérstöðu. Kristín hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Magnús Sigurðsson er ungur höfundur sem stígur hér fram á ritvöllinn með sína fyrstu bók. Stíllinn er fágaður og sögupersónurnar búa um sig í huga lesandans og eiga það síðan til að skjóta upp kollinum fyrirvaralaust, lengi eftir að lestri er lokið. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Hér segir frá lítilli stelpu í sveit en þar áttu allir að gera eitthvað til gagns. Stelpunni fannst alls ekki leiðinlegt að reka kýrnar, þær voru notalegur félagsskapur. Hér fer saman falleg og vel skrifuð saga og stórkostlegar myndir Erlu Sigurðardóttur myndlistarkonu. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bjarni Bjarnason sendir nú frá sér barnabók, söguna um strákinn Kolbein og þau ævintýri sem hann lendir í. Kjartan Hallur Grétarsson myndskreytir bókina. "Draugahöndin er æðislegt ævintýri og myndirnar stórkostlegar." Mugison. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bragi Þórðarson, fyrrum útgefandi og eigandi Hörpuútgáfunnar, hefur nú sent frá sér nýja bók. Í bókinni er sagt frá baráttufólki á Skaganum! Brugðið er upp sex svipmyndum af þekktum Akurnesingum. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Einar Falur skrifar í Morgunblaðið í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð á RUV, en fyrsti þátturinn verður sýndur næstkomandi sunnudagskvöld. Þáttaröðin ber heitið "Svartir englar" og er byggð á bókum eftir Ævar Örn Jósepsson. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Á haustmánuðum gefa Uppheimar út smásögur eftir ungan og upprennandi rithöfund. Sá heitir Magnús Sigurðsson. Af þessu verki hans má sjá að þarna fer rithöfundur sem á sér bjarta framtíð.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Árbók Akurnesinga 2008 er komin út. Henni verður dreift til áskrifenda á Akranesi nú um helgina. Áskrifendur utan Akraness fá bókina eftir helgi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
ÁRBÓK AKURNESINGA 2008 er væntanleg um miðjan ágústmánuð. Upphaflega stóð til að hún kæmi út um þessi mánaðarmót en ekki getur orðið af því vegna óviðráðanlegra tafa. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bók Ævars Arnar, SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER, kemur út í Danmörku í haust, nánar tiltekið þann 9. september. Danskur titlill bókarinnar er UDEN SYND. Útgefandi er L & R - Lindhardt og Ringhof. Áslaug Rögnvaldsdóttir er þýðandi bókarinnar en hún þýddi jafnframt BLÓÐBERG / BLODBJERGET sem kom út á dönsku á síðast liðnu ári. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
LÍFSTÍÐ vermir enn 1. sæti kiljulistans, nú 5. vikuna í röð, og bendir flest til þess að hún nái að sitja í því sæti jafn lengi og STEINSMIÐURINN. STEINSMIÐURINN þokast upp listann yfir 15 mest seldu kiljurnar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ný bók eftir Lizu Marklund, LÍFSTÍÐ, í þýðingu Önnu R. Ingólfsdóttur. LÍFSTÍÐ er sjöunda sjálfstæða sagan um Anniku Bengtzon og hefst þar sem ARFUR NÓBELS endaði. Nánar um efni bókar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Bækur Ævars Arnar, SKÍTADJOBB, SVARTIR ENGLAR og BLÓÐBERG hafa nú verið endurútgefnar í kilju. SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER kom út í kilju 2007. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Þessa dagana eru starfsmenn Uppheima á Landsmóti hestamanna sem haldið er á Hellu til að fylgja eftir nýrri bók, SAMSPIL / HARMONY, en hún kom út fyrir mótið. Höfundur bókarinnar er Benedikt Líndal og ljósmyndari er Friðþjófur Helgason. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Útgáfudagur listaverkabókarinnar ÚR MYNDSMIÐJU / SHAPING, um listamanninn Guðmund Ármann Sigurjónsson, er 5. júlí. Þann dag opnar Guðmundur sýningu á verkum sínum á Akureyri. Yfirskrift sýningarinnar er Gárur / Ripples. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bók Lizu Marklund, LÍFSTÍÐ, sem kom út í síðustu viku, fór strax í 1. sæti yfir söluhæstu kiljurnar. Einnig vermir hún 1. sætið yfir söluhæstu bækurnar í öllum flokkum. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í tilefni af aldarafmæli skólahalds í Borgarnesi haustið 2008 og 50 ára afmælis skólahalds að Varmalandi 2005 verður gefin út saga BARNA- og UNGLINGAFRÆÐSLU Í MÝRASÝSLU 1880-2007. Söguna ritar Snorri Þorsteinsson. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í gær, 13. júní, voru Íslensku leiklistarverðlaunin 2008 afhend. Bjarni Jónsson leikritaskáld, fékk Grímuna fyrir útvarpsleikrit ársins. Bjarni, til hamingju!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 LÍFSTÍÐ eftir Lizu Marklund fer í dreifingu mánudaginn 16. júní. Þetta er sjöunda sjálfstæða sagan um Anniku Bengtzon og hefst þar sem ARFUR NÓBELS endaði. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Fyrsta prentun á STEINSMIÐNUM eftir Camillu Läckberg er uppseld. Önnur prentun er nú fáanleg.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
DIMMA, tónlistar- og bókaútgáfan hefur gefið út SANDÁRBÓKINA á hljóðbók. Er það höfundurinn sjálfur, Gyrðir Elíasson, sem les og eins og segir á umslagi bókarinnar "Sandárbókin nýtur sín einkar vel í lestri höfundar". Þeir sem hafa lesið bókina eru hvattir til að hlusta á hljóðbókina - í lestri Gyrðis öðlast SANDÁRBÓKIN nýja vídd. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Í næsta mánuði er væntanleg bókin SAMSPIL eftir þá félaga Benedikt Líndal tamningameistara og Friðþjóf Helgason ljósmyndara. SAMSPIL kemur einnig út á ensku í þýðingu Helgu Thoroddsen. Enskur titill bókarinnar er HARMONY. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Bækur Ævars Arnar, SKÍTADJOBB, SVARTIR ENGLAR og BLÓÐBERG verða endurútgefnar í kilju en þær hafa ekki verið fáanlegar um hríð. Bókanna er að vænta í lok júnímánaðar. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Ný bók eftir sænska rithöfundinn Lizu Marklund, LÍFSTÍÐ, í þýðingu Önnu R. Ingólfsdóttur, er væntanleg í júni. LÍFSTÍÐ verður bók mánaðarins hjá Uglu - bókaklúbbi. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Bjarni Jónsson leikritaskáld hlýtur tilnefningu sem "Leikskáld ársins". Í flokknum "Útvarpsverk ársins" á Bjarni tvö verk og er annað þeirra byggt á sögu Ævars Arnar, Sá yðar sem syndlaus er. Í sama flokki hlýtur verk Kristínar Ómarsdóttur, Smá sögur, tilnefningu. Bjarni og Kristín, innilega til hamingju. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa tryggt sér útgáfuréttinn á bókum norska rithöfundarins Jo Nesbö en hann nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Er það fagnaðarefni að bækur hans skuli verða þýddar á íslensku. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Eins og fyrri miðvikudaga birtir Eymundson nýjan metsölulista, í þetta sinn er hann gerður út frá sölu dagana 30. apríl - 6. maí. Þrjár bækur Uppheima eru á listanum: STEINSMIÐURINN eftir Camillu Läckberg, FLAUTULEIKUR ÁLENGDAR, ljóðaþýðingar Gyrðis Elíassonar og LOFTSKEYTAMAÐURINN eftir Knut Hamsun. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Nýr metsölulisti bókaverslana Eymundson er birtur í dag, gerður út frá sölu dagana 23. apríl - 29. apríl. Steinsmiðurinn fór í 2. sæti kiljulistans í síðustu viku, eftir að hafa verið þrjár vikur í 1. sæti. Hann vermir því nú á nýjan leik - 1. sætið. Flautuleikur álengdar, ljóðaþýðingar Gyrðis, er í 5. sæti í flokki innbundina skáldverka og ljóðabóka. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Íslensku þýðingarverðlaunin 2008 voru afhend á Gljúfrasteini í dag. Að þessu sinni hlaut þau Eiríkur Örn Norðdahl fyrir þýðingu sína á bókinni Móðurlaus Brooklyn eftir Jonathan Lethem, útgefandi er Bjartur. Við óskum Eiríki Erni og Bjarti til hamingju. Þess má geta að Eiríkur Örn þýddi bókina SÚKKULAÐI eftir Joanne Harris en hún kom út hjá Uppheimum á síðast liðnu ári. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í viku bókarinnar koma út tvær nýjar ljóðabækur hjá Uppheimum - nánar tilekið á morgun sumardaginn fyrsta. Þær eru Borgarlínur eftir Ara Trausta Guðmundsson og Flautuleikur álengdar ljóðaþýðingar Gyrðis Elíassonar. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Kristín Ómarsdóttir og Sigfús Bjartmarsson hafa bæst í hóp rithöfunda hjá Uppheimum. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Nýr metsölulisti bókaverslana er birtur í dag, gerður út frá sölu dagana 9. apríl - 15. apríl. Steinsmiðurinn er enn í 1. sæti kiljulistans - þriðju vikuna í röð og heldur 5. sæti yfir mest seldu bækurnar í öllum flokkum. Nánar - smelltu á titil fréttar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar birta nýjan metsölulista sem gerður er út frá bóksölu dagana 26. mars - 1. apríl. Steinsmiðurinn eftir Camillu Läckberg er enn í 1. sæti kiljulistans en í 5. sæti yfir mest seldu bækurnar í öllum flokkum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Vinna við Árbók Akurnesinga er í fullum gangi. Fastir þættir verða á sínum stað, þar á meðal myndaþáttur af nýjum Akurnesingum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Sandárbókin eftir Gyrði Elíasson kom út í kilju á afmælisdegi höfundar. Bókin hlaut einróma lof gagnrýnenda og lesenda þegar hún kom út sl. haust og seldist upp fyrir jólin. Uppheimar brugðu því á það ráð að endurprenta bókina í pappírskilju, enda ótækt að slík afburðabók sé ófáanleg.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þýðing Jóns Kalmans Stefánssonar á Loftskeytamanninum eftir Knut Hamsun hefur verið tilnefnd til íslensku þýðingaverðlaunanna. Þetta er fagnaðarefni, enda frábær bók í afburðaþýðingu eins virtasta höfundar Íslands um þessar mundir. Um Knut Hamsun þarf ekki að fjölyrða.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þriðja bókin um Patrik og Ericu eftir Camillu Läckberg, Steinsmiðurinn, er komin í verslanir. Bókin fór beint í þriðja sæti sölulista Eymundsson í síðustu viku. Tafir urðu á tollafgreiðslu á upplaginu sem tafði dreifingu en nú er bókin á leið til þyrstra lesenda.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Vikuna 26. mars til 1. apríl var Steinsmiðurinn eftir Camillu Läckberg í fyrsta sæti á Metsölulista Eymundsson yfir skáldverk í vasabroti. Á heildarlistanum yfir mest seldu bækur í öllum flokkum var Steinsmiðurinn í öðru sæti. Það er því ljóst að Camillu Läckberg á hug og hjörtu íslenskra lesenda. Steinsmiðurinn er þriðja bókin eftir þennan ástsæla rithöfund sem kemur út á íslensku; hinar eru Ísprinsessan og Predikarinn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þann 30. janúar var skrifað undir samning við Borgarbyggð þess efnis að Uppheimar taki að sér að gefa út bókina "Barna- og unglingafræðsla í Mýrasýslu, 1880 - 2007" eftir Snorra Þorsteinsson.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Jólaleik Uppheima og Models er lokið og vinningshafar hafa verið dregnir út. Fimm heppnir þátttakendur hljóta vinning. Vinningar eru Árbækur Akurnesinga, Sögur úr Síðunni eftir Böðvar Guðmundsson, Land þagnarinnar eftir Ara Trausta Guðmundsson, Akranes - við upphaf nýrrar aldar eftir Friðþjóf Helgason og Samsung 32" sjónvarpstæki.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Hið árlega Uppheimahlaup var haldið á Akranesi þann 14. desember. Þátttaka var góð og létu keppendur ofsaveður er geysaði, ekki á sig fá.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Sagan gerist um vetur í Fjällbacka, fæðingarbæ Camillu Läckberg og Ingrid Bergman. Hún bregður upp mynd af lokuðu samfélagi þar sem allir vita allt um alla og álit út á við skiptir höfuðmáli. Nokkuð sem getur haft örlagarík áhrif við rangar aðstæður. Kona finnst látin í baðkarinu á æskuheimili sínu, sem orðið er að sumardvalarstað fjölskyldunnar, og virðist í fyrstu um sjálfsvíg að ræða. Anna R. Ingófsdóttir þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þegar Vianne Rocher flyst búferlum í franska smáþorpið Lansquenet og opnar þar súkkulaðiverslun, gegnt kirkjunni, þykist sóknarpresturinn hafa borið kennsl á mikla ógn við söfnuð sinn. Súkkulaði er bókmenntaveisla fyrir öll skilningarvit. Margrómuð skáldsaga sem samnefnd kvikmynd var gerð eftir. Eiríkur Örn Norðdahl þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Matt Freeman er ekki eins og aðrir unglingar. Á fimmtánda ári kemst hann í kast við lögin og er sendur á heimili út í sveit, skammt frá dularfullu þorpi þar sem spennandi og undarlegir atburðir gerast. Gátt hrafnsins er fyrsta sagan í flokki fimm bóka um hættuför á vit hins óþekkta. Þorvaldur Kristjánsson þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Þessi ævintýrabók kom út í Bretlandi í byrjun ágúst og Ísland er með fyrstu löndum til að birta hana í þýðingu. Það er hinn mikilvirki þýðandi Kristín R. Thorlacius sem þýðir. Hér er á ferðinni ævintýri sem byggir á norrænni goðafræði, æsispennandi, fyndið og örugg ávísun á andvökunótt - ekki bara hjá unglingum heldur fullorðnum líka!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í gær var Aðventublaði Skessuhorns deift um allt Vesturland en því fylgdi 8 síðna Bókatíðindi Uppheima með fréttum úr útgáfunni, viðölum við höfunda og þýðendur ásamt auglýsingum um bækur útgáfunnar. Ennfremur var kynntur til sögunnar Jólaleikur Uppheima og Módels á Akranesi þar sem fyrstir vinningur er 32" sjónvarp. Til að taka þátt er nóg að smella á hnappinn hér til vinstri og skrá nafn og heimilsfang.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Jón Yngvi Jóhansson gagnrýndi Sandárbókina á Stöð 2 í gær í stjörnum prýddum dómi: „Ef maður les Sandárbókina í samhengi við fyrri prósaverk Gyrðis kemur í ljós að hér eru á ferð svipuð tákn og birtast allt frá fyrstu sögum hans, það sama á við um náttúruskynjunina og húmorinn sem er svo fíngerður að mörgum lesendum yfirsést hann. En tök Gyrðis á forminu verða sífellt fullkomnari, þótt þessi saga geti virkað yfirlætislaus og einföld á yfirborðinu er það fjarri lagi, undir kraumar mikil harmsaga af einsemd og fórn listamanns – og engin trygging fyrir því að sú fórn skili honum þeim ávöxtum sem hann sóttist eftir.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Ævari Erni er líkt líkt við sænsku glæpasagnahjónin Sjöwall og Wahlöö í lofsamlegum ritdómi í Politien. Gagnrýnandi blaðsins lofar rithöfundinn fyrir að vekja lesendur til umhugsunar um umhverfis- og atvinnumál, án þess að falla í þá gryfju að prédika, og hrósar honum sérstaklega fyrir lýsingar á sambandi lögreglumannanna Árna og Guðna. Fleiri lofsamlegar umsagnir hafa verið að birtast í dönskum miðlum á síðustu vikum.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Segir Börkur Gunnarsson í ritdómi í Viðskiptablaðinu í gær þar sem hann hælir Bjarna fyrir gott verk. "Myndvísi Bjarna er umtalsverð og hann fer í skrifum sínum leiðir sem eru fáfarnar í íslenskum bókmenntum og er fagnaðarefni. (. . .) Sýn hans á sögusviðið og persónurnar er frumleg og sterk. (. . .) Bjarni dregur upp ferskar myndir af Reykjavík með litríkum aukapersónum, auðugu ímyndunarafli og lúmskri kímnigáfu sinni. Þetta er skemmtilesning sem skilur eftir frækorn vangaveltna og samviskubits í lesandanum - samviskubits yfir því að vera til."
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Margir sjónvarpsáhorfendur hafa ekið augun í bókaauglýsingar Uppheima. Það er Minerva - miðlun & útgáfa sem sá um hönnun og gerð þessara auglýsinga.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
SÖGUR ÚR SÍÐUNNI í fjórða sæti á metsölulista Eymundsson í flokknum innbundin skáldverk og ljóð sem birtur var í dag. Það skilar bókinni í 9. sæti á aðallistanum. ÖSKUDAGAR eru í 11. sæti og SANDÁRBÓKIN í því þrettánda. Allar þessar bækur hafa verið að fá einstaklega lofsamleg ummæli gagnrýnenda.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
 Uppheimar gefa út skáldsöguna LAND ÞAGNARINNAR eftir Ara Traust Guðmundsson. Hér er á ferðinni óvenjuleg saga þar sem rakin eru flókin fjölskyldutengsl sem eiga sér rætur í stríðshrjáðri Evrópu. LAND ÞAGNARINNAR er önnur skáldsaga Ara Trausta.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Fyrsta prentun af verðlaunabók Ara Jóhannessonar seldist upp á skömmum tíma. Bókin var í 1. sæti metsölulista Eymundsson í flokknum innbundin skáldverk og ljóð í liðinni viku. Ný prentun er komin í verslanir. Þrátt fyrir að bókin væri horfin úr hillum margra verslana var hún enn í þriðja sæti í sínum flokki í verslunum Eymundssonar
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Það er vel við hæfi að ný skáldsaga eftir Bjarna Bjarnason komi út á þessum degi því hann á afmæli í dag! BERNHARÐUR NÚLL er sjötta skáldsaga Bjarna og ber öll hans helstu höfundareinkenni. Hér er á ferðinni sterk saga þar sem efnistök eru frumleg að vanda og stíllinn lipur og beittur. Til hamingju með daginn, Bjarni.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag kom út ljósmyndabókin AKRANES - við upphaf nýrrar aldar eftir Friðþjóf Helgason. Við það tækifæri afhenti Friðþjófur Gunnari Sigurðssyni, forseta bæjarstjórnar Akraness, eintak af bókinni, á upplestrarkvöldi Uppheima í Skrúðgarðinum á Akranesi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í þessari nýju ljóðabók yrkir höfundurinn Bjarni Gunnarsson um föðurhlutverkið. Að taka ábyrgð á eigin lífi er ævilangt starf en hvernig er að bera ábyrgð á lífi annarra? Hvernig er að stofna fjölskyldu og vera faðir? Bjarni yrkir um hlutskipti mannsins, um hlutverk og ábyrgð í viðsjárverðum heimi þar sem takast á ást og fegurð, ótti og ljótleiki, fyrirgefning og sátt.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Ljóðið ratar vissulega til sinna. ÖSKUDAGAR, ljóðabók Ara Jóhannessonar, er í fyrsta sæti á metsölulista Eymundsson í flokknum innbundin skáldverk og ljóð. Þetta eru merkileg tíðindi og einkar ánægjuleg enda fátítt, ef ekki einsdæmi, að fyrsta ljóðabók höfundar nái þessum árangri. Bókin er nú uppseld hjá forlaginu en önnur prentun á leiðinni. Uppheimar óska Ara til hamingju með þessi frábæru viðbrögð við góðri bók.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag kemur út smásagnasafnið SÖGUR ÚR SÍÐUNNI eftir meistara Böðvar Guðmundsson. Fyrir bókafólk er þetta fagnaðarefni enda 11 ár síðan Böðvar sendi síðast frá sér frumsamda bók.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Nýútkomin skáldsaga Gyrðis Elíassonar, SANDÁRBÓKIN, hefur fengið einstaklega lofsamleg ummæli í fjölmiðlum. Ástráður Eysteinsson birti greinargóða umsögn í Lesbók Morgunblaðsins og Ása Helga Hjörleifsdóttir fjallaði ítarlega um bókina í einstaklega vönduðum ritdómi í Víðsjá þar sem bókin var réttnefnd „snilldarverk.“
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Framhald GALDRASTELPUNNAR, SEIÐKONAN eftir Celiu Rees er komin í verslanir. Lesandinn heillaðist af Maríu í fyrri bókinni og nú fær hann loksins að vita hvað varð um hana. Saga Maríu er ástríðufull og spennandi. Kristín R. Thorlacius þýddi.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar gefa út þýðingu Jóns Kalmans Stefánssonar á Loftskeytamanninum eftir Knut Hamsun. Loftskeytamaðurinn kom út árið 1904, var kvikmynduð níutíu árum síðar og er stundum sögð skemmtilegasta bók Hamsuns. Hamsun hafði mikil áhrif á íslenska höfunda á nýliðinni öld - og hefur enn.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Ljóðabók Ara Jóhannessyni fék Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Í dag kemur út skáldsagan SANDÁRBÓKIN eftir Gyrði Elíasson. Fráskilinn málari sest að í hjólhýsabyggð og hyggst einbeita sér að því að mála tré. Hann hefur orðið fyrir ýmsum skakkaföllum í lífinu og dvöl hans í þessari sérkennilegu byggð er öðrum þræði hugsuð til að freista þess að öðlast hugarró. Ýmislegt reynist þó standa í veginum. SANDÁRBÓKIN er fimmta skáldsaga þessa listfenga og virta höfundar.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa fest kaup á ARI útgáfu. ARI útgáfa, sem var í eigu Önnu R. Ingólfsdóttur, hefur gefið út sænsku glæpasagnadrottningarnar Lizu Marklund og Camillu Läckberg sem hafa átt miklum vinsældum að fagna. Samkomulag hefur verið gert við Önnu R. Ingólfsdóttur um áframhaldandi þýðingar hennar á verkum þessara höfunda og fleiri sænskra höfunda fyrir Uppheima.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Random House hefur fest kaup á útgáfuréttinum á BLÓÐBERGI eftir Ævar Örn Jósepsson í Þýskalandi en Uppheimar höfðu áður selt réttinn á þessari vinsælu glæpasögu til Danmerkur og Svíþjóðar þar bókin kom út fyrir skemmstu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Glæpasögur eftir Ævar Örn Jósepsson gera víðreist um þessar mundir en bækur hans eru að komu út í Þýskalandi, Danmörku og Svíþjóð nú í lok september. Höfundurinn sjálfur er líka á flandri. Í lok október er Ævar Örn gestur á mikilli glæpasagnahátið í Berlín ("Krimitage Berlin") ásamt fleiri íslenskum glæpasagnahöfundum. Þann 11. nóvember áritar hann síðan nýútkomna Svarta engla á sænsku og les upp í stærstu bókabúðinni í Helsingborg. Með því að smella á fyrirsögnina hér að ofan er hægt að lesa meira um þessa útrás Ævars og Uppheima!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa gefið út tvær kiljur á ensku, RAPTORHOOD (Vargatal) eftir Sigfús Bjart- marssonar og THE RETURN OF THE DIVINE MARY (Endurkoma Maríu) eftir Bjarna Bjarnson en það eru fyrstu bækurnar í nýjum bókaflokki sem nefnist Modern Icelandic Literature. Sarah M. Brownsberger þýðir Vargatal og David Mcduff þýðir Endurkomu Maríu.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Gyrðir Elíasson rithöfundur hefur sagt skilið við Eddu útgáfu og gengið til liðs við Uppheima. Í viðtali við Morgunblaðið hafði Gyrðir eftirfaranid að segja um vistaskiptin: "Eftir langan tíma fannst mér kominn tími til að breyta til. En auðvitað fer maður ekki alveg sáttur, maður breytir ekki til bara sísvona." Uppheima bíður það verðuga og spennandi verkefni að gefa út verk Gyrðis.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa samið við hinn þekkta og virta rithöfund Böðvar Guðmundsson um útgáfu á sagnasafninu SÖGUR ÚR SÍÐUNNI sem verður gefin út í haust. Áratugur er síðan Böðvar sendi síðast frá sér skáldverk en það var seinni hluti Vesturfarardúettsins vinsæla LÍFSINS TRÉ en fyrir það verk hlaut Böðvar Íslenskubókmenntaverðlaunin 1997. Það er óhætt að segja að Uppheimum hafi bæst verulegur liðstyrkur með komu Böðvars Guðmundssonar!
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Komið hefur í ljós galli í bókbandi Árbókar Akurnesinga 2007 sem er tilkominn vegna mistaka við prentvinnslu bókarinnar. Vegna þessa hefur verið ákveðið að láta prenta árbókina að nýju og er nýtt upplag væntanlegt í kringum 20. júlí.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
|
Árbók Akurnesinga 2007 er komin út. Viðtöl, greinar, annálar, æviágrip - allt á sínum stað sem lesendur þekkja.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Sagafilm hefur keypt kvikmyndaréttinn á þremur glæpasögum Ævars Arnar, SKÍTADJOBBI, SVÖRTUM ENGLUM og SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER, og ætlar að gera röð sjónvarpsþátta um lögguteymið Árna, Stefán, Katrínu og Guðna eftir bókunum. Leikstjóri verður Óskar Jónasson og handritshöfundar Sigurjón Kjartansson og Ævar Örn. Skrifað verður undir samninginn í dag.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Föstudaginn 23. mars næstkomandi geta glæpaþyrstir lesendur sökkt sér í nýja kiljuútgáfu af SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER eftir Ævar Örn Jósepsson en kiljunni verður dreift í verslanir þann dag.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Útgáfurétturinn á glæpasögunni SVARTIR ENGLAR eftir Ævar Örn Jósepsson hefur verið seldur til Svíþjóðar. Það er Schibsted Förlag sem keypti réttinn en það er sænskt dótturfélag norska fyrirtækisins Schibsted.
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|
|
Uppheimar hafa selt útgáfurétt á tveimur sögum Ævars Arnar Jóspessonar til Danmerkur. Það er stórútgáfan Aschehoug sem keypti réttinn en þess má geta að Gyldendal sýndi verkum Ævars mikinn áhuga í aðdraganda sölunnar. Verkin sem um ræðir eru sögunar Blóðberg og Sá yðar sem syndlaus er. Áslaug Rögnvaldsdóttir vinnur að þýðingu á Blóðbergi sem fer í slaginn um Glerlykilinn nú á vormánuðum.
|
|
|
 |
| |