FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
Steinsmiðurinn vinsæll 7. maí 2008

Eins og fyrri miðvikudaga birtir Eymundson nýjan metsölulista, í þetta sinn er hann gerður út frá sölu dagana 30. apríl - 6. maí. Þrjár bækur Uppheima eru á listanum: Steinsmiðurinn, Flautuleikur álengdar og Loftskeytamaðurinn.

STEINSMIÐURINN eftir Camillu Läckber, í þýðingu Önnu R. Ingólfsdóttur, heldur enn 1. sæti kiljulistans. Á heildarlistanum yfir mest seldu bækurnar í öllum flokkum er hann í 2. sæti.

FLAUTULEIKUR ÁLENGDAR - ýmsir höfundar, ljóðaþýðingar Gyrðis Elíassonar, er í 5. sæti fyrir innbundin skáldverk og ljóðabækur.
Flautuleikur álengdar er safn þýddra ljóða eftir samtímahöfunda frá Evrópu og Norður Ameríku. Mörg þessara skálda eru þekkt og viðurkennd, bæði í heimalöndum sínum og utan þeirra, en fæst þeirra hafa þó verið þýdd á íslensku áður. Af þeim sem eiga ljóð í safninu má nefna Michael Ondaatje og Anne Carson frá Kanda, Kenneth Rexroth, Bill Holm og Annie Dillard frá Bandaríkjunum, Norman MacCaig, Patrick Kavanagh og R. S. Thomas frá Bretlandseyjum, Tékkann Jirí Wolker og utan af jaðri Evrópu hljómar rödd hins tyrkneska Nazims Hikmet.

LOFTSKEYTAMAÐURINN eftir Knut Hamsun, í þýðingu Jóns Kalmans Stefánssonar, er á sama lista og Flautuleikur álengdar, í 9. sæti.
Knut Hamsun er einn af risum heimsbókmenntanna. Hemingway reyndi að skrifa eins og hann, Maxim Gorki dáði hann, Henry Miller sagði að verk Hamsuns hefðu bjargað lífi sínu, og hann hafði ómæld áhrif á Halldór Laxness, Gunnar Gunnarsson og fjölda annarra íslenskra höfunda.
Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS