|
|
 |
|
|
 |
| Uppheimahlaup - komið til að vera |
15. desember 2007 |
|
Hið árlega Uppheimahlaup var haldið á Akranesi þann 14. desember. Þátttaka var góð og létu keppendur ofsaveður er geysaði, ekki á sig fá. Þeir mættu sterkir til leiks, staðráðnir í að slá nýtt Uppheimamet. Strax á fyrstu metrunum var ljóst hvaða þátttakendur kepptust um fyrstu sætin. Endaði hlaup þannig að Hjördís Hjartardóttir sló gamalt met Guðlaugar Margrétar Sverrisdóttur sem kom fast á hæla hennar og í þriðja sæti var Ingibjörg Jóna Björnsdóttir. Uppheimar óska þeim til hamingju með frækilegan sigur.
Fjöldi þátttakenda hefur vaxið ár frá ári - er það merki um að Uppheimahlaup er komið til að vera.
Uppheimar þakka keppendum fyrir góða þátttöku og drengilega keppni um leið og þeir óska þeim og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|  Steinblóð | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|