FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
Ævar Örn tilnefndur til Glerlykilsins 2007 16. nóvember 2006


Í fréttatilkynningu frá Hinu íslenska glæpafélagi sem send var út í dag segir:

Dómnefnd Hins íslenska glæpafélags hefur lokið störfum en hlutverk hennar var að tilnefna íslenska glæpasögu útgefna árið 2005 til að keppa um Glerlykilinn, verðlaun Norrænu glæpasamtakanna SKS, Skandinaviska Kriminalsällskapet. Glerlykillinn fyrir bestu norrænu glæpasöguna árið 2005 verður afhentur vorið 2007. Nefndin var á einu máli um að tilnefna Blóðberg eftir Ævar Örn Jósepsson.

Í úrskurði nefndarinnar segir ennfremur:

"Þriðja glæpasaga Ævars Arnar Jósepssonar, Blóðberg, nýtir sér Kárahnjúka sem sögusvið; afskekktan stað þar sem fram fara umdeildar framkvæmdir og þar sem fólk úr öllum áttum kemur saman. Þetta býður upp á fjöruga frásagnarmöguleika sem Ævar vinnur vel úr í skemmtilegri úrvinnslu á sígildu formi glæpasögunnar. Dregin er upp skýr mynd af fjölbreyttum persónum, fléttan er fimlega unnin og stíllinn er leikandi léttur í spennandi frásögn."

Í dómnefnd Hins íslenska glæpafélags áttu sæti Gunnþórunn Guðmundsdóttir, Kristín Árnadóttir og Kristján Jóhann Jónsson.

Í samtali við Morgunblaðið sagði Ævar Örn m.a. að tilnefningin væri næstum því jafn skemmtilegt og þegar hann var tilnefndur í fyrsta sinn, fyrir Svarta engla árið 2005. Hann áréttaði þó að í tilnefningunni í ár væri fólginn sérstakur heiður í ljósi þess að síðasta ár hafi verið metár hvað varðar útgáfu glæpasagna á Íslandi.

Í viðtalinu sagði Ævar Örn ennfremur:

"Þetta opnar ýmsar dyr, og vonandi sem flestar, bæði hér heima og úti í löndum," svarar Ævar Örn aðspurður hvaða þýðingu tilnefningin hafi. "Þetta er ákveðinn stimpill sem auðveldar mönnum aðgang að hinum og þessum útgefendum, hvort sem þeir vinna eða ekki," heldur hann áfram en viðurkennir að vissulega sé alltaf betra að vinna eins og sannist í tilfelli Arnalds Indriðasonar, en Arnaldur hlaut Glerlykilinn árin 2002 og 2003 fyrir bækur sínar Grafarþögn og Mýrina.
Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS