|
|
 |
|
|
 |
| Ævar Örn Jósepsson semur við Uppheima |
27. október 2006 |
|

„Maðurinn, eða það sem eftir var af honum, sat í dökkbrúnum, djúpum leðurhægindastól gegnt sjónvarpinu – sem enn var í gangi – og hafði setið þar lengi. Mjög lengi.”
Miðaldra karlmenn sem skilja eftir áratuga hjóna- band eru líklegri en aðrir til að missa tökin á tilverunni og lenda í gröfinni langt fyrir aldur fram - ef þeim lánast ekki að finna sér nýja konu fljótlega. Ólafi Áka Bárðarsyni tókst ekki að finna sér nýja konu eftir skilnaðinn en hann fann Meistara Magnús, Sannleikann og Guð. Stefán, Katrín, Guðni og Árni, sem lesendur þekkja úr fyrri glæpasögum Ævars Arnar, þurfa hinsvegar að finna morðingja Ólafs.
Ævar Örn Jósepsson hefur skapað sér nafn sem einn fremsti spennusagnahöfundur landsins en sögur hans hafa hlotið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda.
„Með þessari bók er Ævar Örn orðinn einn af aðal sakamálahöfundum landsins, ef ekki sá besti.“ -Þórarinn Þórarinsson Fbl, – um Blóðberg
„Íslenskar sakamálasögur verða ekki betri en þetta.“ Björn Þór Vilhjálmsson Mbl – um Blóðberg
„Framúrskarandi sakamálasaga“ Morgunblaðið um Svarta engla (tilnefnd til Glerlykilsins, norrænu glæpasagna-verðlaunanna)
„Bók sem unnendur íslensku spennusögunnar mega ekki láta framhjá sér fara.“ Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, bokmenntir.is – um Skítadjobb
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|  Steinblóð | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|