FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA - ný ljóðabók Kristínar Ómarsdóttur 19. október 2008





















Sjáðu fegurð þína staðfestir að Kristín Ómarsdóttir er í fremstu röð íslenskra ljóðskálda og hefur þar sérstöðu. Kristín hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín.

Á bókarkápu segir:
"Viðvörun - í þessum ljóðum er fjallað um fegurðina!
Ef þú, lesandi góður, hyggst engu að síður opna bókina, þá bíður þín stórundarlegt ferðalag með skáldinu og leiðsögumanni þess. Þú ættir jafnvel að klæða þig vel, fara í úlpu eins og hinir túristarnir, því leiðin liggur um býsna naprar slóðir: Þið eigið meðal annars eftir að ferðast yfir nafnlaust ríki heimilisföður að nóttu til, gefa brjóst hjá líkkistu, taka þátt í mannráni eina hrollkalda vetrarnótt í Reykjavík, líta inn á fegurðarsamkeppni (sem gerist ekki öllu naktari) og eyða tunglskinsnótt þar sem fótur ljóðskálds liggur grafinn . . ."


Bókin er 68 bls.
Leiðbeinandi verð er 2.880


PANTA BÓK
Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS