FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
Í HÚSI AFA MÍNS 12. nóvember 2008
























Sögusviðið er Reykjavík eftirstríðsáranna og ótalmargt sem skýtur litlum dreng skelk í bringu; þrýstiloftsflugvélar fljúga um loftin með ægilegum hvin, hermenn spásséra um einkennisklæddir og hertrukkar á götunum. Ekki er langt síðan hræðileg sprengja var sprengd í Japan og orðið Hírósíma stimplar sig inn í hugann. Sem betur fer eru stríðin í heiminum þó handan fjarskans og raunveruleg áhyggjuefni stráka í Reykjavík öll heldur smærri í sniðum. Má þar nefna kerlingar á Njálsgötunni sem bíða færis bakvið gardínur að ausa skömmum yfir krakka og ketti, ljósameðferð í Austurbæjarskólanum – þeirra nemenda vel að merkja sem þykja full væskilslegir á að líta – og svo óttann við garnaflækjuna. En hún getur hlotist af því að kyngja hinu alræmda péká-tyggjói eða þá sveskjusteinum.

Sögumaður virðist í fyllingu tímans hafa sigrast á ótta sínum, hrakið skelkinn burt úr bringunni, en hann er hinn góðkunni útvarps- og fréttamaður Finnbogi Hermannsson. Stíllinn ætti að koma kunnuglega fyrir sjónir þeim sem hafa hlustað á pistla Finnboga gegnum tíðina, góðlátleg kímnin á sínum stað og tekur oftar en ekki völdin í textanum. Hversdagslegustu athafnir lifna við og öðlast merkingu fyrir galdur tungumálsins.

Bókin er 182 bls.
Leiðbeinandi verð er 4.680


PANTA BÓK
Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS