|
|
 |
|
|
 |
| BLÓÐBERG / BLUTBERG |
29. nóvember 2008 |
|

BLÓÐBERG / BLUTBERG eftir Ævar Örn Jósepsson
Bók Ævars Arnar, Blóðberg, kemur út í Þýskalandi á næsta vori. Þýskur titill bókarinnar er BLUTBERG. Útgefandi er btb sem í gær, keypti útgáfuréttinn af LANDI TÆKIFÆRANNA og SÁ YÐAR SEM SYNDLAUS ER.
Efni bókar: Einn kaldan febrúarmorgun berast þær fréttir af virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka að sex starfsmenn hafi farist í hörmulegu slysi. Fljótlega koma í ljós vísbendingar sem benda til þess að þetta hafi ekki verið slys heldur kaldrifjað morð - jafnvel fyrsta mannskæða hryðjuverkið á Íslandi. Þegar lögreglulið úr borginni kemur á staðinn mætir því undarlegt samfélag, fjandsamlegt viðmót og hrikaleg náttúra. Einn fárra sem tekur lögreglumönnunum opnum örmum er portúgalskur verkamaður sem brosir breitt og býður þá velkomna með orðunum "Welcome to Alcatraz". Skömmu síðar berast nýjar fréttir af svæðinu sem setja allt þjóðfélagið í uppnám.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Stúdíóið | |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|