FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
STEINTRÉ Gyrðis Elíassonar gefið út í Englandi 30. október 2008























Höfundar Uppheima halda áfram landvinningum þrátt fyrir að útrás athafnaskálda hafi beðið skipbrot. Nýjustu tíðindin í erjum Breta og Íslendinga eru þau að STEINTRÉ eftir Gyrði Elíasson kemur út hjá forlaginu Comma Press á Englandi í dag. Meitlað smásagnasafn sem nýtur sín einstaklega vel á enskri tungu.
Þýðandi er Victoria Cribb.

Fréttablaðið 2. nóvember
"Bjartsýnn fyrir hönd bóka
Þýðing Victoriu Cribb á smásagnasafninu Steintré eftir rithöfundinn Gyrði Elíasson kom út í Englandi síðasta fimmtudag.
Þýðing Victoriu Cribb á smásagnasafninu Steintré eftir rithöfundinn Gyrði Elíasson kom út í Englandi síðasta fimmtudag. Óvenjulegt er að smásagnasöfn eftir einn höfund séu þýdd og gefin út í heild sinni.

"Ég veit nú ekki hvernig Englendingarnir komust á snoðir um bókina til að byrja með," segir Gyrðir Elíasson hógvær. "Útgáfufélagið Comma Press er lítið en að ég held metnaðarfullt forlag. Ég veit að það sérhæfir sig í smásögum frá Evrópu en það er sérstakt fyrir bókmenntaforlög sem yfirleitt vilja ekki líta við smásögum."

Tímasetning útgáfunnar vekur einnig athygli en eins og alþjóð veit andar köldu milli Englendinga og Íslendinga um þessar mundir. Gyrðir segir jafnan erfitt fyrir íslenska höfunda að komast inn á enskan markað.

"Þetta er kannski ekki besti tíminn til að gefa út bók í Englandi, en það er þó aldrei að vita. En ég býst nú ekki við að dreifingin verði mikil eða athyglin sem hún fær."

Spurður hvort hann sé ekki óþarflega hógvær með þessi tímamót, þar sem þetta er fyrsta bókin sem þýdd er eftir hann í heilu lagi á ensku, segist hann bara vera raunsær. "Ég er búinn að vera það lengi í þessu. Bæði veit maður hversu mikill munur er á stórum forlögum í Bretlandi og á þessum litlu sem hafa engan dreifingarmátt. En hins vegar er þetta fallega útgefin bók og mér finnst þetta skemmtilegt. Þeir hafa lýst yfir áhuga á að gera eitthvað meira í framhaldinu en svo verður það bara að koma í ljós." Þegar ástandið í þjóðfélaginu ber á góma segist Gyrðir eins og hver annar finna hvernig andrúmsloftið í samfélaginu er í lægð. Hann er þó bjartsýnn á framtíðina. "Ég hef trú á því að þessi viðhorfsbreyting sem verður í samfélaginu eigi eftir að gagnast bókmenntunum seinna. Fólk les öðruvísi núna og ég er bjartsýnn fyrir hönd bókmenntanna."heida

@frettabladid.is"


Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS