FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
RAUÐBRYSTINGUR: „Þetta er bókin í fríið!“ 3. apríl 2009
LENÍNGRAD 1944: Í skotgröfunum fyrir utan borgina berjast fjórir norskir sjálfboðaliðar í þýska hernum fyrir lífi sínu; kuldinn, hungrið, rússnesku leyniskytturnar – dauðinn situr fyrir þeim við hvert fótmál.

OSLÓ 1999: Eftir óhapp við skyldustörf er Harry Hole sestur bakvið skrifborð í öryggisþjónustunni með bunka af skýrslum til yfirlestrar. Hann staldrar við tilkynningu þess efnis að úti í skógi hafi fundist tóm skothylki úr stóreflis þýskum veiðiriffli af sjaldgæfri gerð. Á sama tíma er fyrrum hermaður af austurvígstöðvnum myrtur í húsasundi bakvið veitingastað sem nýnasistar sækja. Tilviljun? Harry Hole trúir ekki á tilviljanir.

JO NESBØ er norskur hagfræðingur, rokktónlistarmaður og metsölurithöfundur. Bækur hans um rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole hafa farið sigurför um heiminn og koma nú út í vel á fjórða tug landa. RAUÐBRYSTINGUR er sú fyrsta sem þýdd er á íslensku. Bókin hlaut norsku bóksalaverðlaunin árið 2000 og hefur jafnframt verið kosin besta innlenda glæpasaga allra tíma af lesendum í Noregi. Ensk þýðing hennar hlaut tilnefningu til Duncan Lawrie-rýtingsins árið 2007, en það eru verðlaun sem árlega eru veitt þýddri glæpasögu sem kemur út í enskumælandi landi.
Á árinu 2008 stofnaði Nesbø Harry Hole-sjóðinn sem helgaður er baráttunni gegn ólæsi barna í heiminum.

Bjarni Gunnarsson þýddi.
Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS