FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
ÆVAR ÖRN hlýtur BLÓÐDROPANN 2009 10. júlí 2009


Í dag var BLÓÐDROPINN veittur en hann er verðlaun Hins íslenska glæpafélags. Í ár voru níu glæpasögur, útgefnar árið 2008, tilnefndar. Að þessu sinni hlaut þau ÆVAR ÖRN fyrir bókina LAND TÆKIFÆRANNA.
Sem handhafi verðlaunanna verður Ævar Örn fulltrúi Íslands í samkeppni um Glerlykilinn 2010.

Glerlykillinn er veittur af SKS - KANDINAVISKA KRIMINALSÄLLSKAPET fyrir bestu norrænu glæpasöguna. Samtökin voru stofnuð 1991, nánar tiltekið í Humlebæk í Danmörku, en veitt í fyrsta skipti ári síðar eða 1992. Árið 2001 var Ísland með í fyrsta skipti.

Uppheimar óska Ævari Erni til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.



Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS