|
|
 |
|
|
 |
| HLUSTAÐU Á LJÓSIÐ, ljóðabók eftir Njörð P. Njarðvík |
11. október 2009 |
|

Við getum ferðast til Afríku, jafnvel fundist það talsvert langt og talið okkur hafa séð margt og mikið. En hvað ef fjarlægðin og framandleikinn eru aðeins blekking, hjóm eða mannlegur misskilningur? Er það ef til vill ferðin inn á við sem er sú lengsta og torsóttasta af öllum ferðum? Njörður P. Njarðvík yrkir hér um það viðfangsefni sem fyrr eða síðar bíður allra, að líta inn á við. Ljóðin liggja sem þögull strengur gegnum hávaðasamt mannlíf í átt til upphafsins, sjálfrar lífsorkunnar. Hún er manninum svo augljós að hann sér hana ekki – ekki frekar en fiskurinn finnur vatnið þegar hann syndir. |
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Stúdíóið | |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|