|
|
 |
|
|
 |
| VEFTIR - Aðalsteinn Ingólfsson |
25. febrúar 2010 |
|
 Hagþenkir hefur tilnefnt tíu höfunda og rit þeirra til viðurkenningar Hagþenkis 2009. Meðal höfunda sem eru tilnefndir er Aðalsteinn Ingólfsson fyrir bókina VEFTIR. Í þessari glæsilegu bók rekur hann feril Ásgerðar Búadóttur en hún er án efa markverðasti veflistamaður Íslendinga á 20stu öld.
Um miðjan mars verður tilkynnt hvaða höfundur hlýtur viðurkenningu. Á vefsíðu Hagþenkis segir m.a. "Viðurkenning Hagþenkis telst til virtustu og veglegustu verðlauna sem fræðimönnum og höfundum fræðilegra rita fyrir skóla og almenning getur hlotnast. Veiting hennar hefur oft vakið athygli en sjaldan deilur. Öll fræðirit sem koma út á Íslandi koma til greina við veitingu viðurkenningarinnar óháð útgefanda eða tilnefningum...Um miðjan mars verður tilkynnt hvaða höfundur hlýtur viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni."
Uppheimar óska Aðalsteini - og öðrum höfundum sem eru tilnefndir - til hamingju. |
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|  Steinblóð | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|