FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
BÓKIN UM GOSIÐ ER KOMIN! 4. júní 2010

Stórbrotin náttúra | Untamed Nature
eftir Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndara og Ara Trausta Guðmundsson, jarðeðlisfræðing og rithöfund.

Hér er á ferðinni einkar glæsileg ljósmynda- og fræðibók, 112 blaðsíður í stóru broti. Bókin spannar tímabilið frá því eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi í mars fram til 15. maí. Báðum gosunum eru gerð ítarleg skil og einstakt að atburðir af þessum toga séu komnir á bók svo fljótt sem raun ber vitni. Þótt bókin hafi verið unnin hratt er hvergi slegið af gæðakröfum, enda höfundar þaulreyndir afburðamenn, hvor á sínu sviði.

Heillandi ljósmyndir Ragnars Th. Sigurðssonar njóta sín til fulls og fanga mikilleik óhaminna náttúruaflanna. Einnig eru í bókinni myndir eftir Sigurð Stefnisson og myndir frá Kötlugosinu 1918 eftir Kjartan Guðmundsson Ítarlegur og aðgengilegur texti Ara Trausta Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings og rithöfundar, opnar ásamt myndunum skýra sýn á þessa örlagaríku atburði sem hafa haft meiri áhrif á heimsbyggðina en nokkurn gat órað fyrir, hvað þá á byggðirnar næst eldstöðvunum.

Ragnar er einn okkar þekktustu ljósmyndara og starfar á alþjóðamarkaði. Hann hefur m.a. hlotið þrenn CLIO verðlaun.
Ari Trausti er víðkunnur heima og erlendis fyrir bækur sínar, sem eru um 30 talsins, og sjónvarpsefni um jarðfræði og eldvirkni. Ragnar og Ari Trausti hafa unnið saman að gerð fjölda bóka.

Texti bókarinnar er á íslensku og ensku.
Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS