FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
Mellem træerne 23. ágúst 2011

Milli trjánna, smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, kom út í Danmörk í dag hjá forlaginu Torgard í þýðingu Eric Skyum-Nielsen. Eins og kunnugt er hlýtur Gyrðir Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir bókina en verðlaunin verða einmitt afhent í Kaupmannahöfn í nóvemberbyrjun.

Danskir gagnrýnendur eru stórhrifnir af verkinu, og er víða fjallað um bókina í blöðum dagsins:
Jorgen Johansen hjá Berlingske gefur því fullt hús, 6 stjörnur og bókin fær 5 stjörnur í Jyllands-Posten. Thomas Bredsdorff, gagnrýnandi Politiken, fjallaði mjög lofsamlega um bókina skömmu áður en tilkynnt var um verðlaunin og taldi að hún yrði vel að þeim komin – aðrir danskir gagnrýnendur eru greinilega sama sinnis.

Það vakti athygli í dönskum fjölmiðlum á sínum tíma þegar í ljós kom að Gyrðir valdi þetta litla forlag, Torgard, en margir stærri útgefendur sýndu verkinu áhuga.

Gyrðir verður gestur á bókmenntahátíð Louisiana-safnsins í Danmörk nú í byrjun september ásamt mörgum fleiri þekktum höfundum.
Til baka

Stúdíóið

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS