|
|
 |
|
|
 |
| SNJÓKARLINN eftir Jo Nesbø |
23. mars 2012 |
|

Fyrsti snjórinn er kominn. Jonas vaknar einn í húsinu um miðja nótt og finnur ekki móður sína. Hann stígur í bleytu á gólfinu og sér að einhver hefur komið inn á skónum. Fyrir utan stofugluggann stendur einmanaleg vera: snjókarl baðaður fölu tunglsljósi. En hvers vegna horfir hann á húsið þeirra? Og af hverju er hann með trefilinn hennar mömmu um hálsinn?
Harry Hole hefur borist dularfullt bréf í pósti, undirritað „Snjókarlinn“. Hann grunar að hvarf móður Jonasar tengist þessu bréfi á einhvern hátt og setur saman lítinn rannsóknarhóp. Við athugun á gömlum lögregluskýrslum kemur í ljós að furðumargar ungar mæður, ýmist giftar eða í sambúð, hafa horfið á undanförnum árum. Allar um þetta sama leyti; snemma vetrar. Þegar fyrsti snjórinn fellur.
Jo Nesbø er heimskunnur fyrir bækur sínar um norska rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole. Snjókarlinn er sú fimmta þeirra á íslensku. Ráðgert er að sagan verði kvikmynduð í leikstjórn Martins Scorsese.
Bjarni Gunnarsson þýddi.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|  Steinblóð | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|