FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Fréttir
BIRTAN ER BROTHÆTT – braghendur og hækur 29. mars 2012

Ný bók eftir Njörð P. Njarðvík

Föstudaginn 30. mars kemur út hjá Uppheimum bókin Birtan er brothættbraghendur og hækur eftir Njörð P. Njarðvík.

Höfundinn þarf vart að kynna eftir tæprar hálfrar aldar höfundarferil og fjölda þýðinga, auk annarra starfa á sviði bókmennta og fræða.

Þess ber enn fremur geta að þann 18. apríl nk. koma út þýðingar Njarðar á úrvali ljóða Kjells Espmark á veglegri bók sem ber titilinn Skrifað í stein.

Þessari bók, Birtan er brothætt, er skipt í tvo meginhluta; braghendur og hækur. Í fyrri hlutanum glímir höfundur við þennan rammíslenska bragarhátt og sýnir okkur svo ekki verður um villst að braghendan er til margra hluta nytsamleg og á fullt erindi við samtímann. Heimspekilegar hugleiðingar, náttúrlýsingar, grimm þjóðfélagsádeila eða græskulaust skop – allt rúmast þetta prýðilega innan þessa skemmtilega forms í meðförum Njarðar.

Í síðari hlut bókarinnar eru hækur, þetta forna og rígneglda japanska form smáljóða, sem lítið hefur verið notað af íslensku skáldum. Hækum hefur frá upphafi verið ætlað að túlka náttúrustemningar og þær sækir Njörður á æskuslóðir sínar á Vestfjörðum.

Bókin er 124 síður í nettu broti og henni fylgir hljóðbók með lestri höfundar á bókinni.

Til baka

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS