|
|
 |
|
|
 |
| ... og svo kom Ferguson |
16. júlí 2009 |
|
 Bók Bjarna Guðmundssonar ... og svo kom Ferguson er komin úr prentun. Formlegur útgáfudagur bókarinnar er á laugardaginn, 18. júlí. Í ár eru liðin rétt sextíu ár frá því fyrstu Ferguson-dráttarvélarnar komu til Íslands. Af því tilefni öðrum fremur hefur Bjarni á Hvanneyri tekið bókina saman með aðstoð fjölda heimildarmanna. Bókin er gefin út með stuðningi Landbúnaðarsafns Íslands og rennur hluti andvirðis bókarinnar til safnsins. Gráu Ferguson-vélarnar mörkuðu upphaf vél- og aflvæðingar á fjölmörgum búum og engin ein gerð dráttarvéla hefur notið viðlíka vinsælda hér á landi. Ferguson dráttarvélarnar eru því órjúfanlegur hluti af sögu og þróun íslenskra sveita upp úr miðri síðustu öld – á tímum mestu búháttabreytinga frá því land byggðist. Ört vaxandi þjóð, sem bjó við áður óþekkta velmegun að lokinni heimsstyrjöld, krafðist stóraukinna afkasta í landbúnaði – afkasta sem ekki varð náð nema með vélvæðingu sveitanna. Þar skiptu dráttarvélarnar sköpum og að öðrum ólöstuðum var það Ferguson sem úrslitum réði. Bjarni Guðmundsson er eins og kunnugt er hafsjór af fróðleik um þessa umbrotatíma og hefur hér unnið einstakt verk við skráningu þeirra – með Ferguson í brennipunkti. Bókin, sem er í senn aðgengileg og skemmtileg aflestrar er í stóru broti, öll litprentuð og prýdd miklum fjölda merkilegra ljósmynda víðs vegar að. Þeim sem fræðast vilja um íslenskt samfélag á 20. öld berst hér kærkomin viðbót í þá heildarmynd og bókin er fjársjóður fyrir þá sem njóta þess að rifja upp liðna tíð.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Vitavörðurinn | |
|  Aldrei framar frjáls | |
|  NEMESIS | |
|  Hafmeyjan | |
|  Hvarfið | |
|  Land draumanna | |
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|