FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Fréttir
Ástandsbarnið kemur út föstudaginn 25. september 21. september 2009

ÁSTANDSBARNIÐ (Tyskungen) er fimmta bók Camillu á íslensku. Um bókina segir á kápu:
Hvers vegna skyldi móðir Ericu Falck hafa varðveitt gamla nasistaorðu? Spurningin lætur Ericu ekki í friði og hún hefur uppi á sögukennara á eftirlaunum til að leita skýringa. Sá bregst hins vegar undarlega við og veitir engin svör. Tveimur dögum síðar er hann látinn. Myrtur.

Ericu bregður í brún þegar henni berast fréttir af morðinu. Eftir að hafa tvístigið lengi tekur hún til við að lesa dagbækur móður sinnar og kemst þá að því að á stríðsárunum var móðir hennar í sama félagsskap og hinn myrti. Gæti heimsókn Ericu til hans hafa hrundið af stað atburðarás sem leiddi til morðsins? Hver skyldi vera reiðubúinn að fremja morð til að hindra að sannleikurinn um löngu liðna atburði líti dagsins ljós?
Í Ástandsbarninu eru það fjölskylduleyndarmál Ericu Falck sem koma upp á yfirborðið meðan lögreglan í Taumshede þarf að komast af án Patriks Hedström sem er í feðraorlofi.
Gamilla Läckberg fléttar samtímanum listilega við heillandi frásögn af
atburðum í lífi ungrar konu á fimmta áratugnum.
Ástandsbarnið er fimmta bók Camillu Läckberg um Ericu og Patrik hedström kemur út 25. september.

VERÐ Í ÁSKRIFT: 1.990 KR. Sendingarkostnaður innanlands er kr. 190.

Anna R. Ingólfsdóttir þýddi.
TILBOÐSVERÐ - til þeirra er kaupa bókina á vef Uppheima - verð kr. 1.990 - sendingarkostnaður kr. 190 bætist við.
Til baka

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS