|
|
 |
|
|
 |
| Eyþór Árnason hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2009 |
13. október 2009 |
|
Eyþór Árnason hlaut í dag bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handrit að ljóðabókina HUNDGÁ ÚR ANNARRI SVEIT. Þetta er fyrsta ljóðabók Eyþórs.
Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Í bókinni streymir ljóðmálið fram, sterkt og hugmyndaríkt. Kímnin er aldrei langt undan og alls kyns furður gera vart við sig, eins og þegar rjúpurnar hans Guðmundar í Miðdal sem gerðar eru úr gleri lifna við og láta sig hverfa. Í öðru ljóði leggja skip að bryggju bakvið mánann þar sem skuggalegir menn bíða með skjalatöskur. Og í enn öðru ljóði kemur Clint Eastwood ríðandi yfir Faxaflóann. Það er gnægð af skemmtilegri hugsun og hugmyndum í þessari ljóðabók.“
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt á hverju ári í minningu Tómasar Guðmundssonar skálds. Verðlaunin voru veitt fyrst árið 1994. Dómnefnd var skipuð Kolbrúnu Bergþórsdóttur, Ingibjörgu Haraldsdóttur og Jóni Óttari Ragnarssyni.
Uppheimar óska Eyþóri til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Vitavörðurinn | |
|  Aldrei framar frjáls | |
|  NEMESIS | |
|  Hafmeyjan | |
|  Hvarfið | |
|  Land draumanna | |
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|