|
|
 |
|
|
 |
| Gyrðir Elíasson sendir frá sér tvær bækur á þessu hausti |
10. október 2009 |
|
 NOKKUR ALMENN ORÐ UM KULNUN SÓLAR er þrettánda ljóðabók Gyrðis Elíassonar sem heldur áfram að einfalda ljóðmál sitt í þessari einstöku bók. Ljós og áhrifaríkur skáldskapur, prýddur þeirri myndvísi sem einkennir verk Gyrðis Elíassonar, blandast hér gamansemi og náttúrulýrík af ýmsu tagi, heitum tilfinningum og ótta sem er nær yfirborðinu en oft áður. Þá geymir bókin hvassa samfélagsgagnrýni í afstöðu sinni til náttúrunnar og þess smáa sem hún geymir.
 MILLI TRJÁNNA er áttunda smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, sem hlaut tilnefningu til hinna virtu Frank O’Connor bókmenntaverðlauna vorið 2009 fyrir Steintré, síðasta smásagnasafn sitt. Og nú birtist safn 47 nýrra smásagna sem einkennast allar af þeim áreynslulausa og myndríka stíl sem prýðir verk Gyrðis. Þá kallast umfjöllunarefni þessa safns á við fyrri sögur höfundar. Hér bregður fyrir líkt og áður ýmiskonar óhugnaði og furðum, einsemd, draumum, ferðalögum, bernskuminningum og framtíðarsýnum, auk þeirrar ísmeygilegu fyndni sem lesendur þekkja úr fyrri verkum.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Vitavörðurinn | |
|  Aldrei framar frjáls | |
|  NEMESIS | |
|  Hafmeyjan | |
|  Hvarfið | |
|  Land draumanna | |
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|