|
|
 |
|
|
 |
| MILLI BARNA - ljóð eftir Gunnar M. Gunnarsson |
14. október 2009 |
|

Ferskir vindar blása milli spjalda þessarar nýju ljóðabókar Gunnars M. G. Stíllinn er kraftmikill og áræðinn, skáldið hikar hvergi við að nýta sér þann mátt sem býr í tungumálinu og leyfir textanum að hefja sig til flugs, án þess nokkurn tíma að missa jarðtenginguna. Þar liggur einmitt helsti styrkur ljóðanna, í skýrum tengslum við land og menningu, hvort sem baksvið þeirra er hraunið á Þingvöllum, auðn Möðrudalsöræfa eða rústir gamallar síldarbræðslu við Eyjafjörð. Það er nútímamaðurinn sem hefur orðið, óþreyjufullur, einn í sársauka sínum og sektarkennd, en stutt í gráa kímnina.
MILLI BARNA er önnur ljóðabók höfundar, árið 2007 sendi hann frá sér ljóðabókina SKIMAÐ ÚT. Bókin er gefin út með Nýræktarstyrk frá Bókmenntasjóði
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Vitavörðurinn | |
|  Aldrei framar frjáls | |
|  NEMESIS | |
|  Hafmeyjan | |
|  Hvarfið | |
|  Land draumanna | |
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|