FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Fréttir
JOHAN THEORIN hlýtur CWA John Creasy (New Blood) Rýtinginn 2009 23. október 2009

Nú í vikunni hlaut Johan Theorin frá Svíþjóð CWA John Creasy (New Blood) rýtinginn 2009 fyrir fyrstu skáldsögu sína, Skumtimmen (e. Echoes From The Dead), sem Undirheimar munu gefa út á næsta ári.
CWA John Creasy (New Blood) Rýtingurinn er einungis veittur fyrir fyrstu skáldsögu áður óútgefins höfundar. Þau eru veitt til minningar um John Creasy, stofnanda CWA, og eru mikill heiður.

Theorin var einnig tilnefndur til CWA International Dagger verðlaunanna fyrir aðra bók sína, Nattfåk, sem Undirheimar munu gefa út árið 2011. Fyrir þá bók hlaut Johan Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin, sl. vor og tók við honum í Norræna húsinu í Reykjavík.

Rýtingurinn eru elstu bókmenntaverðlaun Bretlands og njóta alþjóðlegrar virðingar sem viðurkenning á frábærum árangri.

Undirheimar óska Jóhanni til hamingju og hlakka til frekara samstarfs.
Til baka

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS