|
|
 |
|
|
 |
| SJÓRÆNINGI SEGIR FRÁ eftir Natalie Babbitt |
4. nóvember 2009 |
|
 Út er komin barnabókin SJÓRÆNINGI SEGIR FRÁ eftir Natalie Babbitt. Sagan segir frá Jóa Planka sem er atvinnulaus sjóræningi í leit að vinnu. Svo virðist sem Jói hafi aldrei verið neitt sérstaklega góður í starfi ræningjans; honum líkaði betur að halda sig um borð og elda súpu. Því var hann látinn taka pokann sinn og settur á land í litlum hafnarbæ á Jamaíka þar sem hann settist að í gistihúsi frú DelFresno.
Jói reynir fyrir sér í ýmsum störfum en finnur ekkert við sitt hæfi. Á kvöldin situr hann á gistihúsinu og segir mergjaðar sögur af sjóræningjalífi sínu - þar sem m.a. koma fyrir hafmeyjar, draugar og menn sem breytast í kolkrabba . . .
SJÓRÆNINGI SEGIR FRÁ er bráðskemmtilega barnabók eftir Natalie Babbitt. Kristín R. Thorlacius þýddi.
FÓLKIÐ SEM GAT EKKI DÁIÐ eftir sama höfund kom út hjá Uppheimum 2006, Gyrðir Elíasson þýddi.
|
|
 |
| Til baka |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
|  Vitavörðurinn | |
|  Aldrei framar frjáls | |
|  NEMESIS | |
|  Hafmeyjan | |
|  Hvarfið | |
|  Land draumanna | |
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|