FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
Fréttir
Lof og prís 5. nóvember 2009

Um MILLI TRJÁNNA:

„Milli trjánna er verk samið af höfundi, sem hefur náð fullkomnum tökum á list sinni, liggur mikið á hjarta og kemur því til skila af leiftrandi sköpunargleði . . . hreinn listgaldur.“
Fréttablaðið, Bergsteinn Sigurðsson.

„Helst er ég þó bara á því að Gyrðir sé upp á sitt allra besta í þessari bók. Hún er hreinasta gersemi.“
Víðsjá - Þröstur Helgason.

„ . . .bara Ikea sagan útaf fyrir sig er verðug allra þeirra bókmenntaverðlauna sem úthlutað er hér í landi bókmenntanna.“
www. bokmenntir.is - Úlfhildur Dagsdóttir um söguna INFERNÓ, upphafssögu MILLI TRJÁNNA.


Um NOKKUR ALMENN ORÐ UM KULNUN SÓLAR:

„En þrátt fyrir kuldann og myrkrið er þetta eiginlega bókin sem maður hefur beðið eftir þetta haust. Hér eru hlutirnir sagðir eins og þeir eru . . .“
Víðsjá, Þröstur Helgason.

„Ef ég ætti hatt tæki ég hann ofan fyrir þessari ágætu bók.“
Morgunblaðið, Skafti Þ. Halldórsson.









Um ENN ER MORGUNN:

„Mér finnst þetta mjög áhugaverð skáldsaga og gaman að lesa hana. Maður lifir sig sterkt inn í hana . . . Góð bók – áhrifamikil – mikið drama.”
Kiljan, Kolbrún Bergþórsdóttir.

„Ég hef þá trú að þessi saga verði vinsæl:efnistökin eru með þeim hætti að stórum hópi lesenda mun líka þau vel . . ."
Fréttablaðið, Páll Baldvin Baldvinsson.







Um HUNDGÁ ÚR ANNARRI SVEIT:

„Ég hygg að þeir sem leita að verðlaunahöfum í innsendum handritum séu ekki alltaf svo lánsamir að finna þetta gott verk í bunkanum. (...) áhugaverð og persónuleg frumraun og hrífandi þar sem Eyþóri tekst best upp.“
Morgunblaðið, Einar Falur Ingólfsson.

„. . .ferskleiki einkennir almennt ljóðin í Hundgá úr annarri sveit og gefur til kynna að hér sé á ferðinni nýtt skáld.“
www. bokmenntir.is - Úlfhildur Dagsdóttir.







Um YFIR HAFIÐ OG Í STEININN:

„Það verður bara að segjast eins og er. Þetta er svaka fínt hjá honum . . . Mjög góð þýðing hjá Sigurði Karlssyni.”
Kiljan, Egill Helgason.

„Mjög fín þýðing og að öllu leyti flott saga . . . Ég vona að við fáum að lesa fleira eftir þennan höfund.”
Kiljan, Páll Baldvin Baldvinsson.

„Hvað er það við þessa bók sem mér finnst svona frábært? Því ég varð mjög heilluð af þessari bók. Það var uppgötvun fyrir mig að lesa hana. Ég held að það hafi verið þessi sterka og skemmtilega rödd sögumannsins. Sögumaðurinn í þessari bók er algjörlega frábær. Maður stendur svo með honum, og þykir svo vænt um hann, og maður vill ekki að neitt vont hendi hann, og hún endar svo skemmtilega. . . . Það er frábært þegar manni fer að þykja innilega vænt um persónu.”
Kiljan, Kolbrún Bergþórsdóttir.

Til baka

Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS