FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
DREKINN
eftir íslenska rithöfundinn Sverri Berg. Drekinn og er margslungin spennusaga sem gerist á vormánuðum 2013.

„Hvað rekur mann til þess að henda sér fram af vita á Stokkseyri? Ég sé hann fyrir mér þar sem hann liggur í blóði sínu undir þessum vita í rúman sólarhring, án þess að nokkur yrði hans var. Án þess að nokkur saknaði hans.“

Flest bendir til að forstjóri Einarshafnar, eins stöndugasta smásölufyrirtækis landsins, hafi fyrirfarið sér enda kemur fljótt í ljós að þar er maðkur í mysunni og staðan allt önnur en talið var. Brynjari, sem starfar hjá ráðgjafarfyrirtæki í Reykjavík, er falið að rannsaka málið. Á sama tíma ríkir mikil eftirvænting í samfélaginu vegna fyrirhugaðrar olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Fyrr en varir dregst Brynjar inn í atburðarás þar sem líf og tilvera venjulegs fólks er skiptimynt í miskunnarlausu valdatafli.




Manneskja án hunds
 eftir sænska rithöfundinn Håkan Nesser í þýðingu Ævars Arnar Jósepssonar.

Håkan Nesser hefur ritað á þriðja tug skáldverka af ýmsu tagi og unnið til fjölmargra verðlauna í heimalandi sínu, Svíþjóð. Glæpasögur hans njóta mikillar hylli víða um lönd en Manneskja án hunds er fyrsta bókin af fimm um rannsóknarlögreglumanninn Gunnar Barbarotti og leit hans að sannleikanum, tilgangi lífsins og öðru smálegu.

Það er desember í Kymlinge og Hermansson-fjölskyldan er samankomin til að halda 105 ára afmælisveislu – tvöfalt afmæli feðginanna Karl-Eriks, sem verður 65 ára, og Ebbu, sem verður fertug.

Ekkert fer þó eins og ætlað var. Nóttina fyrir stóra daginn fer Róbert, frægur að endemum úr raunveruleikasápunni Fangarnir á Koh Fuk og bróðir Ebbu, út að ganga – en skilar sér ekki aftur. Og nóttina þar á eftir hverfur Henrik, sonur hennar. Gunnar Barbarotti, ítalskættaður aðalvarðstjóri í rannsóknarlögreglunni fær þetta undarlega mál inn á sitt borð. Getur það verið tilviljun að tveir einstaklingar úr sömu fjölskyldu hverfi sporlaust með sólarhrings millibili? Hlýtur ekki eitthvað að búa þar að baki?

Til að leysa gátuna verður Barbarotti að kynnast þessari undarlegu fjölskyldu og draga hennar myrkustu leyndarmál fram í dagsljósið – og það er ekki laust við að hann óski þess stundum, að til væri einhver velviljaður æðri máttur, sem mögulega mætti snúa sér til á erfiðum stundum.



Svikalogn
eftir VIVECU STEN

Miðvikudaginn
20. mars kemur út undir nafni Undirheima skáldsagan Svikalogn eftir
sænska rithöfundinn Vivecu Sten. Þetta er fysta bók Vivecu á íslensku en
hún hefur aflað sér mikilla vinsælda á síðustu misserum og gjarnan
verið líkt við Camillu Läckberg. Sigurður Þór Salvarsson þýðir.

Á bókarkápu segir:

Á
heitum júlímorgni finnst sjórekið lík á strönd eyjarinnar Sandhamn, sem
er ein af sumarleyfisperlum skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm.

Rúmri
viku síðar finnst annað lík á gistiheimili í eynni, kona sem flest
bendir til að hafi verið myrt. Thomas Andreasson lögreglumaður er sendur
frá Stokkhólmi til að rannsaka málið en hann er alinn upp í
skerjagarðinum og því kunnugur á þessum slóðum. Rannsóknin reynist
erfið, fáar vísbendingar og engan veginn ljóst hvernig dauðsföllin
tengjast hinu friðsama eyjasamfélagi.

Svikalogn er fyrsta bókin í
nýrri röð glæpasagna sem gerast í Sandhamn. Í aðalhlutverkum eru
rannsóknarlögreglumaðurinn Thomas og æskuvinkona hans, lögfræðingurinn
Nora, sem dvelur í eynni á sumrin ásamt manni sínum og börnum.

---

„Nýr sænskur spennukrimmi sem rígheldur lesandanum.“
Aftonbladet
 
„Svikalogn
er frumraun Vivecu Sten en það er þegar ljóst að Camilla Läckberg hefur
fengið verðugan keppinaut. /.../ Óendanlega spennandi. /.../ Höfundur
lætur ýmsum áhugaverðum spurningum ósvarað og þess vegna bíður maður
spenntur eftir næstu Sandhamn-bók.“
Hallandsposten

„Þetta er frumraun sem gefur góð fyrirheit og skipar Vivecu Sten á bekk með fremstu glæpasagnahöfundum Svía.“
Dagbladet


BRYNHJARTA
eftir JO NESBØ

Í þýðingu Bjarna Gunnarssonar.

Jo Nesbø er heimskunnur fyrir bækur sínar um rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole. Brynhjarta er sú sjötta þeirra á íslensku en hinar fyrri hafa notið miklla vinsælda.

Á bókarkápu segir:
Með stuttu millibili finnast lík tveggja kvenna í Osló. Af dularfullum áverkum í munni þeirra dregur lögreglan þá ályktun að þær hafi verið myrtar af sama ódæðismanninum.

Kaja Solness er send til Hong Kong til að hafa uppi á eina norska lögreglumanninum sem er sérfróður um raðmorðingja. Hann hefur falið sig þar í mannhafinu og vill ekki láta finna sig. Vill ekki horfast í augu við drauga fortíðarinnar. Hann heitir Harry Hole.

Brynhjarta er það ástand þegar manneskja er grafin undir svo miklu fargi að álagið á brjóstkassann er slíkt að hún nær ekki andanum. Með brynhjarta er hægt að lifa í fjórar mínútur.




Haustfórn

Þriðja bókin eftir Svíann Mons Kallentoft, með lögreglukonuna knáu, Malin Fors. Bókin heitir Haustfórn og fylgir í kjölfar bókanna Vetrarblóð og Sumardauðinn. Ísak Harðarson þýddi.

Mons Kallentoft nýtur vaxandi vinsælda og virðingar sem höfundur glæpasagna í hæsta gæðaflokki.

Á bókarkápu segir: Það hellirignir við Skogså-setrið fyrir utan Linköping. Regnið lemur engi og skóga og líkið sem marar í hálfu kafi í hallarsíkinu. Lögfræðingurinn Jerry Petersson, sem nýlega hefur fest kaup á Skogså og er alræmdur fyrir vægðarleysi í viðskiptum, mun ekki vinna fleiri sigra á keppinautum sínum. En hvers vegna var hann myrtur?

Malin Fors lögreglufulltrúi rannsakar málið með félögum sínum í rannsóknarlögreglu Linköping og fljótt kvikna hjá henni grunsemdir um að fyrri eigendur setursins tengist morðinu, aðalsfjölskyldan Fågelsjö, sem neyddist til að selja Jerry ættaróðalið. Gæti salan á setrinu hafa verið tilefni til morðs? Og hver var þessi Jerry Petersson sem efnaðist á upplýsingatækni og safnaði dýrum listaverkum? Smám saman raðast upp brot úr lífi og örlögum þessa fólks sem leiddu til ótímabærs dauða.

„Með þriðju bók sinni um Malin Fors er augljóst að Kallentoft gerir tilkall til þess að vera talinn fremstur sænskra glæpasagnahöfunda.“
               David Bogerius, TV4



Steinblóð

eftir Johan Theorin í þýðingu Önnu Ragnhildar Ingólfsdóttur. Áður eru komnar út bækurnar Hvarfið og Náttbál eftir sama höfund, sem hlaut Glerlykilinn 2009 fyrir þá síðarnefndu. Bókin er gefin út í kilju.

Johan Theorin er búsettur í Gautaborg en á ættir að rekja til Ölands. Steinblóð er þriðja skáldasaga hans sem gerist þar en ráðgert er að þær verði fjórar, ein fyrir hverja árstíð. Sögusviðið verður ljóslifandi í meðförum Theorins og hafa bækurnar vakið verðskuldaða athygli, svo mikla raunar að lesendur víða um heim gjörþekkja orðið þessa litlu sænsku eyju við Eystrasalt. Gamall kunningi úr fyrri bókunum tveimur, skútuskipstjórinn Gerlof Davidsson, leggur að sjálfsögðu sitt af mörkum við lausn gátunnar.

Vorið er að koma á Ölandi og Per Mörner á von á syni sínum og dóttur í heimsókn. Áætlanir hans um notalegar stundir með börnunum fara úr skorðum þegar Jerry faðir hans hringir og virðist í háska staddur. Jerry er maður með vafasama fortíð og Per hefur forðast hann árum saman, helst viljað gleyma honum. Hann lætur sig engu að síður hafa það að fara og athuga með þann gamla og finnur hann lokaðan inni í brennandi húsi, tekst með naumindum að forða honum út. Jerry er með sár eftir eggvopn á kviðnum og jafnframt augljóst að eldurinn er af mannavöldum. Tvö lík finnast í húsinu. Annað þeirra telur lögreglan vera af manni sem grunaður er um að hafa viljað Jerry feigan. Ýmislegt bendir þó til að sá maður lifi enn og hættan sé alls ekki liðin hjá. Per er ákveðinn í að komast til botns í málinu. Hann neyðist því til að róta í sárri fortíðinni og kynnast föður sínum betur. Og sjálfum sér um leið.



Draugaverkir

Thomas Enger

Norsk glæpasaga Draugaverkir eftir Thomas Enger.

Thomas Enger skaust upp á stjörnuhimininn með sinni fyrstu bók, Skindauða, sem kom út á íslensku 2011. Hér sýnir hann og sannar að hann er kominn til að vera.

Á bókarkápu segir:
Þegar blaðamaðurinn Henning Juul fær skilaboð frá Tore Pulli, dæmdum morðingja sem segist búa yfir upplýsingum um hvað gerðist daginn sem sonur Hennings dó, þarf hann að meta hvort morðingjanum sé treystandi. Í staðinn fyrir upplýsingarnar
þarf Henning að hjálpa Tore að sanna sakleysi sitt.


Til að komast að sannleikanum þarf hann að kafa dýpra en hann hafði órað fyrir og finnur sífellt nýjar spurningar í stað svara. Ef Tore Pulli er saklaus, hver er þá morðinginn? Og hvernig tengist þetta morð látnum syni Hennings?



BOX 21

ROSLUND OG HELLSTRÖM

Út er komin hjá Undirheimum bókin BOX 21 eftir sænska glæpasagnatvíeykið Roslund og Hellström. Box 21 er önnur skáldsaga Anders Roslund og Börge Hellström.

Ófreskjan eftir þá félaga, sem kom út á íslensku á síðasta ári, hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan og bækur þeirra hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda og vakið athygli fyrir beinskeytta umfjöllun um óþægilega hluti sem þrífast í velferðarsamfélaginu.

Box 21 er áhrifamikil saga um skuggahliðar mannlegs samfélags og lesandinn stendur frammi fyrir áleitnum spurningum: Hvers vegna á mansal sér stað? Er einhvern tíma réttlætanlegt að fórnarlamb taki lögin í sínar hendur? Hversu langt er
hægt að ganga í nafni vináttunnar? Er það skýlaus krafa að sannleikurinn verði alltaf að koma fram?

Ung vændiskona finnst húðstrýkt í íbúð þar sem henni hefur verið haldið nauðugri ásamt annarri konu. Hún er flutt á sjúkrahús og óvæntir atburðir gerast í kjölfarið. Á þessu sama sjúkrahúsi liggur fársjúkur ungur fíkill sem hefur verið staðinn að því að blanda þvottaefni saman við amfetamín og selja – valdamiklir aðilar í undirheimum Stokkhólmsborgar hyggja á hefnd. Örlög þessara tveggja persóna fléttast saman á eftirminnilegan hátt í rannsókn Ewert Gren lögregluforingja og
félaga hans, Sven Sundkvist rannsóknarlögreglumanns.




Krossgötur

eftir Lizu Marklund.

Krossgötur eru níunda bók Marklund um blaðakonuna Anniku Bengtzon og eru nú allar komnar út á íslensku. Þrjú ár eru liðin síðan síðasta bók um Anniku, Þar sem sólin skín, kom út.

Í Krossgötum er dregin upp eftirminnileg mynd af árekstrum ólíkra heima og hvernig reynir á samskipti og sambönd fólks við erfiðustu aðstæður sem hugsast getur. Á bókarkápu segir:

Eftir þriggja ára dvöl í Washington sem fréttaritari Kvöldblaðsins er Annika Bengtzon komin til Stokkhólms í sitt gamla starf. Hún er tekin saman við eiginmanninn Thomas á ný en hann starfar í dómsmálaráðuneytinu og sinnir þar alþjóðlegum öryggismálum.

Lík ungrar móður finnst við leikskóla í úthverfi borgarinnar og reynist vera fjórða unga konan sem myrt er með svipuðum hætti á skömmum tíma. Í Kvöldblaðinu er skrifað um hugsanlegan raðmorðingja og brátt eru lögregluyfirvöld orðin sama sinnis.

Á meðan Annika rannsakar málið sækir Thomas ráðstefnu í Nairobi í Kenía og í kynnisferð við landamæri Sómalíu er allri sendinefndinni rænt, sjö Evrópubúum af ólíku þjóðerni. Mannránin valda mikilli ólgu í Evrópu og Annika dregst inn í æsispennandi atburðarás þegar reynt er til þrautar að semja um lausn gíslanna. Mannræningjarnir gera óheyrilegar kröfur um
lausnargjald og byrja að taka gíslana af lífi, einn af öðrum …

Anna R. Ingólfsdóttir þýddi.




Aðeins eitt líf
Sara Blædel

Aðeins eitt líf eftir danska glæpasagnahöfundinn Söru Blædel. Árni Óskarsson þýðir bókina sem sú fjórða um lögreglukonuna Louse Rick sem út kemur á íslensku. Bækur Söru njóta ört vaxandi vinsælda og þessi bók mun t.d. koma út á Bandaríkjamarkaði síðar á árinu.

Dag einn í september finnur sportveiðimaður lík af stúlku í Holbækfirði. Kaðli er brugðið um mitti hennar og á enda hans stór garðhella. Stúlkan er af erlendu þjóðerni og strax kviknar sá grunur að um heiðursmorð sé að ræða. Louise Rick í Kaupmannahafnarlögreglunni er fengin til að aðstoða farandsveit lögreglunnar við rannsókn málsins. Louise reynir af öllum mætti að láta ekki fordóma í samfélaginu trufla rannsóknina en málið flækist enn frekar þegar annað morð er framið. Væntingar og draumar víkja þegar árekstrar verða á milli ólíkra menningarheima.


Bækur 1 - 10 af 47. Síða 1 af 5.
Fara á síðu
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 |

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS