FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Snjókarlinn
Jo Nesbø

Fyrsti snjórinn er kominn. Jonas vaknar einn í húsinu um miðja nótt og finnur ekki móður sína. Hann stígur í bleytu á gólfinu og sér að einhver hefur komið inn á skónum. Fyrir utan stofugluggann stendur einmanaleg vera: snjókarl baðaður fölu tunglsljósi. En hvers vegna horfir hann á húsið þeirra? Og af hverju er hann með trefilinn hennar mömmu um hálsinn?

Harry Hole hefur borist dularfullt bréf í pósti, undirritað „Snjókarlinn“. Hann grunar að hvarf móður Jonasar tengist þessu bréfi á einhvern hátt og setur saman lítinn rannsóknarhóp. Við athugun á gömlum lögregluskýrslum kemur í ljós að furðumargar ungar mæður, ýmist giftar eða í sambúð, hafa horfið á undanförnum árum. Allar um þetta sama leyti; snemma vetrar. Þegar fyrsti snjórinn fellur.

Jo Nesbø er heimskunnur fyrir bækur sínar um norska rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole. Snjókarlinn er sú fimmta
þeirra á íslensku. Ráðgert er að sagan verði kvikmynduð í leikstjórn Martins Scorsese.

Gerast félagi í Undirheimum bókaklúbbi


Englasmiðurinn
Camilla Läckberg

Á Hvaley fyrir utan Fjällbacka hverfur fjölskylda sporlaust um páskana 1974. Í matsal skólahússins, þar sem fjölskyldan býr, koma menn að dúkuðu veisluborði. Þar er líka yngsta dóttirin, hin ársgamla Ebba, en af öðrum fjölskyldumeðlimum finnst hvorki tangur né tetur þrátt fyrir umfangsmikla leit.

Löngu síðar snýr Ebba aftur til Hvaleyjar með manni sínum til að setjast þar að. Þau hjónin hafa nýverið misst ungan son og í tilraun til að vinna bug á sorginni ætla þau sér að gera gamla skólahúsið upp og opna gistiheimili – í húsinu þar sem faðir hennar hafði með harðri hendi stýrt heimavistarskóla fyrir syni efnafólks. Þau hafa vart hafist handa þegar tilraun er gerð til að brenna þau inni. Í framhaldinu finnast gamlar leifar af blóði þegar gólfið í matsalnum er rifið upp – það er engu líkara en óhugnaður fortíðarinnar hafi elt þau uppi. Samhliða rannsókn á íkveikjunni taka Patrik Hedström og félagar hans í lögreglunni að skoða þetta gamla mál í von um að leysa ráðgátuna um hvarf foreldra og systkina Ebbu.

Englasmiðurinn er áttunda bók Camillu Läckberg með þau Ericu og Patrik í forgrunni.. Vinsældir Camillu eru gífurlegar og hún var t.d. söluhæsti kvenrithöfundurinn í Evrópu árið 2010. Sama ár átti hún tvær vinsælustu kiljurnar í verslunum Eymundsson.

Gerast félagi í Undirheimum bókaklúbbi


Hausaveiðararnir
eftir Jo Nesbø

Roger Brown er vel settur: Glæsilegt einbýlishús í Osló, eiginkonan Diana er stórkostleg og hann er ekki bara farsæll í starfi hausaveiarans, sem leitar uppi rétta fólkið í æðstu stöður norskra stórfyrirtækja, heldur óumdeilanlega sá besti. En þótt launin séu há duga þau engan veginn fyrir lífsstílnum sem Roger telur nauðsynlegan til að halda í konuna sem hann elskar. Til að drýgja tekjurnar hefur hann komið sér upp öðrum og skuggalegri starfsferli og gert listaverkaþjófnað að list.

Í gegnum Diönu kynnist Roger Hollendingnum Clas Greve, sem virðist hinn fullkomni kostur í forstjórastöðuna sem Roger þarf að manna, auk þess að hafa komist yfir óhemjudýrmætt Rubens-verk. Nái Roger að stela málverkinu verður hann á grænni grein. En Clas Greve hefur komist yfir fleira en myndlist og í einu vetfangi er grundvellinum kippt undan tilveru Rogers, sem þarf að glíma við aðstæður sem gera allar fjárhagsáhyggjur léttvægar.

Í Hausveiðurunum er lesandanum kastað vægðarlaust inn í tryllta skuggaveröld uns hann stendur á öndinni. Nesbø lætur gamminn geysa á sinn óviðjafnanlega hátt.

Hausaveiðararnir eru þriðja bókin eftir Nesbø sem kemur út á íslensku á árinu. Hinar tvær eru Djöflastjarnan og Frelsarinn. Áður höfðu komið út Rauðbrystingur og Nemesis.

**** – Nesbö er í banastuði í skemmtilegri glæpasögu sem er full af óvæntum atvikum.
Kolbrún Bergþórsdóttir, Morgunblaðið


Hrafnarnir
Þriðja bókin í Minnesota-þríleiknum eftir Vidar Sundstøl

Miðvikudaginn 16. febrúar kemur út undir merki Undirheima skáldsagan Hrafnarnir eftir norska rithöfundinn Vidar Sundstøl. Hrafnarnir eru þriðja bók Sundstøls á íslensku og jafnframt lokabindi Minnesota-þríleiksins svokallaða. Fyrri bækurnar hafa hlotið prýðilegar viðtökur, bæði lesenda og gagnrýnenda og Hrafnarnir fengu m.a. sex stjörnur í afar lofsamlegum dómi í Verdens Gang þegar bókin kom út í Noregi sl. vor.

Hrafnarnir eru beint framhald fyrri bóka Vidars Sundstøl um Lance Hansen og íbúana við Norðurströnd Lake Superior í Minnesota. Í Landi draumanna og Hinum dauðu sýndi höfundurinn það sem hann staðfestir hér: að hann býr yfir sjaldgæfri gáfu sagnamannsins til að þenja taugar lesandans til hins ýtrasta. Með Hröfnunum lýkur þessum magnaða bálki.

Lance Hansen grunar Andy bróður sinn um morð. Veiðiferð þeirra bræðra fær óvæntan endi og Lance fer í sjálfskipaða útlegð. Sú tilhugsun að saklaus maður verði dæmdur fyrir morðið nagar hann sífellt uns hann snýr aftur á heimaslóðir við Lake Superior. Þar rekst hann á Chrissy, bróðurdóttur sína, sem hefur sagt skilið við sakleysi æskunnar og berst við að ná tökum á lífi sínu. Smám saman raknar úr flækjunni uns úr henni greiðist í áhrifamiklum lokaþætti.


„Minnesota-þríleikurinn eftir Sundstøl er sannkölluð lestrarnautn, hlaðin spennu, glæsilega skrifuð og persónusköpun trúverðug ... Höfundurinn býður okkur í eftirminnilegt ferðalag.“

Verdens Gang  ******


Frelsarinn
Jo Nesbø

Fjórða bókin um Harry Hole er komin í bókabúðir!

Á Egertorgi í miðborg Oslóar er meðlimur Hjálpræðishersins skotinn til bana af manni úr áheyrendahópnum. Blaðaljósmyndari hefur náð myndum af grunsamlegum manni en Beate Lønn, sérfræðingur lögreglunnar í að þekkja andlit, ruglast í ríminu því ásýnd mannsins virðist breytast frá einni mynd til annarrar. Rannsóknarlögreglumaðurinn Harry Hole leitar þessa andlitslausa morðingja og meðan Oslóarbúar óska hver öðrum gleðilegra jóla verða stokkfrosin strætin að vígvelli þar sem barist er upp á líf og dauða. Einkum dauða.
FRELS­ARINN var tilnefnd til hinna virtu ensku glæpasagnaverðlauna, CWA International Dagger, 2009.

FRELSARINN er fjórða bók JO NESBØ sem kemur út á íslensku. Bækur hans hafa slegið eftirminnilega í gegn hérlendis, líkt og um heim allan, því JO NESBØ hefur átt gríðarlegum vinsældum að fagna á síðustu árum og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Bækur hans eru gefnar út í tugum landa og hafa selst í milljónum eintaka.


Ófreskjan
Roslund & Hellström

Tvö stúlkubörn finnast látin í kjallarageymslu. Fjórum árum síðar tekst banamanni þeirra að flýja meðan á fangaflutningi stendur og lögreglan er ekki í neinum vafa um að hann muni myrða á ný.
Í sænskum smábæ kemur faðir óvenju seint með dóttur sína á leikskólann og örfáum klukkustundum síðar finnst hún látin og svívirt. Þegar lögreglan virðist komin í þrot grípur faðir fórnarlambsins til sinna ráða. Fyrr en varir hefur málið undið svo upp á sig að það varðar alla þjóðina . . .

Ófreskjan er óhugnanlega spennandi glæpasaga sem spyr lesandann mikilvægra og óvæginna spurninga um það hvers líf sé dýrmætast.

Ófreskjan er fyrsta glæpasaga félaganna Roslunds og Hellströms og hefur, líkt og síðari bækur þeirra, farið sigurför um heiminn. Bókin hlaut Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin, 2005 sem besta norræna glæpasagan.

„Í glæpasögur sínar flétta Roslund og hellström hárbeitta þjóðfélagsgagnrýni – sterka, brýna og æsispennandi.“
    Liza Marklund


Skindauði
Thomas Enger

Fortíðin lætur blaðamanninn Henning Juul ekki í friði – fyrir tveimur árum missti hann son sinn í eldsvoða. Harmleikurinn hefur sett mark sitt á Henning, bæði á líkama og sál. fiegar hann loks snýr aftur til starfa þarf hann að berjast fyrir því að öðlast virðingu á ný sem blaðamaður – virðingu kolleganna, eiginkonunnar fyrrverandi og lögreglunnar.

Í tjaldi á Ekebergsléttunni finnst lík konu sem augljóslega hefur verið myrt. Henning Juul er falið að fjalla um málið og hann rekur þræði sem leiða hann á sífellt hættulegri brautir. Öfugt við lögregluna trúir hann ekki að málið sé eins einfalt og það virðist við fyrstu sýn. Og dauðs-föllin verða fleiri . . .

Thomas Enger er hratt rísandi stjarna á glæpasagnahimninum. Hjá Gyldendal útgáfu­risanum var því lýst yfir að sennilega væri Skindauði besta handrit fyrstu bókar höfundar sem til þeirra hefði borist!

Skindauði, dauðadá: Ástand þar sem starfsemi líkamans er við lágmark og sjúklingurinn virðist dáinn. Ástandið er sjaldgæft og fái sjúklingurinn ekki rétta meðhöndlun mun það leiða hann til dauða.

Hefndargyðjan
Sara Blædel

Í miðri yfirheyrslu hringir síminn hjá lögreglukonunni Louise Rick. Það er fóstursonur hennar, Jónas: bekkjarpartí hefur snúist upp í hrylling þegar hópur ofbeldisfullra ræningja ryðst inn. Hin 12 ára gamla Signe hleypur af stað eftir hjálp en áður en Louise kemst á staðinn hefur orðið hræðilegt slys – Signe hefur orðið fyrir bíl og um nóttina deyr hún af áverkum sínum. Við dótturmissinn glatar móðir stúlkunnar jafnframt tilgangi lífsins. En er hún kannski ekki einungis fljökuð af sorg, heldur einnig hefndarþorsta? Við mannskæða íkveikju fær málið forgang hjá lögreglunni. Sporin liggja í margar áttir en eftir vísbendingu frá vinkonu sinni, Camillu Lind, er Louise sannfærð um að sannleikurinn er enn ósagður.

Hefndargyðjan er þriðja bókin um Louise Rick sem kemur út á íslensku.

Kallaðu mig prinsessu og Aldrei framar frjáls hafa vakið verðskuldaða athygli.

„Það kemur ekki á óvart að Sara Blædel skuli vera útnefnd okkar allra vinsælasti rit­höfundur . . .“
    Henrik Tjalve, Frederiksborg Amts Avis


SPRENGIVARGURINN
Liza Marklund

Þegar undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í Stokkhólmi stendur sem hæst springur sprengja í stúku nýja Ólympíuleikvangsins. Ein valda-mesta kona Svíþjóðar ferst í spreng-ingunni. Á meðan umfangs-mikil og áköf leit lögreglunnar að morð-ingjanum  stendur yfir fer Annika Bengtzon, blaðamað-ur á Kvöld-blaðinu, að rannsaka málið og uppgötvar óvæntar tengingar sem aðrir virðast ekki hafa komið auga á. Þar með er lesandinn lagður af stað í æsispennandi för með þekktasta blaða-manni sænskra spennusagna.

Sprengivargurinn er meðal vinsælustu skáldsagna sem út hafa komið í Svíþjóð. Hún hlaut Poloni-verðlaunin 1998 sem besta sænska skáld-sagan eftir konu og var jafnframt valin besta fyrsta skáld-saga höf-undar sama ár. Bókin hlaut sænsku glæpa-sagna--verðlaunin árið 1998.

Sprengivargurinn kom fyrst út á íslensku 2001 en hefur verið ófáanleg um langa hríð og er því gefin út að nýju.

„Sprengivargurinn er ein besta glæpasaga síðustu ára á sama tíma og eftirminnileg mynd er dregin upp af lífi tveggja barna móður í krefjandi starfi í stórborginni.“
Dagens Nyheter

„Það er engin tilviljun að Liza Marklund er einn áhrifamesti og vinsælasti glæpasagnahöfundur samtímans.“
Patricia Cornwell


STÚDÍÓ SEX
Liza Marklund

Annika Bengtzon kemst í sumarafleysingar á Kvöldblaðinu og gerir sér vonir um fastráðningu. Hún fær ekki langan tíma til að venjast lífinu á blaðinu því lík af ungri stúlku sem hefur verið myrt finnst í kirkjugarði í borginni. Fórnarlambið er nektardansmær og grunur fellur á ráðherra í ríkisstjórninni. Annika Bengtzon fer að rýna í málið og veit að þetta er fréttin sem mun koma henni á kortið hjá blaðinu. Þræðirnir sem liggja að baki morðinu reynast flóknir og sá ógnvænlegi og ofbeldisfulli heimur kynlífsiðnaðarins sem Annika kynnist við rannsókn málsins hefur mikil áhrif á hana.

Stúdíó sex var fyrst gefin út á íslensku árið 2002 en hefur verið ófáanleg um langa hríð og er því gefin út að nýju.

„Annika Bengtzon er vítamínsprauta fyrir sænsku glæpasöguna.“
Svenska Dagbladet

„Svíþjóð hefur eignast nýja hetju!“
Der Spiegel



Bækur 11 - 20 af 47. Síða 2 af 5.
Fara á síðu
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 |

DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS