|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| STÚDÍÓ SEX |
 |
Liza Marklund
Annika Bengtzon kemst í sumarafleysingar á Kvöldblaðinu og gerir sér vonir um fastráðningu. Hún fær ekki langan tíma til að venjast lífinu á blaðinu því lík af ungri stúlku sem hefur verið myrt finnst í kirkjugarði í borginni. Fórnarlambið er nektardansmær og grunur fellur á ráðherra í ríkisstjórninni. Annika Bengtzon fer að rýna í málið og veit að þetta er fréttin sem mun koma henni á kortið hjá blaðinu. Þræðirnir sem liggja að baki morðinu reynast flóknir og sá ógnvænlegi og ofbeldisfulli heimur kynlífsiðnaðarins sem Annika kynnist við rannsókn málsins hefur mikil áhrif á hana.
Stúdíó sex var fyrst gefin út á íslensku árið 2002 en hefur verið ófáanleg um langa hríð og er því gefin út að nýju.
„Annika Bengtzon er vítamínsprauta fyrir sænsku glæpasöguna.“ Svenska Dagbladet
„Svíþjóð hefur eignast nýja hetju!“ Der Spiegel
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| PARADÍS |
 |
Liza Marklund
Mikið óveður gengur yfir Svíþjóð og þegar því slotar finnast tveir menn skotnir til bana á hafnarbakka í Stokkhólmi. Sígar-ettu-farmur upp á tugi milljóna er horfinn og ung kona, Aida, hefur bjargað sér á flótta frá höfninni. Fleiri lík finnast og ljóst að þetta er ekkert venjulegt sakamál. Annika Bengtzon, blaðamaður á Kvöldblaðinu, kemur Aidu í samband við sam-tökin Paradís, sem gefa sig út fyrir að bjarga fólki sem er í lífshættu. Rannsókn málsins verður tækifæri Anniku til að ná fótfestu á ný í blaðamennskunni, en í einkalífinu gengur á ýmsu og að lokum stendur hún frammi fyrir erfiðustu ákvörð-un lífs síns.
Paradís kom fyrst út á íslensku 2003 en hefur nú verið gefin út að nýju.
„Það leikur enginn vafi á því að Liza Marklund er sér á parti. Hún skrifar snjallar sögur, skáldskapurinn er sannfærandi og viðhorf hennar til samfélagsins róttæk.“ Henning Mankell
„Liza Marklund er næsti stóri Norræni höfundurinn fyrir glæpa-sagnaaðdáendur að uppgötva. Bækur hennar bjóða upp á spennu, vel skrifuð plott, góða persónusköpun og einstakar svið-setningar. Njótið!“ Harlan Coben
|
|
 |
|
|
|
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
| Morð og möndlulykt |
 |
eftir Camillu Läckberg
ÚTGÁFUDAGUR 30. MARS 2011
Það er tæp vika til jóla þegar Martin Molin, lögreglumaður í Tanumshede, mætir til veislu hjá ættingjum kærustunnar, þótt tregur sé. Höfuð Liljecrona-fjölskyldunnar, Ruben, sem stýrir málefnum hennar harðri hendi, hefur stefnt hópnum saman á Hvaley, sem liggur úti fyrir Fjällbacka. Þegar grenjandi stórhríð brestur á rofnar allt samband við meginlandið. Í veislunni miðri hnígur Ruben örendur niður og því líkast að hann hafi verið myrtur með eitri. Eins og aðrir á staðnum gerir Martin sér grein fyrir því að vegna einangrunarinnar hlýtur morðinginn að vera meðal þeirra. En hvert þeirra hefur tilefni til morðs – og er nógu kaldrifjað til að fremja það?
Morð og möndlulykt er heillandi nóvella í anda Agötu Christie. Camilla Läckberg er einn vinsælasti glæpasagnahöfundurinn á Íslandi og víðar. Hún er meðal mest lesnu rithöfunda Evrópu og bækur hennar eru gefnar út um allan heim.
Camilla Läckberg og Uppheimar hafa í sameiningu kosið að styrkja Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum. 100 kr. af andvirði hverrar seldrar bókar renna til félagsins.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Hinir dauðu |
 |
eftir Vidar Sundstøl ÚTGÁFUDAGUR 9. MARS 2011 Lögreglumaðurinn Lance Hansen í Minnesota á í sálarstríði eftir að ungur norskur ferðamaður hefur verið myrtur á bökkum vatnsins mikla, Lake Superior. Lance er sannfærður um að saklaus maður sitji í fangelsi fyrir þennan skelfilega glæp en Andy bróðir hans sé í raun morðing-inn. Hann reynir að láta sem ekkert sé þegar þeir bræður fara saman á hjartarveiðar, eins og þeir eru vanir á haustin. Hversu langt mun Andy ganga þegar hann áttar sig á að Lance hefur hann grunaðan? Verður veiðimaðurinn kannski sjálfur bráð? Jafnframt leysist aldargömul morðgáta smám saman.
Hinir dauðu er önnur bók hins norska Vidars Sundstøl í Minnesota-þríleiknum. Vidar, sem sjálfur hefur búið á slóðum sögunnar við Lake Superior, hefur hlotið einróma lof fyrir þessar bækur. Land draumanna, sem kom út á íslensku 2010, hlaut Rivertonverðlaunin 2008 sem besta glæpasaga ársins í Noregi og var tilnefnd til Norrænu glæpasagnaverðlaunanna, Glerlykilsins, 2009. Þriðja og síðasta bókin, Hrafnarnir, er væntanleg haustið 2011.
Vidar Sundstøl spinnur æsilegan sagnavef um morð, norræna innflytjendur, afturgöngu töfralæknisins Swamper Caribou og síðast en ekki síst um núlifandi afkomendur norrænu landnemanna í Minnesota.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Djöflastjarnan |
 |
Jo Nesbø ÚTGÁFUDAGUR 16. MARS 2011
Á þrúgandi heitum sumardegi í Osló finnst ung kona myrt í íbúð sinni. Einn fingur hennar hefur verið skorinn af og undir öðru augnloki hennar finnst agnarsmár rauður demantur, skorinn í fimm arma stjörnu. Harry Hole er falin rannsókn málsins ásamt Tom Waaler – vinnufélaga sem hann hefur sterklega grunaðan um vopnasmygl og morð. Fimm dögum síðar er tilkynnt um hvarf konu. Þegar afskorinn fingur hennar finnst, og á honum hringur með stjörnulaga demanti, lítur út fyrir að Oslóarlögreglan eigi í fyrsta sinn í höggi við raðmorðingja. Á sama tíma er Harry staðráðinn í að sýna fram á sekt Waalers. Í ákafri leit sinni að lausn þessara tveggja mála stendur hann frammi fyrir erfiðum ákvörðunum – m.a. um framtíð sína hjá lögreglunni.
DJÖFLASTJARNAN er þriðja bók JO NESBØ sem kemur út á íslensku. RAUÐBRYSTINGUR sló í gegn með eftirminnilegum hætti er hún kom út á Íslandi árið 2009 og var fylgt eftir með NEMESIS snemma árs 2010.
JO NESBØ hefur átt gríðarlegum vinsældum að fagna um allan heim á síðustu árum og hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Bækur hans eru gefnar út í vel á fjórða tug landa og hafa selst í milljónum eintaka.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Önnur Líf - kilja |
 |
er sjötta skáldsaga Ævars um löggugengið Árna, Katrínu, Stefán og Guðna. Rétt eins og í hinum fyrri er sögusviðið sótt beint í íslenskan samtíma og samfélag, um leið og hugað er jafnt að hinu stærra sem hinu smærra samhengi hlutanna.
Aðfaranótt páskadags 2010 fannst Erla Líf Bóasdóttir í blóði sínu undir kirkjuvegg í Reykjavík, vafin í hvítt lín. Hún hafði verið stungin ellefu sinnum. Rúmu ári áður, í janúar 2009, varð hún fyrir hrottalegri árás þriggja grímuklæddra manna eftir að hafa dansað við eldana á Austurvelli við taktfastan undirleik búsáhalda og byljandi trommuslátt langt fram á frostkalda nótt. Katrín stýrir rannsókn málanna og á afar bágt með að trúa að engin tengsl séu á milli þessara tveggja grimmilegu árása á Erlu Líf.
Það reynist henni þó allt annað en auðvelt að sýna fram á þessi tengsl og finna hina seku, ekki síst af því að almenna rannsóknardeildin er í upplausn vegna fjarveru Stefáns, sem ekki kemur til af góðu. Árni er í feðraorlofi og karlinn Guðni reynist Katrínu verri en enginn þegar hann verður sjálfur miðpunktur rannsóknar á sóðalegu morði í innsta hring undirheima Reykjavíkur.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Kallinn undir stiganum - kilja |
 |
Fredrik gengur allt í haginn. Hann er í góðri vinnu og kvæntur Paulu sem er virtur listmálari – dásamleg kona sem Fredrik tilbiður og furðar sig á að hafi viljað giftast honum. Saman eiga þau tvö börn og eru nýflutt í draumahúsið, gamalt og sjarmerandi nýuppgert hús á fallegum stað utan við Kungsvik. En svo tekur tilvera þessarar hamingjusömu fjölskyldu að breytast á heldur óhugnanlegan máta. Dag nokkurn þegar Fredrik fer á snemma á fætur eftir svefnlitla nótt mætir honum ókunnur maður á ganginum, lágvaxinn og ófrýnilegur náungi sem segist eiga heima í kompuni undir stiganum. Maðurinn er ákaflega óskýrmæltur en það fer ekki á milli mála – hann segist eiga heima undir stiganum. Hverju á Fredrik að trúa? Maðurinn verður æ oftar á vegi Fredriks og veröld hans virðist smám saman vera að breytast í martröð.
|
|
 |
|
|
 |
 |
 |
| Vitavörðurinn |
 |
eftir Camillu Läckberg,
Á bjartri vornótt snarast kona inn í bíl sinn - hendurnar á stýrinu eru ataðar blóði. Með son sinn ungan í aftursætinu leitar hún á eina griðarstaðinn sem hún þekkir, eyjuna Grásker, sem liggur út af Fjällbacka. Skömmu síðar finnst maður myrtur í íbúð sinni. Nýráðinn fjármálastjóri sveitarfélagsins, sem eftir áralanga fjarveru hefur snúið aftur á æskuslóðirnar.
Camilla, sem er einn vinsælasti rithöfundur Evrópu, hefur hlotið heimsathygli fyrir glæpasögur sínar, sem selst hafa í milljónum eintaka, og má með sanni segja að íslenskir lesendur hafi tekið bókum hennar fagnandi. |
|
 |
|
|
| Bækur 21 - 30 af 48. Síða 3 af 5. |
|
l 1 | 2 | 3 | 4 | 5 |
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
|  Stúdíóið | |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|