FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
HÖFUNDAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
Buy this book
   Skoða Körfu Bókaleit  18 virkir notendur  

Aldrei framar frjáls
Aldrei framar frjáls eftir dönsku skáldkonuna Söru Blædel. Hér er á ferðinni æsispennandi glæpasaga eftir einn vinsælasta spennusagnahöfund Dana. Sara Blædel var útnefnd af dönskum lesendum sem vinsælasti höfundur Danmerkur árið 2009 og í vali lesenda Søndagsavisen á rithöfundi ársins 2009 naut Sara mikilla yfirburða.

Konulík finnst á Vesterbro og allt er löðrandi í blóði; hún hefur verið skorin á háls á hrottalegan hátt. Louise Rick rannsakar málið ásamt félögum sínum í dönsku lögreglunni og allt bendir til að morðið tengist vændisstarfsemi í Kaupmannahöfn. Þegar annað hryllilegt morð er framið verður lögreglunni ljóst að hún á í höggi við nýja ógn – forherta glæpamenn sem skirrast ekki við að misnota saklaust fólk og misþyrma því grimmilega til að þjóna eigin gróðasjónarmiðum. Mansal er staðreynd á Norðurlöndum.
Höfundur: Sara Blædel
Útgáfuár: 2010
Band: Kilja
Verð: 2.480 kr.
Tilboðsverð: 1.980 kr.
Fjöldi:





Vitavörðurinn

Aldrei framar frjáls

NEMESIS

Hafmeyjan

Hvarfið

Land draumanna
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 431 3271 & 863 4972 I UPPHEIMAR@UPPHEIMAR.IS