FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  7 virkir notendur  

Náttbál
STORMVIÐVÖRUN!

Þegar fárviðrið, sem heimamenn nefna bálið, gengur yfir Öland er öllum hollast að halda sig innandyra. Með norðanstorminum berst ís, snjór og þoka sem soga í sig allt sem fyrir verður.

Gamla vitavarðarbýlið við Åluddden hefur staðið autt árum saman við sjálfvirka vitana. Sagt er að reisuleg
húsin hafi verið byggð úr timburfarmi skips sem strandaði þar eitt sinní bálinu.

Katrine og Joakim Westin eru orðin leið á að búa í Stokkhólmi,  kaupa býlið og flytja með börnin sín tvö til Åludden. Þau eru vön að gera upp gömul hús og laus við alla hjátrú. En eftir að þau eru flutt heyra þau hrollvekjandi sögusögn: að þeir sem dáið hafa við Åludden snúi þangað aftur um hver jól.

Líkt og Hvarfið er Náttbál ógleymanleg lesning; allt í senn sakamálasaga, draugasaga og  fjölskyldudrama þar sem sérkennilegar persónur og heillandi umhverfi sameinast í harmræna og spennandi fléttu.     

Náttbál, önnur skáldsaga Johans Theorin, hefur hlotið einróma lof og verið þýdd á fjölda tungumála. Bókin hlaut m.a. Norrænu glæpasagnaverðlaunin, Glerlykilinn, 2009. Fyrsta bók hans, Hvarfið, sem kom út á íslensku 2010, hlaut ensku CWA John Creasey (New Blood) Dagger verðlaunin árið 2009.

Höfundur: Johan Theorin
Þýðandi: Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir
Útgáfuár: 2011
Band: Kilja
Verð: 2.480 kr.
Tilboðsverð: 2.170 kr.

Fjöldi:




Bókaklúbbsverð: 1.990 kr.
Panta á bókaklúbbsverði



DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS