Á heitasta sumri í manna minnum eru íbúar Linköping þjakaðir af kæfandi svækjunni og hvæsandi skógareldum.
Stúlka á táningsaldri – sem man ekkert hvað gerðist – finnst nakin og blóðug í almenningsgarði. Niðri á ströndinni kemur annar óhugnaður í ljós og það rennur upp fyrir Malin Fors að hitabylgjan er ekki helsta áhyggjuefnið – einkum þar sem dóttir hennar sjálfrar er á sama viðkæma aldrinum og fórnarlömbin tvö.
Sumardauðinn, önnur bókin um Malin Fors, segir áhrifamikla sögu af gæfulausri ást og kolsvartri illsku – og skelfingunni þegar ógnin beinist að því sem Malin Fors stendur hjarta næst . . .
Mons Kallentoft (f. 1968) er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svía og bækur hans um Malin Fors njóta mikillar hylli.
Hann vakti verðskuldaða athygli þegar fyrsta bók hans á íslensku, Vetrarblóð, kom út 2010 og hlaut frábærar viðtökur.
„Sumardauðinn er alveg jafn hrikaleg, alveg jafn óvenjuleg og alveg jafn spennandi og Vetrarblóð. Bara enn betri.“
Mats Palmquist, Borås Tidning