FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  5 virkir notendur  

Saga Akraness I. og II. bindi

Saga Akraness er 1100 síður í stóru broti í tveimur bindum, prýdd fjölda mynda og korta og ber sérstaklega að geta vandaðra örnefnakorta. Þetta tímamótaverk er ótæmandi brunnur upplýsinga um hvaðeina sem snertir sögu Akraness og varpar nýju ljósi á uppruna fólks í landnámi Bresasona. Í lýsingu á þróun og uppbyggingu samfélagsins eru settar fram nýjar hugmyndir sem varða sögu landsins alls.



Fyrsta bindi Sögu Akraness spannar tímabilið frá landnámstíð til 1700. Sögusviðið er landnám Ketils og Þormóðs Bresasona. Sérstaklega ber að nefna fyrsta kafla verksins, Örnefni og búsetuminjar í landnámi Bresason, en þar er svæðinu frá Katanesi og út á Skaga, allt norðurfyrir að Stóru-Fellsöxl, lýst á einstakan hátt. Þúsundum örnefna og upplýsingum um búsetuminjar er þar haldið til haga fyrir komandi kynslóðir.



Átjándu öldinni er gerð skil í öðru bindi Sögu Akraness. Uppbygging sjávarútvegsins og sjósókn Akurnesinga myndar þar ákveðna þungamiðju enda lykilinn að þróun byggðar og mannlífs. Bindið í heild geymir yfirgripsmikla og þaulunna lýsingu á samfélagi bænda og sjómanna á átakatímum þegar sjóþorpið Akranes byggðist upp.



Ef óskað er eftir raðgreiðslusamningi vinsamlegast hafið samband við forlagið.



 

Höfundur: Gunnlaugur Haraldsson
Útgáfuár: 2011
Band: Innbundin
Verð: 27.900 kr.
Tilboðsverð: 21.900 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS