|
|
 |
|
|
Frelsarinn
Jo Nesbø
Á Egertorgi í miðborg Oslóar er meðlimur Hjálpræðishersins skotinn til bana af manni úr áheyrendahópnum. Blaðaljósmyndari hefur náð myndum af grunsamlegum manni en Beate Lønn, sérfræðingur lögreglunnar í að þekkja andlit, ruglast í ríminu því ásýnd mannsins virðist breytast frá einni mynd til annarrar. Rannsóknarlögreglumaðurinn Harry Hole leitar þessa andlitslausa morðingja og meðan Oslóarbúar óska hver öðrum gleðilegra jóla verða stokkfrosin strætin að vígvelli þar sem barist er upp á líf og dauða. Einkum dauða. FRELSARINN var tilnefnd til hinna virtu ensku glæpasagnaverðlauna, CWA International Dagger, 2009.
FRELSARINN er fjórða bók JO NESBØ sem kemur út á íslensku. Bækur hans hafa slegið eftirminnilega í gegn hérlendis, líkt og um heim allan, því JO NESBØ hefur átt gríðarlegum vinsældum að fagna á síðustu árum og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Bækur hans eru gefnar út í tugum landa og hafa selst í milljónum eintaka.
|
| Höfundur: Jo Nesbø |
| Þýðandi: Ingunn Ásdísardóttir |
| Útgáfuár: 2011 |
| Band: Kilja |
|
|
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
|  Stúdíóið | |
|  DREKINN | |
|  Manneskja án hunds | |
|  Svikalogn | |
|  BRYNHJARTA | |
|  Haustfórn | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|