FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  6 virkir notendur  

Englasmiðurinn
Camilla Läckberg

Á Hvaley fyrir utan Fjällbacka hverfur fjölskylda sporlaust um páskana 1974. Í matsal skólahússins, þar sem fjölskyldan býr, koma menn að dúkuðu veisluborði. Þar er líka yngsta dóttirin, hin ársgamla Ebba, en af öðrum fjölskyldumeðlimum finnst hvorki tangur né tetur þrátt fyrir umfangsmikla leit.

Löngu síðar snýr Ebba aftur til Hvaleyjar með manni sínum til að setjast þar að. Þau hjónin hafa nýverið misst ungan son og í tilraun til að vinna bug á sorginni ætla þau sér að gera gamla skólahúsið upp og opna gistiheimili – í húsinu þar sem faðir hennar hafði með harðri hendi stýrt heimavistarskóla fyrir syni efnafólks. Þau hafa vart hafist handa þegar tilraun er gerð til að brenna þau inni. Í framhaldinu finnast gamlar leifar af blóði þegar gólfið í matsalnum er rifið upp – það er engu líkara en óhugnaður fortíðarinnar hafi elt þau uppi. Samhliða rannsókn á íkveikjunni taka Patrik Hedström og félagar hans í lögreglunni að skoða þetta gamla mál í von um að leysa ráðgátuna um hvarf foreldra og systkina Ebbu.

Englasmiðurinn
er áttunda bók Camillu Läckberg með þau Ericu og Patrik í forgrunni.. Vinsældir Camillu eru gífurlegar og hún var t.d. söluhæsti kvenrithöfundurinn í Evrópu árið 2010. Sama ár átti hún tvær vinsælustu kiljurnar í verslunum Eymundsson.

Gerast félagi í Undirheimum bókaklúbbi

Höfundur: Camilla Läckberg
Þýðandi: Sigurður Þór Salvarsson
Útgáfuár: 2012
Band: Kilja
Verð: 2.690 kr.
Tilboðsverð: 2.170 kr.

Fjöldi:




Bókaklúbbsverð: 1.990 kr.
Panta á bókaklúbbsverði



DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS