FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  10 virkir notendur  

WEST FJORDS – a culinary journey

West Fjords – a culinary journey er ensk útgáfa bókarinnar Boðið vestur – veisluföng úr náttúru Vestfjarða, sem kom út á sama tíma. Bókin eftir hjónin og matreiðslumeistarana Guðlaugu Jónsdóttur og Karl Kristján Ásgeirsson á Ísafirði. Ljósmyndir í bókinni eru allar eftir Ágúst Atlason.

West Fjords – a culinary journey er í grunninn matreiðslubók en jafnframt svo miklu meira en það. Í bókinni, sem skipt er upp í kafla eftir  mánuðum ársins, er mikill fjöldi uppskrifta að ýmiss konar réttum að vestan úr því náttúrulega hráefni sem í boði er á hverjum árstíma.

Ríkuleg náttúra, menning og saga Vestfjarða skipar stóran sess í bókinni sem er hlaðin glæsilegum ljósmyndum. Höfundar gera sér mat úr gömlum hefðum og siðum samhliða því að kynna lesendum spennandi nýjungar úr eldhúsi samtímans.

West Fjords – a culinary journey er einstakt verk í flokki matreiðslubóka; virðing höfunda fyrir náttúru og mannlífi Vestfjarða skilar sér vel í heillandi texta og ljósmyndum og fyrir allt áhugafólk um matreiðslu er hún kærkomin og forvitnileg.

West Fjords – a culinary journey er vegleg bók, 260 blaðsíður og frágangur allur eins og best verður á kosið. Hún kom út samtímis á þremur tungumálum; íslensku, ensku og þýsku.

Katelin Parsons þýðir bókina á ensku.

Höfundur: Guðlaug Jónsdóttir og Karl Kristján Ásgeirsson
Þýðandi: Katelin Parsons
Útgáfuár: 2012
Band: Innbundin
Verð: 6.680 kr.
Tilboðsverð: 5.900 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS