FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  2 virkir notendur  

DER GESCHMACK DER NATUR

Der Geschmack der Natur. Þetta er þýsk útgáfa bókarinnar Boðið vestur – veisluföng úr náttúru Vestfjarða, sem kom út á sama tíma. Bókin eftir hjónin og matreiðslumeistarana Guðlaugu Jónsdóttur og Karl Kristján Ásgeirsson á Ísafirði. Ljósmyndir í bókinni eru allar eftir Ágúst Atlason.
 
Der Geschmack der Natur er í grunninn matreiðslubók en jafnframt svo miklu meira en það. Í bókinni, sem skipt er upp í kafla eftir  mánuðum ársins, er mikill fjöldi uppskrifta að ýmiss konar réttum að vestan úr því náttúrulega hráefni sem í boði er á hverjum árstíma.
 
Ríkuleg náttúra, menning og saga Vestfjarða skipar stóran sess í bókinni sem er hlaðin glæsilegum ljósmyndum. Höfundar gera sér mat úr gömlum hefðum og siðum samhliða því að kynna lesendum spennandi nýjungar úr eldhúsi samtímans.
 
Der Geschmack der Natur er einstakt verk í flokki matreiðslubóka; virðing höfunda fyrir náttúru og mannlífi Vestfjarða skilar sér vel í heillandi texta og ljósmyndum og fyrir allt áhugafólk um matreiðslu er hún kærkomin og forvitnileg.
 
Der Geschmack der Natur er vegleg bók, 260 blaðsíður og frágangur allur eins og best verður á kosið. Hún kom út samtímis á þremur tungumálum; íslensku, ensku og þýsku.

Angela Schamberger þýðir bókina á þýsku.

Höfundur: Guðlaug Jónsdóttir og Karl Kristján Ásgeirsson
Þýðandi: Angela Schamberger
Útgáfuár: 2012
Band: Innbundin
Verð: 6.680 kr.
Tilboðsverð: 5.900 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS