FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  5 virkir notendur  

Summit, 100 Mountain hikes in Iceland

eftir Ara Trausta Guðmundsson, jarðeðlisfræðing og rithöfund.

SUMMIT er vandaður leiðarvísir um gönguleiðir á 100 íslensk fjöll, ætlaður erlendum ferðamönnum, enda bókin aðeins gefin út á ensku. Ýmiss konar ráðleggingar og upplýsingar, kort, ljósmyndir og lýsingar gera þessa bók afar gagnlega og fróðlega öllum þeim sem hyggjast ganga á íslensk fjöll. Leiðirnar í bókinni eru fjölbreyttar, bæði að lengd og hversu krefjandi þær eru.

Hér er ekki um að ræða þýðingu á bókinni Íslensk fjöll eftir Ara Trausta og Pétur Þorleifsson sem út kom fyrir nokkrum árum, heldur algerlega nýtt verk Ara Trausta, sérsniðið að þörfum erlendra gesta.

Ari Trausti Guðmundsson, rithöfundur og jarðeðlisfræðingur, er víðkunnur af ritum sínum og störfum. Bækur hans um náttúru og jarðfræði, fjallamennsku og ferðalög skipta tugum, auk skáldverka. Ari er þaulreyndur göngugarpur og hefur
klifið fjöll víða um heim, auk þess að stunda leiðsögn.


Höfundur: Ari Trausti Guðmundsson
Útgáfuár: 2012
Band: Innbundin
Verð: 4.990 kr.
Tilboðsverð: 4.490 kr.

Fjöldi:





DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS