FYRIRTÆKIÐ FYRIRSPURN VEFVERSLUN SKOÐA KÖRFU
FORSÍÐA
FRÉTTIR
BÆKUR
UNDIRHEIMAR
ÁRBÓK AKURNESINGA
FOREIGN RIGHTS
   Skoða Körfu Bókaleit  6 virkir notendur  

BOX 21

ROSLUND OG HELLSTRÖM

Út er komin hjá Undirheimum bókin BOX 21 eftir sænska glæpasagnatvíeykið Roslund og Hellström. Box 21 er önnur skáldsaga Anders Roslund og Börge Hellström.

Ófreskjan eftir þá félaga, sem kom út á íslensku á síðasta ári, hlaut Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan og bækur þeirra hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda og vakið athygli fyrir beinskeytta umfjöllun um óþægilega hluti sem þrífast í velferðarsamfélaginu.

Box 21 er áhrifamikil saga um skuggahliðar mannlegs samfélags og lesandinn stendur frammi fyrir áleitnum spurningum: Hvers vegna á mansal sér stað? Er einhvern tíma réttlætanlegt að fórnarlamb taki lögin í sínar hendur? Hversu langt er hægt að ganga í nafni vináttunnar? Er það skýlaus krafa að sannleikurinn verði alltaf að koma fram?

Ung vændiskona finnst húðstrýkt í íbúð þar sem henni hefur verið haldið nauðugri ásamt annarri konu. Hún er flutt á sjúkrahús og óvæntir atburðir gerast í kjölfarið. Á þessu sama sjúkrahúsi liggur fársjúkur ungur fíkill sem hefur verið staðinn að því að blanda þvottaefni saman við amfetamín og selja – valdamiklir aðilar í undirheimum Stokkhólmsborgar hyggja á hefnd. Örlög þessara tveggja persóna fléttast saman á eftirminnilegan hátt í rannsókn Ewert Gren lögregluforingja og félaga hans, Sven Sundkvist rannsóknarlögreglumanns.


Höfundur: Roslund & Helstöm
Þýðandi: Sigurður Þór Salvarsson
Útgáfuár: 2012
Band: Kilja
Verð: 2.690 kr.
Tilboðsverð: 2.170 kr.

Fjöldi:




Bókaklúbbsverð: 1.990 kr.
Panta á bókaklúbbsverði



DREKINN

Manneskja án hunds

Svikalogn

BRYNHJARTA

Haustfórn

Steinblóð
UPPHEIMAR I VESTURGÖTU 45 I 300 AKRANES I SÍMI 511 2450, NETFANG: UPPHEIMAR (hjá) UPPHEIMAR.IS