|
 |
|
Steingerð vængjapör
 Ljóðaúrval eftir Tor Ulven í þýðingu Magnúsar Sigurðssonar Steingerð vængjapör geymir tvímála þýðingaúrval á ljóðum norska skáldsins Tors Ulven (1953–1995) ásamt ítarlegum eftirmála. Frá ótímabæru andláti Ulvens hefur hróður hans borist æ víðar. Bók þessi er fyrsta heildstæða útgáfa verka hans á íslensku. Tor Ulven telst einn af helstu rithöfundum Noregs á síðari hluta 20. aldar. Fyrir ljóð sín varð hann meðal annars fyrstur til að hljóta hin virtu Obstfelder-bókmenntaverðlaun árið 1993. Frumsamin verk Ulvens urðu 11 talsins, jafnt ljóð sem styttri prósar. Höfundarverk hans einkennist af skörpum náttúrumyndum og afdráttarlausu raunsæi gagnvart þjáningu og hverfulleika mannsins. Ljúfari hliðar tilverunnar eiga sér þó einnig ríkan málsvara í skáldskap hans. Magnús Sigurðsson þýddi auk þess að rita eftirmála.
|
Höfundur: Tor Ulven |
Þýðandi: Magnús Sigurðsson |
Útgáfuár: 2012 |
Band: Kilja |
|
|
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
|  Hungureldur | |
|  Krákustelpan | |
|  Leðurblakan | |
|  Dauðaengillinn | |
|  Stúdíóið | |
|  DREKINN | |
|
|
 |
|
|
|
 |
 |
|
|